03.04.1979
Sameinað þing: 77. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3783 í B-deild Alþingistíðinda. (2972)
178. mál, stefnumörkun í menningarmálum
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Það er vissulega rétt hjá hæstv. menntmrh., að hv. 3. þm. Austurl., Helga Seljan, tókst að fá fram aukið fjármagn til áhugaleikfélaga og að því leyti voru hærri fjárveitingar en verið hefur, enda hefur hann verið mikill og ötull baráttumaður fyrir þeirri sveit listamanna. En að öðru leyti held ég að framlög til menningarmála hafi lækkað, án þess að ég hafi borið saman þar hvern lið, en um það sem ég man af því er þannig ástatt. En ég vek athygli á því og þakka hæstv. ráðh. þau svör sem hann gaf um þann hóp manna sem hann ætlar að mynda til þess að móta till. um framlög í fjárl. næsta árs í sambandi við menningarmál, að þar hyggst hann fara út fyrir menntmrn., að því er mér skilst, og sækja ráð eitthvað annað. Hygg ég að hann hafi þá í huga menningarvitana sína, sem eru þægir og góðir í taumi oft þegar kallað er, það eigi nú að kalla þá til ráða í þessu efni. Verð ég að segja eins og mér býr í brjósti, að ekki líst mér vel á þá ráðagerð og óttast mjög að þar verði ekki skynsamlega að farið ef þeirra ljós næði að skína gerst í þeirri nefnd.