03.04.1979
Sameinað þing: 77. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3787 í B-deild Alþingistíðinda. (2979)
346. mál, niðurfelling afnotagjalds af síma fyrir ellilífeyrisþega
Menntmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Ég er ekki samþykkur þeim sjónarmiðum, sem komu fram hjá hv. þm. Vilhjálmi Hjálmarssyni, að eðlilegt sé að fella niður ákvæði af þessu tagi. Ég tel mjög eðlilegt að opinberar stofnanir séu látnar hlaupa undir bagga með öldruðu fólki og öðrum lífeyrisþegum, og ég held að það sé mjög eðlilegur þáttur í starfsemi þessara stofnana, bæði útvarpsins, símans og Strætisvagna Reykjavíkur, svo að enn eitt dæmi sé nefnt. Það eru allmörg dæmi um þetta í okkar kerfi, og ég held að það sé eðlilegur þáttur í starfsemi þessara stofnana að veittur sé annaðhvort verulegur afsláttur til ellilífeyrisþega ellegar gjald sé algerlega fellt niður. Ég tel það vera framfaraspor, að þessi ákvörðun var tekin varðandi elli- og örorkulífeyrisþega, enda þótt það verði að játast og eigi að vera öllum kunnugt, að þessi undanþága nær ekki nema til takmarkaðs hóps elli- og örorkulífeyrisþega.
Hér var spurt, hversu margir nytu þessa. Ég hygg að það sé of snemmt að segja til um það, vegna þess að þessi breytta tilhögun tók gildi um áramót og fólk hefur verið að notfæra sér þessi hlunnindi. Ég býst því við að enn sé ekki að marka neina tölu í þessu efni. En fyrir fram var áætlað að tala þeirra, sem þessa mundu njóta, væri milli 4 og 5 þúsund, og gert hefur verið ráð fyrir að viðbótarkostnaður Landssímans af þessum ástæðum muni nema um eða yfir 100 millj. kr. á ári, þannig að þarna er um mjög verulegan kostnaðarlið að ræða sem verður að berast uppi af öðrum notendum símans ef Alþingi veitir ekki sérstaka fjárveitingu í þessu skyni, sem ég persónulega tel eðlilegt og sjálfsagt. Vissulega er hægt að segja eins og hv. þm. Vilhjálmur Hjálmarsson sagði áðan, að einfaldast sé að hækka lífeyrisgreiðslur til aldraðra og öryrkja sem þessu nemur þannig að ekki þurfi að leggja það á einstakar stofnanir að inna þessa þjónustu af hendi. En ég hef bara ekki trú á því, að þessar greiðslur verði hækkaðar sem þessu nemur. Ég held að það sé ekki nein trygging fyrir því, að greiðslur verði hækkaðar að sama skapi, og ég tel að það sé mjög mikilsverð búbót fyrir marga ellilífeyrisþega að njóta þessara hlunninda. Ég held að það sé í sjálfu sér ekkert við það að athuga að hafa það fyrirkomulag á sem nú er, enda þótt auðvitað sé alltaf einhver hætta á misnotkun á þessu sviði eins og öllum öðrum.
Ég vil láta það koma hér skýrt fram, að þessi ákvörðun, sem varðar símann, er fyrst og fremst hugsuð sem öryggismál og einmitt af þeirri ástæðu njóta ekki aðrir þessara hlunninda en þeir sem búa einir í íbúð og hafa ekki neinar aðrar tekjur en hina svonefndu tekjutryggingu. Ef ætti hins vegar að veita öllum ellilífeyrisþegum og öryrkjum þessa búbót í formi hækkaðra greiðslna frá Tryggingastofnun ríkisins, þá yrði að sjálfsögðu um margfalda upphæð að ræða á við þá upphæð sem nú er varið til þessara mála frá Póst- og símamálastofnuninni.
Að lokum vil ég víkja að fsp. hv. 1. þm. Reykv., Alberts Guðmundssonar, sem spurðist fyrir um hverjir nytu þess að hafa frían síma. Ég verð að játa það, að ég er algerlega óviðbúinn að svara þessari spurningu. Ég hef engar upplýsingar í höndunum sem gera mér kleift að svara þessari fsp. eins og vera ber. Ég veit að það eru ýmsir sem njóta þessara hlunninda, þykist vita að meðal starfsmanna sé sá hópur nokkuð stór, en vil þó ekki fullyrða neitt um það. Eini hópurinn, sem ég veit með vissu að nýtur þessara réttinda, eru þm. og ráðh. En ef óskað er eftir að gefin verði nánari skýrsla um þetta, þá ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að koma þeim upplýsingum á framfæri skriflega til þm. ef fsp. berst um það.