03.04.1979
Sameinað þing: 78. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3796 í B-deild Alþingistíðinda. (2993)
176. mál, atvinnu- og efnahagsleg áhrif takmarkana á fiskveiðum Íslendinga
Ólafur Ragnar Grímsson:
Herra forseti. Það mál, sem hér er á dagskrá, hefur orðið tilefni til umr. um þá stefnumótun sem hæstv. sjútvrh. hefur staðið að varðandi verndun fiskstofnanna og skipulag á veiðum. Það mál, sem flutt er hér af nokkrum þm. Sjálfstfl., er vissulega eitt af þeim höfuðmálum sem við þurfum að fást við hér á Alþ. og ríkisstj. þarf að glíma við. Það er ekki nógu gott að það skuli þurfa að flytja hér till. um að slík könnun fari fram á atvinnu- og efnahagslegum áhrifum takmarkana á fiskveiðum Íslendinga, þegar hæstv. sjútvrh. er að beita sér fyrir umfangsmestu takmörkunum sem um getur um langa hríð, því að slík könnun hefði átt að vera framkvæmd af hæstv. ráðh. áður en reglurnar voru settar.
Það er ekki skemmtilegt að þurfa að koma upp og gagnrýna þau vinnubrögð sem hafa verið höfð í frammi af hæstv. ráðh., vegna þess að ég er einn í hópi þeirra manna sem hefðu vissulega kosið að geta staðið heils hugar með ráðh. í viðleitni hans til verndunar fiskstofnanna við landið. En mér sýnist þær ákvarðanir og sú atburðarás, sem við þm. höfum frétt af í fjölmiðlum síðustu daga, vera á góðri leið með að gera okkur, sem vildum gjarnan standa að skynsamlegri stefnumótun í þessu máli, næsta ókleift að standa með ráðh. að henni, hvað þá heldur að verja hana í þjóðfélaginu. Fljótt á litið virðist blasa við, að í stað þeirrar heildarskipulagningar og samræmingar á veiðum og vinnslu, sem ég hefði talið að ráðh. mundi beita sér fyrir, virðist nú vera í uppsiglingu hróplegt skipulagsleysi á þessum málum — skipulagsleysi sem virðist vera á góðri leið með að kosta þjóðarbúið verðmæti sem ég held að fáa hafi grunað fyrir nokkrum vikum að yrði.
Í öðru lagi virðist þessi ákvarðanataka, sem ráðh. hefur einn beitt sér fyrir, vera að framkalla ranglæti milli byggðarlaga í þessu landi — ranglæti sem sé í slíku ósamræmi við siðferðis- og réttlætiskennd almennings í landinu að líkur séu á því, að þessar aðgerðir verði beinlínis hrópaðar niður. Ýmsir þættir þeirra lykta af pólitískum sjónarmiðum þar sem kjördæmahagsmunir ráðh. sjálfs virðast sitja í fyrirrúmi.
Í þriðja lagi virðast aðferðirnar við þessa ákvarðanatöku vera óeðlilegar. Við, sem héldum að Alþingi Íslendinga væri kosið til þess og ríkisstj. í þessu landi væri sett á laggirnar til þess að taka afdrifaríkustu stefnuákvarðanirnar í efnahags- og atvinnumálum þessarar þjóðar, verðum þess vísari einn góðan veðurdag að hæstv. sjútvrh. einn og sér, án þess að leggja málið fyrir ríkisstj., án þess hvað þá heldur að leggja það fyrir Alþingi Íslendinga, tekur ákvarðanir í efnahags- og atvinnumálum þessarar þjóðar sem að mínum dómi geta reynst á ýmsan hátt mun afdrifaríkari en margt í því ágæta og margrómaða efnahagsfrv., sem við stjórnarliðar höfum varið mörgum mánuðum til þess að fást við. Það er ekki líkleg leið til þess að skapa þá nauðsynlegu, þá óhjákvæmilegu þjóðarsamstöðu sem þarf að verða um þessar friðunaraðgerðir, að það sé farið með þessi mál með þeim hætti að þau séu ekki rædd og afgreidd í ríkisstj., þau séu ekki tekin til meðferðar á Alþingi Íslendinga, heldur ráðstafi ráðh. þessu upp á eigin spýtur. Ég hafði ekki talið að ráðherravald í sjávarútvegsmálum á Íslandi, í því lýðræðisríki sem við búum við, væri einræðisvald.
Ég vil gjarnan fá svör við því hér, hvort hæstv. sjútvrh. hyggst halda áfram þessum vinnubrögðum, hvort hann hyggst halda áfram að ráðskast með grundvallaratvinnuveg landsmanna, ráðskast með atvinnulífið í heilum landshlutum og allar helstu veiði- og fiskvinnslutegundir landsmanna án þess að leggja þau mál til ákvörðunar fyrir ríkisstj. landsins, hvað þá heldur fyrir Alþingi. Ef svo er, ef það er ásetningur ráðh. að fylgja áfram þeim vinnubrögðum við þessa ákvarðanatöku, sem virðist hafa verið fylgt í þessu mali eftir því sem fram hefur komið í fjölmiðlum, held ég að það sé nauðsynlegt að Alþingi Íslendinga grípi í taumana, vegna þess að hér er verið að fást við slíkt lífshagsmunamál þjóðarinnar, hér er verið að fást við vandamál í atvinnulífi heilla landshluta. Ef við felum einum ráðh. það alræðisvald, sem hann virðist hafa tekið sér í þessum málum, held ég að það sé vissulega kominn tími til þess að fara að endurskoða ýmsa þætti í stjórnskipan okkar, hvað þá þann grundvöll hins svokallaða þingræðis í þessu landi sem ýmsir af hv. flokksbræðrum ráðh. hafa talað fagurlegast um í vetur. Þess vegna vil ég af þessu tilefni spyrja sjútvrh. hvort það sé rétt, sem fram hefur komið í fjölmiðlum, að þær reglur, sem hann hefur sett um veiðar, hafi ekki verið afgreiddar í ríkisstj. Ef svo er vil ég fá að vita hvers vegna þetta mál var ekki lagt fyrir ríkisstj. Og í framhaldi af því í þriðja lagi, hvort hæstv. ráðh. hyggst halda áfram þeim vinnubrögðum að leggja málefni af þessu tagi ekki fyrir ríkisstj. né heldur Alþingi.
Enn fremur vil ég taka undir það með hv. þm. Stefáni Jónssyni, að þau svör, sem hér voru gefin varðandi aðgerðir rn. upp á síðkastið til þess að tryggja að sá afli, sem á land berst, fái þá vinnslu sem gefur þjóðarbúinu mest verðmæti úr þeim afla, voru hvergi nærri tæmandi. Þau voru satt að segja undanfærslur einar, og það hefur ekki komið fram í þessum málflutningi á hvern hátt hæstv. sjútvrh. hyggst tryggja að sá takmarkaði afli, sem hann nú í krafti síns einræðisvalds virðist hafa ákveðið, fái fullnýtingu gæðanna svo að skilað sé þeim arðsemisárangri sem hæstv. ráðh. sjálfur lagði til grundvallar í ræðu sinni áðan. Það er til lítils að leggja miklar byrðar á heilan landshluta og þjóðina alla til þess að vernda fiskstofnana, ef það á að verða reynslan hvað fiskvinnsluna sjálfa snertir að það fari síðan allt aftur á bak hvað snertir að fá sem mest verðmæti úr þeirri vinnslu. Aflatakmarkanastefna, sem á hinn bóginn felur slíkt í sér hvað vinnsluhliðina snertir, er ekki líkleg til þess að hljóta þann nauðsynlega þjóðarstuðning sem er óhjákvæmileg forsenda þess að þetta geti gerst í framkvæmd.
Ég vil jafnframt segja það og spyrja í framhaldi af þessu, hvort það sé rétt, sem fram hefur komið í fjölmiðlum, að það hafi verið atkv. hæstv. sjútvrh. í ríkisstj. sem varð þess valdandi að ósk um kaup á togara til að veiða úthafsrækju og ósk um kaup á skipi til kolmunnaveiða var hafnað. Er rétt, að atkv. sjútvrh. hafi ráðið úrslitum um að neitað var óskum frá tveimur byggðarlögum í þessu landi um að fara að stunda aðrar veiðar en þorskveiðar, fara að stunda hina vannýttu fiskstofna, sem við eigum hér í ríkum mæli, og færa þróun fiskveiðanna yfir í það horf sem ég hélt að hæstv. sjútvrh. væri baráttumaður fyrir? Ef á sama tíma er neitað um að kaupa slík skip verð ég í hreinskilni að segja, að ég er gersamlega hættur að botna í þeirri atvinnustefnu sem á að liggja til grundvallar friðunarstefnunni sem hæstv. ráðh. virðist vera að beita sér fyrir. Ég vona satt að segja að þessi frétt sé röng, og ég vil beina því til hæstv. sjútvrh. að veita nú Alþingi Íslendinga upplýsingar um hvort þetta er rétt eða rangt. Ef von mín reynist ekki rétt. ef hæstv. ráðh. hefur með atkv. sínu á ríkisstjórnarfundi komið í veg fyrir að Íslendingar geti farið að stunda fiskveiðar af þessu tagi, sem á hinn bóginn virðist alltaf verið að berjast fyrir og á jafnvel að fara að breyta Aflatryggingasjóði til þess að hægt sé að gera það, þá tel ég að við, sem er krafist að styðjum slíka stefnu á öðrum vettvangi, m. a. ákvæðin í efnahagsfrv. forsrh., eigum heimtingu á að fá svör við því, hvaða röksemdir liggi að baki þessari neitun, hvaða röksemdir liggi að baki því, að þegar forráðamenn tveggja byggðarlaga vilja leggja í þann áhættusama rekstur að gerast forgöngumenn nýrra veiða og sýna þjóðinni fram á að hún geti aflað sér annarra verðmæta en í þorskstofninum finnast, þá segi hæstv. sjútvrh. á ríkisstjórnarfundi með atkv. sínu: „nei, takk“. (Gripið fram í.) Nei, ég hefði haldið ekki. Ég verð þess vegna að segja að ég botna hreinlega ekki í þeirri stefnu sem með annarri hendinni krefst gífurlegra byrða hjá fjölmörgum landshlutum, hjá heilum atvinnugreinum í landinu í krafti þess að við séum hér með ofnýtta fiskstofna og það þurfi að beina framleiðslugetu landsins inn á nýjar greinar, en neita svo með hinni hendinni þeim tveimur aðilum sem hafa óskað eftir því að fá að kaupa skip til að stunda aðrar veiðar en þorskveiðar.
Því miður, eins og komið hefur fram í ræðu minni, virðist atburðarásin nú upp á síðkastið hafa skilað upp á yfirborðið og í fjölmiðlunum, kannske fyrir tilviljun, fréttum af afstöðu og aðgerðum hæstv. sjútvrh. sem að mínum dómi eru á góðri leið eða geta a. m. k., svo að ég fullyrði ekki meira, grafið undan þeim nauðsynlega og víðtæka stuðningi sem er óhjákvæmileg forsenda þess að þær ákvarðanir, sem hæstv. sjútvrh. tók upp á eigin spýtur, fái þann hljómgrunn með þjóðinni að hún þoll þær, því að þótt sumir telji sig kannske hafa samkv. einhverjum stjórnskipunarrétti einræðisvald í sjávarútvegsmálum á Íslandi hefur þjóðin ekki í vitund sinni afhent neinum manni slíkt einræðisvald. Ég vil þess vegna í fullri alvöru, og þess vegna hef ég kannske tekið djúpt í árinni í þessari ræðu og verið jafnhvassyrtur og ég hef verið, vara hæstv. sjútvrh. við að hann er á mjög hættulegri braut, sem felur það í sér að birta í reynd slíkt ranglæti, slíkt misræmi og slíkt skipulagsleysi í atvinnulegri þróun sjávarútvegsins í heild að afleiðingin af þeim aðgerðum verður e. t. v. fyrr en hann heldur að sú friðunarstefna, sem ég og ýmsir fleiri vildu gjarnan styðja hann i, brotnar niður.