03.04.1979
Sameinað þing: 78. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3801 í B-deild Alþingistíðinda. (2995)

176. mál, atvinnu- og efnahagsleg áhrif takmarkana á fiskveiðum Íslendinga

Forseti (Gils Guðmundsson):

Eins og við var að búast tekst ekki að ljúka umr. um þetta mál nú. Það er raunar komið fram á þann tíma sem deildir eiga að. hafa til umráða. Hv. 4. þm. Norðurl. v., sem er kunnur að því að vera bæði mjög stuttorður og gagnorður þegar hann vill það viðhafa, mun leika þá list nú og fær hann orðið.