03.04.1979
Neðri deild: 70. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3814 í B-deild Alþingistíðinda. (3012)
125. mál, Framleiðsluráð landbúnaðarins
Frsm. meiri hl. (Stefán Valgeirsson):
Herra forseti. Við 2. umr. þessa máls komu fram brtt. í fyrsta lagi frá meiri hl. landbn., í öðru lagi frá hv. þm. Pálma Jónssyni og Eggert Haukdal og í þriðja lagi frá hv. þm. Lúðvík Jósepssyni, sem var um ákvæði til bráðabirgða. Eins og hv. þm. er kunnugt endaði 2. umr. um þetta mál með því, að brtt. voru allar teknar til 3. umr. og skyldi gera tilraun á milli umr. hvort landbn. beggja deilda gætu ekki samræmt þær till. sem fyrir lágu. Enn fremur fór ég fram á það við hv. þm. Lúðvík Jósepsson, að hann tæki til baka till. sínar, þar sem upplýst var að unnið var af fullum krafti að lausn þeirra mála sem till. hv. þm. fjölluðu um. Hv. þm. vildi fá gleggri upplýsingar Frá hæstv. landbrh. en hann taldi sig hafa um það fyrst og fremst, hvernig stefnt væri að því að leysa þann vanda sem bændur standa nú frammi fyrir, þar sem vantar á yfirstandandi ári, að talið er, um 5 milljarða upp á að útflutningstryggingin dugi til að bændur fái grundvallarverðið eða um 200 kr. á hvert kg kindakjöts og um 16–17 kr. á hvern mjólkurlítra. Hæstv. landbrh. hefur nú skýrt landbn. frá því, hvernig hann leggi til að þetta mál verði leyst, og hefur málið nú verið til umfjöllunar í hæstv. ríkisstj. Og nú hefur hv. þm. Lúðvík Jósepsson ákveðið að taka till. sína til baka. Ég geri ráð fyrir að hæstv. landbrh. muni segja hv. þd. frá í hverju till. hans um lausn þessara mála felist.
Þar sem ég talaði fyrir nál. ásamt brtt. meiri hl. landbn. við 2. umr. sé ég ekki ástæðu til að endurtaka það sem ég sagði við þá umr. Ég mun því byrja á að skýra frá brtt. sem landbn. hafa komið sér saman um, en ég vil taka það fram, að hv. þm. Pálmi Jónsson og Eggert Haukdal eru með fyrirvara í sambandi við þessar till., og geri ég ráð fyrir að það sé aðallega út af bráðabirgðaákvæðinu í till. þeirra. Þessar till., sem landbn. hafa komið sér saman um, hljóða þannig, með leyfi forseta:
„Við 1. gr. Greinin fallið niður.
2. Við 2. gr. Greinin, sem verði 1. gr., orðist svo:
Á eftir 2. gr, laganna komi ný grein, sem orðist svo: Nú verður búvöruframleiðsla meiri en þörf er fyrir á innlendum markaði og ekki fást erlendir markaðir, sem viðunandi teljast, fyrir það sem umfram er að mati Framleiðsluráðs og landbrn., og eru þá Framleiðsluráði að fengnu samþykki fulltrúafundar Stéttarsambands bænda og staðfestingar landbrh. heimilaðar eftirfarandi tímabundnar ráðstafanir
a) Að ákveða mismunandi verð á búvöru til framleiðenda. Í því sambandi er m. a. heimilt að ákveða framleiðendum fullt grundvallarverð fyrir ákveðinn hluta framleiðslunnar, en útflutningsverð fyrir það sem umfram er.
Að greiða með samþykki ríkisstj. hluta af niðurgreiðslum til framleiðenda í samræmi við framleiðslumagn allt að ákveðnu marki, en síðan stiglækkandi eftir því sem framleiðsla vex þar fyrir ofan. Heimilt er að ákveða rétt frumbýlinga í samræmi við bústofn þeirra.
Að innheimta framleiðslugjald til verðjöfnunar, sem má vera mishátt eftir bústærð ef ástæða þykir til. Réttur þeirra, sem hefja búskap, draga saman búvöruframleiðslu eða hætta búskap, skal tryggður með ákvæðum í reglugerð.
Heimilt er að nota samtímis ofangreindar heimildir. Söluaðilum er skylt að halda eftir af greiðslum til framleiðenda þeirri fjárhæð af andvirði innlagðrar búvöru, sem Framleiðsluráð ákveður hverju sinni vegna framkvæmdar ofangreindrar heimildar, og standa skil á þeim fjárhæðum til Framleiðsluráðs. Framleiðsluráð ákveður gjalddaga vegna þessara heimilda.
b) Að leggja sérstakt gjald á innflutt kjarnfóður. Gjaldið má vera allt að 100% á innkaupsverð vörunnar. Framleiðendur búvöru á lögbýlum og aðrir, sem hafa meiri hluta tekna sinna af búvöruframleiðslu, skulu án þess að greiða gjaldið fá tiltekið magn kjarnfóðurs miðað við framtalið magn afurða og bústofn á skattframtali, samkv. nánari ákvæðum í reglugerð.
Skattstjórar skulu fyrir 1. júní ár hvert ókeypis og ótilkvaddir gefa Framleiðsluráði upp í því formi, sem það ákveður, afurðamagn og bústofn á hverju lögbýli og hjá öðrum framteljendum, sem hafa meiri hluta tekna sinna af landbúnaði. Einnig er þeim skylt að veita aðrar upplýsingar, sem nauðsynlegar eru í þessu sambandi, eftir sérstakri kröfu Framleiðsluráðs. Ákvarðanir, sem varða gjaldtöku af kjarnfóðri, skulu teknar af fulltrúafundi Stéttarsambands bænda og vera háðar samþykki landbrh.
Sýslumenn, bæjarfógetar og í Reykjavík tollstjóri innheimta gjaldið við innflutning.
Sé ákvörðun tekin um að fella niður kjarnfóðurgjald, sem lagt hefur verið á samkv. framangreindri heimild, skal endurgreiða það, sem innheimt kann að hafa verið af birgðum sem til eru þegar niðurfelling er ákveðin. Á sama hátt skal taka gjald af birgðum söluaðila í upphafi gjaldtímabils.
Innlendir aðilar, sem framleiða fóðurmjöl, skulu senda Framleiðsluráði ársfjórðungslega skrá yfir alla sölu á þeirri framleiðslu innanlands. Skal tilgreina hverjir kaupendur eru, heildarmagn til hvers aðila og einingarverð.
c) Gæsla og ráðstöfun þess fjár, sem innheimtast kann samkv. heimildum þessarar greinar, skal vera í höndum Framleiðsluráðs landbúnaðarins.
M. a. er heimilt að verja því til þess að greiða verðbætur til þeirra, sem minnka búvöruframleiðslu sína í því skyni að draga úr óhagkvæmri framleiðslu, enda náist samkomulag um að ríkissjóður leggi fram a. m. k. jafnháa fjárhæð, svo og til að jafna halla, sem verða kann á útflutningi milli söluaðila.
Gjöld þessi skulu ekki leiða til hækkunar á búvöruverð'i að svo miklu leyti sem fjármagninu er varið til að jafna söluverð búvara milli framleiðenda.
Rísi ágreiningur um atriði, sem falla undir þessa grein, skal hann lagður fyrir nefnd 5 manna til úrskurðar. N. skipa tveir fulltrúar Stéttarsambands bænda, tveir fulltrúar Búnaðarfélags Íslands og formaður tilnefndur af landbrh.
Landbrh. setur reglugerð um framkvæmd heimilda, er felast í þessari grein, að fengnum till. Framleiðsluráðs landbúnaðarins og fulltrúafundar Stéttarsambands bænda.
3. Við 3. gr. Greinin falli niður.
4. Aftan við frv. komi ný gr., sem verði 2. gr. og orðist svo:
Lög þessi öðlast þegar gildi.
5. Aftan við frv. komi svofellt ákvæði til bráðabirgða: Fram til þess tíma, er tekist hefur að afla nauðsynlegra gagna, er heimilt að gjald samkv. b-lið verði lagt á allt kjarnfóður, en endurgreiðist síðan eftir ákvæðum b-liðar.“
Það hefur nú sýnt sig, að það eru ákaflega skiptar skoðanir um þetta mál meðal bænda í landinu. En um eitt má þó segja að þeir séu sammála, og það er að það verði að gefa Stéttarsambandinu heimildir til þess að hafa stjórn á landbúnaðarframleiðslunni. Það kom fram líka í landbn., að menn höfðu ákaflega skiptar skoðanir um lausn þessara mála, enda hefur það tekið sinn tíma að fá samstöðu um þessar till., og þó geri ég ráð fyrir að flestir, sem eru í landbn., mundu hafa haft þær á annan veg ef þeir hefðu getað sjálfir ráðið því. En þannig er það oft, að til þess að reyna að komast að samkomulagi verða allir að slá af.
Ég kemst ekki hjá því, vegna bæði fyrri umr. hér á Alþ. og enn fremur vegna blaðaskrifa, að minnast aðeins á umsagnir sem ég gerði ekki í framsöguræðu minni, hvað kom fram t. d. í umsögnum búnaðarsambandanna í hinum ýmsu héruðum. Það kom fram í umr., að það hefði komið umsögn frá Austur-Húnvetningum og Skagfirðingum, ákaflega ítarleg umsögn. En það er mikill misskilningur. Ef þeir hafa sent frá sér ítarlega umsögn hefur hún farið eitthvað annað en í hendur landbn. Alþ. Af þessu tilefni tel ég rétt að ég lesi þessa umsögn, því að hún hljóðar þannig, með leyfi forseta:
„Sameiginlegur fundur stjórnar búnaðarsambandanna í Austur-Húnavatns- og Skagafjarðarsýslum, haldinn í félagsheimilinu, Blönduósi, 9. janúar 1979, mælir eindregið með því, að Framleiðsluráði landbúnaðarins verði veitt víðtækari heimild til stjórnunaraðgerða í framleiðslu- og verðlagsmálum en nú er lagaheimild fyrir. Því skorar fundurinn á Alþ. og landbn. þess að hraða afgreiðslu frv. ríkisstj. um breytingar á lögum um Framleiðsluráð landbúnaðarins, 125. mál yfirstandandi Alþingis, og lögfesta þessar breytingar sem fyrst þegar Alþ. kemur saman að loknu jólaleyfi.“
Undir þetta skrifa 7 menn. Ég verð að segja það, að ég tel þetta ekki ítarlega umsögn, og því miður voru sumar umsagnirnar ekki ítarlegri en þessi. En svo voru umsagnir frá nokkrum aðilum, eins og ég gat um í ræðu minni við 2. umr., sem tóku málið fyrir mjög ítarlega
Eins og ég gat um við fyrri umr. voru nokkuð margir aðilar sem lögðu áherslu á það, þrátt fyrir niðurstöðu sjömannanefndar, að tekið yrði upp svokallað kvótakerfi — magnkerfi — í sambandi við lausn þessara mála. Í öðrum umsögnum, eins og t. d. frá Búnaðarsambandi Kjalarness, kemur fram, að það hefur ekki trú á að það frv., sem lagt var fram fyrir jólin, muni óbreytt leysa þann vanda sem því er ætlað. Ég vil líka taka það fram vegna blaðaskrifa og ummæla hér á hv. Alþ., að það voru ekki Eyfirðingar einir sem lögðu til að þetta magnkvótakerfi yrði upp tekið. Það voru líka Suður-Þingeyingar, það voru Strandamenn, það voru Borgfirðingar. Það voru í raun og veru flest þau búnaðarsambönd sem fjölluðu ítarlega um málið. Það hefur líka komið fram í umr. á Alþ., að þetta kvótakerfi sé í raun og veru sama og verðjöfnunargjald. En þetta er auðvitað mikill misskilningur. Það er líka þess vegna sem þessi búnaðarsambönd leggja á það áherslu, að þetta magnkvótakerfi sé tekið upp. Það er heimild í lögum að taka upp verðjöfnunargjald, en munurinn á þessu tvennu er sá, að framleiðandinn veit fyrir fram, hvað mikið magn hann má framleiða, og hagar framleiðslu sinni eftir því. Sé um verðjöfnunargjald að ræða verður hann að borga verðjöfnunargjald af allri sinni framleiðslu. Það er allt annað að vita það t. d. fyrir fram, að maður fær fullt verð fyrir við skulum segja 50 þús. lítra af mjólk, heldur en þurfa eftir á að borga verðjöfnunargjald af allri sinni framleiðslu.
Það getur auðvitað ekki verið neitt skynsamlegt markmið að leggja skatt á framleiðslu- eða rekstrarvörur bænda. Það er með þetta í huga sem margir bændur vilja fara aðra leið. Það kemur líka í ljós í þessum umsögnum, að þrátt fyrir till. sjömannanefndar kemur það ákveðið fram hjá fjórum búnaðarsamböndum, að þau vilja fara þessa leið. Það koma líka í flestum umsögnunum mótmæli gegn því að leggja flatan skatt á kjarnfóður. En þeir, sem hafa athugað þessi mál og hugsað þau til botns, hafa séð að það er auðvitað hægt að stjórna framleiðslunni með því að hafa kjarnfóðurkvótann nógu lítinn. En það var aldrei ætlunin. Ætlunin var að stjórna þessu fyrst og fremst með magnkvótanum, en það væri miðað við skynsamlega notkun fóðurbætis, því að í sjálfu sér er erfitt að fara þessa leið í sambandi við fóðurbætinn nema taka magnkvótafyrirkomulagið upp. Og það getur sýnt sig núna, þegar hafísinn fer að herja á, að aðstaða manna til búskapar í landinu getur orðið með misjöfnum hætti á þessu ári af þeim ástæðum.
Ég vonast til að þessar till. verði nú samþykktar og hægt verði að ganga frá þessu máli fyrir páska, þannig að Stéttarsambandið og þeir aðilar, sem um þetta þurfa að fjalla, geti farið að huga að því. Hins vegar vil ég taka það fram, sem kom fram hjá mér í sambandi við 2. umr., að það er í sjálfu sér ákaflega erfitt að semja till. um þetta öðruvísi en það sé samtímis gerð reglugerð um framkvæmdina á þessum málum. Og landbn. voru einmitt að fjalla um það, hvernig reglugerðarákvæði þyrftu að vera í sambandi við ýmis atriði í framkvæmdinni, ef magnkvótinn yrði tekinn upp. Það var búið að setja nokkur atriði inn í brtt., en var fallið frá því að setja þau inn í lög, en ákveðið að gera till. að þau yrðu frekar tekin upp í reglugerð. Mér þykir rétt að lesa upp nokkur atriði sem var rætt um, bæði eftir ábendingu frá Stéttarsambandi bænda og enn fremur komu upp hjá einstökum mönnum í nefndinni.
Það var t. d. að ákveða megi að skerðing sé engin eða hlutfallslega minni hjá bændum sem hafa ekki skilyrði til að ná meðalbrúttótekjum verðlagsgrundvallarbúsins, t. d. vegna bústærðar. Heimilt er að ákveða frumbýlingum kvóta með hliðsjón af því búvörumagni, sem framleitt hefur verið á viðkomandi jörð, og þörfum ábúenda til eðlilegrar afkomu í hlutfalli við aðra framleiðendur. Einnig er heimilt að hafa sérstakan kvóta fyrir hverja búgrein, ef það þykir hagkvæmara miðað við markaðsskilyrði fyrir framleiðsluvörur viðkomandi búgreinar eða til að auðvelda uppgjör á verði til bænda. Sé þessi heimild notuð og síðan kemur í ljós að hlutföll á milli framleiðslumagns einstakra búgreina hjá framleiðendum með blönduð bú hafa verulega breyst, þá er heimilt að taka tillit til þess við uppgjör þannig að það raski ekki heildarrétti hvers framleiðanda. Ef búvöruframleiðandi, sem býr á lögbýli, gerir um það samkomulag við Framleiðsluráð að draga saman framleiðslu sína umfram það sem kvóti hans mælir fyrir um, þá er heimilt að veita honum viðbótarkvóta það ár allt að því marki sem samdrættinum nemur. Nú hættir ábúandi á lögbýli búskap og á hann þá rétt á að kvóti hans breytist þannig að verðskerðing á heildarinnleggi hans verði hlutfallslega sama prósenttala og gildir í viðkomandi búgreinum þegar innleggið á sér stað.
Fleiri atriði voru rædd í n., sem ég sé ekki ástæðu til að ræða frekar um hér, en þetta er sýnishorn af hugleiðingum og það sem var sett á blað í sambandi við framkvæmd á þessu máli.