04.04.1979
Efri deild: 76. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3836 í B-deild Alþingistíðinda. (3021)

218. mál, landhelgi, efnahagslögsaga og landgrunn

Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Allshn. hefur fjallað um þetta frv. Það er unnið af sérfræðingum utanrrn. N. varð sammála um að leggja til að það verði samþykkt með lítils háttar breytingu, sem er nánast orðalagsbreyting. Hún er um að tiltekið orð falli niður úr texta frv.