04.04.1979
Efri deild: 76. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3836 í B-deild Alþingistíðinda. (3023)
244. mál, hvalveiðar
Sjútvrh. (Kjartan Jóhannsson):
Herra forseti. Þess gerist ekki þörf að mæla fyrir þessu frv. með langri ræðu. Eins og fram kemur í aths. er aðalástæðan fyrir flutningi þess sú, að refsiákvæði hvalveiðilaganna eru orðin algerlega úrelt, enda verið óbreytt í 30 ár. Það þarf væntanlega ekki miklar umr. um það, að sektir að fjárhæð 1000–100 000 kr. hafi ekki sérstök varnaðaráhrif og alls ekki hin sömu nú og árið 1949. Sjálfsagt væri löngu búið að breyta þessum refsiákvæðum ef á þau hefði reynt fyrr en s. l. sumar, en þá var í fyrsta sinn ákært til refsingar fyrir brot á lögunum. Þar var um að ræða norskan hrefnuveiðara sem staðinn var að ólöglegum hrefnuveiðum í íslenskri fiskveiðilandhelgi. Hlaut skipstjórinn, segi og skrifa: 50 þús. kr. sekt og 45 daga fangelsi í samræmi við hin gömlu refsiákvæði. Fangelsinu getur hann losnað undan með því að vísa á tryggingarfjárhæð, 1 millj. kr., sem honum var gert að inna af hendi. Þá var aðeins gerð upptæk ein hrefna sem hann var talinn sannur að að hafa skotið í íslenskri fiskveiðilögsögu, en báturinn var að sögn að koma af Grænlandsmiðum og var hlaðinn hrefnukjöti sem var mörgum sinnum verðmætara en sekt, tryggingarfé og andvirði upptæks afla til samans. Hinn norski skipstjóri áfrýjaði ekki þessum dómi til Hæstaréttar, vildi una honum og undi honum líklega vel, og er hætt við að þessi væga refsing hafi ekki orðið honum né öðrum til varnaðar, heldur jafnvel frekar til freistingar að endurtaka ólöglegar hvalveiðar hér við land. Verður auðvitað að reyna að koma í veg fyrir slíkt og því er þetta frv. flutt.
Hér er gert ráð fyrir að sektarfjárhæðir séu hækkaðar verulega og verði í samræmi við sektarákvæði laga nr. 81/1976, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Ættu að vera augljós rök til þess að hafa a. m. k. jafnhá refsiviðurlög við ólöglegum hvalveiðum og ólöglegum fiskveiðum. Sektir eru hér miðaðar við gullkrónur, eins og tíðkast hafa í fiskveiðilögum, og eins og þar er gert ráð fyrir að afli skips í veiðiferð sé gerður upptækur ef skip er staðið að broti, en ekki bara sá hluti aflans sem hægt er að sanna að sé ólöglega tekinn. Um þessi atriði öll vísast til aths. við frv. Þar er einnig gerð grein fyrir 1. gr., sem er ætlað að taka af allan vafa um að hvalveiðilögin taki til fiskveiðilandhelginnar, en í gildandi lögum stendur orðið „landhelgi“, enda var ekki gerður greinarmunur á þessu tvennu þegar lögin voru sett árið 1949.
Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri, en vænti þess, að frv. þetta hljóti skjóta afgreiðslu og verði sem fyrst afgreitt, og ég óska eftir því, að þessu máli verði vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.