04.04.1979
Efri deild: 76. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3841 í B-deild Alþingistíðinda. (3035)

22. mál, Framkvæmdasjóður öryrkja

Alexander Stefánsson:

Herra forseti. Ég tel mig vera einn þeirra sem bera mjög fyrir brjósti málefni þeirra þjóðfélagsþegna, sem hafa orðið fyrir áföllum í lífinu eða hafa skerta starfsgetu eða möguleika, og vilja aðgerðir í þeim málum. Ég hef á yfirstandandi þingi reynt að hafa nokkur áhrif í þessa átt með því m. a. að reyna að rétta hag þeirra, sem eru öryrkjar, í sambandi við nauðsynleg tæki þeim til handa, þjóðfélagið létti af þeim gjöldum. Einnig hef ég lagt áherslu á það, að tryggingalöggjöfin — almannatryggingar sem við erum mjög stoltir af, verði tekin til gaumgæfilegrar endurskoðunar þannig að hún komi að þeim notum sem henni er ætlað. Það mætti tala langt mál um það, hversu mjög skortir á að svo sé, og þeir, sem viðurkennt er að þurfa á almannatryggingum að halda, fá alls ekki þann stuðning þar sem þeim ber með réttu og ætti að vera sjálfsagt mál í okkar þjóðfélagi.

Ég vil segja það hér, að ég ber mikið traust til þess að sú ríkisstj., sem ég styð, beiti sér nú í alvöru fyrir því að almannatryggingalögin verði endurskoðuð frá grunni og reynt að koma til móts við þá þegna þjóðfélagsins sem þurfa á samhjálp að halda, nú loksins verði staðið þannig að endurskoðun laganna að þau spanni yfir það svið sem þeim er ætlað.

Ég hef í þessum umr. öllum einmitt bent á það mál sem hér hefur verið minnst á, þ. e. málefni þroskaheftra, og ég hef skorað á félmrh. að leggja fram frv. að heildarlöggjöf um málefni þroskaheftra sem mér er persónulega kunnugt um að hefur legið á borði í rn. hans frá því í lok desembermánaðar s. l. Ég fékk strax í upphafi ljósrit af þessu frv. frá þeirri n. sem samdi það, en ég tel ekki ástæðu frekar nú en áður til að fara að telja upp þau ákvæði sem þar eru. En ég vil taka undir það sem kom fram hjá hv. 3. þm. Austurl., að ég vænti þess, að þessi lög komi á borð þm. nú næstu daga. Ég hef haldið því fram, eftir að ég sá frv. sem hér er til umr., að það hefði verið full þörf á því að tengja umr. og athugun á þessu frv. einmitt við það lagafrv., því að það fara saman í því lagafrv. og þessu frv. vissir málaþættir sem hlýtur að verða að skoða í samhengi. Þess vegna vil ég segja það, að ég vona að það verði ekki margir dagar þangað til það frv. kemur á borð okkar svo hægt verði að athuga það í þeirri n., sem fjallar um þetta frv., hvort ekki sé nauðsynlegt að gera stærra átak í þessum málum en jafnvel hér kemur fram til þess að tryggja framgang þessara mála sem við hljótum, allir þm., að vera sammála um að sé brýn nauðsyn að gert verði.

Ég er einn af þeim sem draga í efa að markaðir tekjustofnar, sem í frv. þessu eru lagðir til, séu sú framtíð í þessum málum sem við eigum að stefna að. En ég viðurkenni þörfina á skjótum úrræðum í þessum efnum, og ef sú staða kemur upp að ekki verður hægt að marka ákveðnari stefnu en til þessa hefur verið gert af stjórnvöldum nú á þessu þingi, þá mun ég endurskoða afstöðu mína til markaðra tekjustofna að þessu leyti. Ég hef þá skoðun, að eftir að hafa lesið það frv. um málefni þroskaheftra, sem ég vænti að verði lagt fram hljóti menn að átta sig á því, að hér fara mál saman. En að öðru leyti er ég fyllilega sammála öllu því sem kemur fram í rökstuðningi fyrir þessu máli. Ég tel að þetta sé eitt af þeim málefnum sem má ekki lengur dragast að taka á raunhæft hér á hv. Alþ., um leið og ég legg aftur áherslu á þá skoðun mína, að það megi ekki heldur dragast lengur að gera almannatryggingar þannig úr garði að þær þjóni því hlutverki sem þeim er ætlað og þær, eiga að sinna í nútímaþjóðfélagi.