04.04.1979
Efri deild: 76. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3858 í B-deild Alþingistíðinda. (3050)

247. mál, Rafmagnseftirlit ríkisins

Þorv. Garðar Kristjánsson:

Herra forseti. Ég stend aðallega upp og tek til máls til þess að fagna frv. því sem lagt hefur verið fram og hér er til umr. Mér er málið nokkuð skylt, svo sem fram kom í ræðu hæstv. iðnrh. Þetta frv. er svo til í öllum atriðum eins og það frv. sem skipulagsnefnd orkumála skilaði til hæstv. ráðh. í nóv. s. l. Ég tel að það hafi mikla þýðingu fyrir raforkumálin í landinu að frv. verði samþ. Með frv. er allmikið breytt um skipulag þessara mála, eins og fram kom í ræðu hæstv. ráðh. Það á að efla þá þýðingarmiklu starfsemi sem Rafmagnseftirliti ríkisins er ætlað að hafa með höndum.

Ég hef þó einn fyrirvara á afstöðu minni til þessa frv. Það varðar afstöðu til eins atriðis. Í því efni er breytt frá till. þeirri sem skipulagsnefnd orkumála gerði. Í till. skipulagsnefndar orkumála var gert ráð fyrir að tekjustofnar Rafmagnseftirlits ríkisins væru óbreyttir frá því sem verið hefur og þ. á m. sá tekjustofn sem er fólginn í því að eigendur raforkuvera og rafveitna skuli árlega greiða til Rafmagnseftirlits ríkisins gjald af heildartekjum þeirra af raforkusölu. Þetta gjald hefur verið og er nú 1% af heildartekjum af raforkusölunni, en frv. gerir ráð fyrir að það megi vera allt að 11/2%. Ég þykist reyndar vita það, að hvaða stofnun sem er þykir gott að fá meiri tekjur og hafa meiri peninga handa á milli en verið hefur, og Rafmagnseftirlit ríkisins er engin undantekning frá því. Og oft er það þannig, að full þörf er á því að auka tekjur hinna ýmsu þjónustustofnana ríkisins. En við verðum líka að leitast við að gæta hófs í þessum efnum, og ég leyfi mér að segja ekki síst á tímum eins og þeim sem við nú lifum og þarf ekki að fjölyrða um. Ég bendi á að tölulega aukast auðvitað þessar tekjur stöðugt með aukinni dýrtíð. 1978 voru tekjur af þessu gjaldi 110 millj. kr. og þetta ár eru þær áætlaðar 170 millj. kr. Þarna er um allverulega upphæð að ræða, og við í skipulagsnefnd orkumála töldum að ekki væri ástæða til þess að hækka heimild til gjaldtöku þeirrar sem hér um ræðir.

Í frv. eru einnig aðrar heimildir og aðrir tekjustofnar til Rafmagnseftirlits ríkisins. Ef það kemur nú í ljós frekar en orðið er að á skorti tekjur til Rafmagnseftirlits ríkisins til þess að það geti sinnt verkefni sínu sem skyldi, þá legg ég til að lögð verði áhersla á að hagnýta þann tekjustofn, sem er í 3. tölul. 9. gr. frv. og er þar eins og hann er í gildandi lögum. En þar segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Þeir, sem flytja inn til landsins eftirlitsskyld rafföng og hluta þeirra eða framleiða þau innanlands, greiði til eftirlitsins gjald, sem miðast við innkaupsverð þeirra eða söluverð þeirra frá innlendum framleiðanda. Má gjald þetta nema allt að 3/4% af verðinu.“

Þannig hljóðar þessi grein frv. og ákvæðið er í gildandi lögum. Mér er kunnugt um að það hafa orðið nokkrir misbrestir á því, að ákvæði þessu væri beitt til tekjuöflunar fyrir Rafmagnseftirlit ríkisins. En við í skipulagsnefnd orkumála töldum þó að málið væri þess eðlis að ekki væri ástæða til að fella þennan tekjustofn úr lögunum. Ég sé að hæstv. ráðh. hefur ekki heldur séð ástæðu til þess. Og fyrst hann sér ekki ástæðu til þess, þá ætla ég að hann muni vilja freista þess að framkvæma þetta ákvæði. Ef svo er þykir mér minni ástæða til þess að hækka heimildina í 1. tl. greinarinnar.

Ég skal ekki fjölyrða frekar um þetta. Ég kvaddi mér hljóðs fyrst og fremst til þess að fagna þessu frv. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir að hafa lagt það fram og heiti því stuðningi.