05.04.1979
Sameinað þing: 79. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3943 í B-deild Alþingistíðinda. (3081)

40. mál, bann við kjarnorkuvopnum á íslensku yfirráðasvæði

Ragnhildur Helgadóttir:

Herra forseti. Ég kemst ekki hjá því að lýsa furðu minni yfir því ráðslagi að ræða till. um mikilvægt utanríkismál að fjarstöddum hæstv. utanrrh. og formanni utanrmn. Þeim mun furðulegra er það að þeir flokksmenn, hæstv. forseti Sþ. og hv. 3. þm. Vestf., hafa hvorugur séð ástæðu til þess að þurfa eða biðja um að málinu yrði frestað þar til hæstv. ráðh. og hv. formaður utanrmn. verða viðstaddir. (KÓ: Ráðh. hafði engin forföll boðað. Það hefur nokkrum sinnum gerst í sögu Alþingis að þm., sem eru að ræða mikilvæg mál, óska eftir að ráðh. málaflokksins sé viðstaddur og þá því heldur þegar verið er að ræða mál sem hann getur gefið

Ég leyfi mér, herra forseti, að óska eftir að þessu máli verði frestað þar til hæstv. utanrrh. og hv. formaður utanrmn. verða viðstaddir.