05.04.1979
Sameinað þing: 79. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3944 í B-deild Alþingistíðinda. (3086)
40. mál, bann við kjarnorkuvopnum á íslensku yfirráðasvæði
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Ég vil aðeins að það kæmi fram og skal takmarka mjög mál mitt, að í upphafi þessa fundar hafði hæstv. utanrrh. tal af mér, tjáði mér að hann væri mjög önnum kafinn í rn. sínu, en ef þess yrði óskað að hann kæmi hingað niður eftir, annaðhvort af þm. eða hæstv. forseta, þá mundi hann samstundis verða við þeirri ósk. Ég hef tjáð hæstv. utanrrh. þær umr., sem fram hafa farið hér, og þá ákvörðun hæstv. forseta að fresta málinu um hríð, og hæstv. utanrrh. er á leiðinni hingað niður eftir til þings.