05.04.1979
Neðri deild: 72. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3966 í B-deild Alþingistíðinda. (3105)
7. mál, ráðstafanir vegna breytingar á gengi íslenskrar krónu
Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Hæstv. sjútvrh. lýsti skoðun sinni á þeim brtt., sem fyrir liggja, og lýsti jafnframt yfir að þá brtt., sem ég flyt við þetta frv. ásamt fjórum öðrum þm. varðandi framlag til Lífeyrissjóðs sjómanna, er hann tilbúinn að gera að eigin till., en fá hluta af þeirri upphæð til öryggismála sjómanna. Ég óska eftir að fá frekari skilgreiningu frá honum á því, hvað hann ætlast til með þeirri upphæð til öryggismála sjómanna. Ég hygg að ef það á að vera almennt til fiskiskipaflotans til að bæta öryggi fiskiskipa sé um hlægilega upphæð að ræða, en ef það á að standa undir n., þá nægir það til þess. En ég held að það sé alveg nóg fyrir um það, hvernig öryggismálum sjómanna á að stýra, svo að ekki þurfi á því að halda. Ef þetta á að vera til þess að gera, skip fullkomnara, öruggara og annað slíkt, þá er auðvitað um það að ræða að útvegsmenn eiga að fá lán til þeirra hluta í sínum stofnlánasjóði.
Ég sé ekki að það eigi beint að hverfa frá þeirri till. sem við flytjum, þess efnis, að sjómenn fái hluta af gengishagnaðinum og það óverulegan hluta til sérmála sinna. Það er ekki sjómanna að kosta breytingar á skipum í öryggisskyni. Það er ekki þeirra mál. Það er auðvitað útgerðar og það er stjórnvalda að sjá um að öryggismál séu í heiðri höfð, svo að ég skil ekki ástæðu til þessarar breytingar.
Hæstv. ráðh. virtist vera mjög glaður, af því að umr. var frestað fyrir nokkrum dögum, að hafa getað flett upp í lögum frá 1978 þar sem engu af gengishagnaði er varið nema til Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins og til að greiða til hagræðingar fyrir frystiiðnaði og létta stofnfjárkostnaðarbyrði eigenda fiskiskipa. Þetta er rétt hvað snertir þetta frv. um gengisbreytinguna og samþykkt frv. frá 1978, enda voru, ef ég man rétt, óverulegar birgðir sjávarafurða á þeim tíma í landinu miðað við það sem er nú. En ég vil minna á það, að 1974 er gert gengisbreyting um haustið og Alþ. gengur. frá samþykkt um ráðstöfun gengishagnaðar 19. des. 1974. Þar er tekið inn framlag til að verðbæta lífeyrisgreiðslur aldraðra, sem fá greiddan lífeyri úr Lífeyrissjóði sjómanna, að vísu smáupphæð þá, en við verðum líka að hafa í huga að verðgildi peninga hefur mjög hreyst á þessu tímabili, eða 15 millj., og til orlofshúsa sjómannasamtakanna 11 millj. kr. Síðan kemur aftur 1975 önnur gengishreyting; og þá eru teknar til Lífeyrissjóðs 75 millj. og til orlofshúsa sjómannasamtakanna 12 millj. Í báðum þessum gengisbreytingum er sinnt málefnum sjómannastéttarinnar og það með þessum hætti. Og ef við berum saman verðgildi peninga þá og nú, þá eru þessar till., sem við fimmmenningarnir flytjum, um síst hærri upphæð en varið var af gengishagnaði 1975, og frá ráðstöfun þess gengishagnaðar var endanlega gengið á Alþingi 14. maí 1975.
Hvað hefur aftur gerst núna? Það eru gefin út brbl., að mig minnir 6. sept. á s. l. ári og frv. um ráðstöfun gengishagnaðar er hér til 2. umr. í seinni deild 5. apríl 1979. Þar finnum við enga hliðstæðu, og þó að ráðh. fengi nokkra daga til viðbótar þá mundi hann ekki geta fundið neina hliðstæðu fyrir því, hversu erfiðlega, seint og silalega hefur verið gengið í að afgreiða þetta mál.
Það bendir margt til þess, að ráðh. hafi ekki haft mikinn hug á því að afgreiða þetta frv., hann hefði þá vafalaust knúið á um afgreiðslu málsins. Hann mun hafa viljað hafa hinn háttinn á: að geta ráðmennskast með þetta. Svo er talað núna um faglega úthlutun. Það þarf sem sagt einhverja fagmenn við úthlutun á hverri krónu. Fagmaðurinn í sambandi við Aldurslagasjóðinn er útgerðarmaður, einn af þm. Alþfl., sem er skipaður formaður n. Þetta er flokkurinn sem sagðist aldrei ætla að taka tillit til stjórnmálaskoðana eða hafði óbeit á því fyrir kosningar að blanda nokkurn tíma pólitík í nokkra slíka úfhlutun. En það má alls ekki fara í gegnum hendurnar á pólitískum embættismanni.
Af hverju er ráðh. á móti því að aldurslagatrygging Samábyrgðar Íslands hafi með þetta að gera eins og úthlutun fjár í gegnum aldurslagatrygginguna? Af hverju þarf að vera að stofna til þess að fá eitthvert annað fyrirkomulag til að stýra þessum málum?
Út af því sem hæstv. ráðh. sagði um ráðstöfun gengishagnaðar 1972, þá var fyrir mína tíð svo að hann er þar að vitna í ráðstöfun gengishagnaðar í tíð Lúðvíks Jósepssonar, hv. 1. þm. Austurl. Af því að hann er nú fjarstaddur og ég býst varla við að flokksmenn hans séu mjög kunnugir þessu máli, þá ætla ég að leyfa mér að gefa örlitla skýringu á því, að Lúðvík Jósepsson ráðstafaði ekki einni krónu af gengishagnaði gengisbreytingarinnar 1972. Hann lagði það fyrir þáv. ríkisstj., fyrri vinstri stjórnina, sem hann sat í. Eftirstöðvum þessa gengishagnaðar var ráðstafað í minni tíð og með samþykki ríkisstj. Ég vil alls ekki að það standi í þingtíðindum að þáv. sjútvrh. hafi upp á sitt eindæmi ráðstafað þessum gengishagnaði. Ég vil að hið sanna og rétta komi í 1jós. Og ég vil líka taka það fram, að ég ráðstafaði aldrei einni krónu við þær gengisbreytingar, sem áttu sér stað i tíð fyrrv. ríkisstj., nema bera það undir ríkisstj. og fá samþykki hennar hverju sinni hvernig þessu fjármagni yrði ráðstafað. Ég taldi ekki vera í mínum verkahring annað en gera till. um það til ríkisstj. M. a. var eftirstöðvum gengishagnaðarins frá 1972, 1974 og 1975 varið til þess að stofna deild við Fiskveiðasjóð til lána til hagræðingar í fiskvinnslu og það var gert með samhljóða samþykki þáv. ríkisstj. Ég tel fyrir mitt leyti að þó að sjútvrh., hver sem hann er, fari auðvitað fyrst og fremst með þessi mál og marki þar stefnu, þá eigi ekki einn maður að taka sér vald í hendur að ráðstafa slíku einn, heldur auðvitað bera það undir samráðh. sína í ríkisstj. Það gerði ég, og ég hef séð varðandi eina greiðslu, af gengishagnaði 1972, að það gerði fyrirrennari minn í starfinu einnig.
Hæstv. ráðh. sagði að með þessari brtt., sem við fimm þm. flytjum, væri verið að minnka það fjármagn sem færi annað. Það er alveg rétt. Það auðvitað lækkar um sömu upphæð sem brtt. segir til um. En við skulum líka líta á það, að samkv. áætlun Þjóðhagsstofnunarinnar fyrir gengisbreytinguna i sept. á s. l. ári er gert ráð fyrir að inn í gengismunarsjóð komi 5800–6000 millj. kr. í hreinan gengismun miðað við 15% gengisfellingu. Þessi áætlun þótti allmyndarleg, enda voru miklar birgðir sjávarafurða þá í landinu af ýmsum ástæðum sem ég ætla ekki að fara að lengja tímann með að nefna. En eins og ég gat um þegar ég ræddi þetta mál í byrjun þessarar umr. eru komnar inn í febrúarlok hvorki meira né minna en 9340 millj. Þar frá dragast tæpar 1750 millj. vegna leiðréttinga, flutningskostnaðar o. fl., sem 4. og 5. mgr. 2. gr. í þessum lögum gera ráð fyrir, þannig að hreinn gengismunur er kominn 26. febr. upp á 7594 millj., eða um 1600–1800 millj. kr. hærri upphæð en Þjóðhagsstofnun áætlaði þegar gengisbreytingin var gerð. Og það, sem við flytjum till. um, er að 200 millj. af þessu verði varið til sjómanna.
Út af þeim orðum sem hæstv. ráðh. sagði, að lífeyrissjóðirnir væru sterkari nú, þá eru þeir sterkari að krónutölu, það er mér fullkomlega ljóst. En þeir eru sennilega ekkert sterkari en þeir voru 1974, nema síður sé, miðað við þá miklu verðbólgu sem er, ef hér væri um fullkomlega verðtryggða sjóði að ræða, svo að þessi upphæð, sem við leggjum til að fari til lífeyrissjóðanna, er síst hærri en var í þessum tveimur tilfellum sem ég gat um á tímabili fyrrv. ríkisstj. Og ég tel jafnmikla þörf á að koma á þennan hátt til móts við sjómenn, því að eins og ég sagði síðast þegar ég ræddi þessi mál, þá er gengishagnaður, sem skapast af sjávarafurðum sem til eru þegar gengisbreyting er gerð, ekki eign þeirra sem eiga sjávarafurðir á síðasta stigi, eins og margir vilja halda fram og telja sig eiga það sem þeir hafa í höndum og hafa gengishagnaðinn einir. Þess vegna hefur ríkisvaldið á hverjum tíma, bæði allar fyrri stjórnir og eins núv. hæstv. ríkisstj., litið á þetta sömu augum. Ég tel að með þessu séum við að sýna að sjómenn eigi hlutdeild í gengishagnaðinum alveg eins og útgerðin, með því að bæta henni upp nokkuð þann skaða sem hún verður fyrir við gengisbreytingu vegna erlendra skulda í fiskiskipum. Svo kemur aftur hitt, sem er höfuðatriði þessa máls og höfuðráðstöfun gengishagnaðarins. Það er Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins. Þar er ekki með þessu frv. eða fyrri frv. verið að mismuna aðilum i sjávarútvegi, því að allir aðilar hljóta að hafa sama áhuga á því að efla Verðjöfnunarsjóðinn. Það eru bæði sjómenn, útgerðarmenn og fiskvinnsla og um það er enginn ágreiningur. Það, sem ég gagnrýni aftur, er hversu lítið hefur verið sótt á frá hendi ríkisstj. og sjútvrh., að Alþ. afgreiddi þessi mál, því að það er Alþingis að afgreiða þau, en ekki láta næstum því heilt þing líða og afgreiða þau með þeim hætti sem raun her vitni og var gagnrýnt bæði af mér og ekki síður af 1. þm. Austurl. þegar hann talaði fyrir þeim brtt. sem hann flytur ásamt þm. Garðari Sigurðssyni.