06.04.1979
Efri deild: 80. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3990 í B-deild Alþingistíðinda. (3130)
125. mál, Framleiðsluráð landbúnaðarins
Frsm. minni hl. (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Herra forseti. Ég held að ég þurfi ekki að vera langorður nú. Ég stend þó upp að gefnu tilefni. Hæstv. landbrh. vék að nokkrum atriðum í ræðu sinni áðan með tilliti til brtt. sem minni hl. landbn. leggur fram.
Mér virtist að hæstv. ráðh. gerði að sumu leyti frekar lítið úr þessum brtt. á þeirri forsendu að það væri um litlar breytingar að ræða frá frv. sjálfu. Ég skal nú ekkert vera að metast á um það. En hann sagði í þessu sambandi að í brtt. við 1. mgr. a-liðar 1. gr. væri um að ræða tvær heimildir. Það var helst að skilja að það hefði ekki verið fækkað neitt heimildum og það væri lítill munur á brtt. frá því frv. sem liggur nú fyrir. Ég held að þetta sé misskilningur, því að í frv., eins og það liggur fyrir, er talað um að það sé heimilt að ákveða mismunandi verð á búvörum til framleiðenda, m. a. með því að framleiðendur fái fullt grundvallarverð o. s. frv. Brtt. okkar er afdráttarlaus um þetta efni. Að vísu segir á eftir að enn fremur sé heimilt, ef þörf krefur, að innheimta verðjöfnunargjald sem megi vera mishátt. Þetta benti hæstv. ráðh. á og það er rétt að þetta stendur. En ég lít svo á, ef brtt. verður samþ., að þá beri löggjafanum að fara hina fyrri leið, og ef sú leið verður ekki farin, þá verði að færa sérstakar ástæður fram fyrir því. Þetta er munurinn, auk þess að sú leið, sem við flm. þessarar brtt. einskorðum okkur við, er, eins og ég benti á í ræðu minni áðan, að sjálfsögðu besta leiðin.
Hæstv. ráðh. sagði að 3. mgr. í brtt. okkar við a-liðinn hefði verið í frv. eins og það var upphaflega lagt fram, þ. e. a. s. sérstakar aðgerðir væru heimilaðar til þess að auka búvöruframleiðslu þar sem hún er of lítil fyrir neysluþarfir í einstökum landshlutum. Og mér skildist á hæstv. ráðh., að hann væri samþykkur efni þessarar brtt. Ég fagna því að svo er. En fyrst það er svo, finnst mér að honum mætti þykja þetta ákvæði mega vera að skaðlausu. Það skaðar a. m. k. ekki að samþ. það ef menn eru með þessu efnislega.
Hæstv. ráðh. vék nokkrum orðum að fóðurbætisskattinum. Ég sé ekki ástæðu til að fara sérstökum orðum um það. Ég veit ekki hvort hann hefur í raun og veru miklu meiri trú en ég á þeirri aðgerð, sem felst í ákvæðinu um skattinn. En ég tel þessa brtt. um skattinn til bóta, eins og ég færði rök að áður.
Þá er það síðasta atriðið sem ég vil víkja að. Það er brtt. okkar í minni hl. landbn., þ. e. 4. brtt. b, um að veita ríkissjóði heimild til þess að leggja fram nauðsynlegt fé til að greiða fyrir sölu á óverðtryggðri framleiðslu búvara á þessu verðlagsári og birgðum húsafurða. Ég fór nokkrum orðum um þetta í fyrri ræðu minni og hæstv. ráðh. vék að þessu. Hann taldi till. markleysu eina vegna þess að ekki væri gert ráð fyrir eða ekki bent á með hvaða hætti ætti að afla fjár til þess. Ég verð nú að segja það, að ég skil ekki þessa röksemdafærslu hjá hæstv. landbrh. Ég hefði talið að það væri betra fyrir hann að hafa þessa heimild, þ. e. a. s. að Alþ. hefði lýst yfir að það mætti verja fé úr ríkissjóði. Eftir slíka viljayfirlýsingu Alþingis og lögfestingu slíks ákvæðis væri miklu auðveldari eftirleikurinn þ. e. a. s. að afla fjár til þessa. Það eru ýmsar leiðir til þess að afla fjár til þessa, m. a. að taka lán, eins og hæstv. ráðh. hefur verið að tala um, en hefur ekki samstöðu um í ríkisstj. Það er hægt að gera þetta í gegnum fjáraukalög. Ég þarf ekki að telja þetta upp. Það er skrýtið að ráðh. skuli slá á útrétta hjálparhönd okkar í minni hl. í þessu efni.
Hv. 8. landsk. þm. taldi, að það væri lítill munur á þessum brtt. og frv., og sigldi þar í kjölfar hæstv. ráðh. Ég átti naumast von á því. En ég sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða frekar um það. Ég hef bent á, eins og augljóst er, að þarna er verulegur munur á.
Hv. 3. þm. Austurl. vék nokkuð að tali okkar um vettlingatök sem hefðu verið á frv., sem hér liggur fyrir, og gerð þess. Ég notaði ekki þetta orð fyrstur. En hann var að bera mér á brýn að ég hefði eitthvað farið ógætilega með þetta. Látum það vera. Ég held að það sé enginn vafi á því, að okkur hv. 3. þm. Austurl. og ýmsum öðrum, sem hér hafa talað, hafi fundist margt varhugavert við frv. Hv. 3. þm. Austurl. lét að því liggja, að þetta frv. væri hrófatildur og hrákasmíð, kannske vegna þess að það hefði verið teygt of langt í áttina til sjálfstæðismanna. Mér þykir þetta ósennilegt. En ég skildi þetta þegar ég heyrði svo í ræðu hv. þm., að honum var nokkuð í mun að geta sagt eða lét orð að því liggja að hann talaði kannske fullt eins vel fyrir hönd okkar sjálfstæðismanna og ég í þessu máli. Ég fagna því, ef hann er að nálgast okkur sjálfstæðismenn, og ég verð að segja það, að mér hefur ekki fundist ýkjamikið í umr. um þetta mál bera á milli okkar sjálfstæðismanna og hv. 3. þm. Austurl., svo ég tali ekki um hv. 4. þm. Norðurl. e. Og mér rennur það til rifja þegar ég heyri hjá þeim ágæta dreng það sem hann sagði í ræðu sinni áðan, að hann styddi þetta frv. með nokkrum trega. Það er ömurlegt hlutskipti að þurfa að ganga til verks með því hugarfari. Og hann bjóst við að það yrði nú ekki tjaldað nema til einnar nætur með þetta mál og það kæmi fljótt aftur fyrir þingið. Við skulum vona það, ef brtt. okkar sjálfstæðismanna verða ekki samþykktar, að málið komi aftur og við getum þá tekið upp, bæði hv. 4. þm. Norðurl. e. og hv. 3. þm. Austurl., tal okkar og umr. sem við höfum haldið uppi með allmiklum samhljóm á sameiginlegum fundum landbn. leggja d. á undanförnum vikum og mánuðum. Og ég vænti þess, þegar mér er litið á hv. 8. landsk. þm., að þeir Alþfl.menn geti átt samleið með okkur um þessi efni.