06.11.1978
Efri deild: 11. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 367 í B-deild Alþingistíðinda. (317)

62. mál, aðstoð við sveitarfélög vegna lagningar bundins slitlags á vegi í þéttbýli

Flm. (Hannes Baldvinsson):

Herra forseti. Ég hef ásamt 3. þm. Austurl. leyft mér að flytja svo hljóðandi till. til þál.:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að beita sér fyrir auknum stuðningi við sveitarstjórnir til að hraða lagningu bundins slitlags á vegi í þéttbýli. Stuðningurinn verði m.a. fólginn í hækkun á beinum fjárframlögum og útvegun aukins lánsfjármagns til framkvæmda.

Þá láti ríkisstj, undirbúa breytingar á löggjöf er fela í sér afnám takmarkana á afturvirkni heimildar til innheimtu gatnagerðargjalda og niðurfellingar söluskatts af kostnaði sveitarfélaga við snjómokstur af götum með eigin vinnuvélum.“

Í upphafi grg., sem fylgir þessari till., segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Í þeirri umr., sem fram fer þessa dagana um aðgerðir til að hraða lagningu bundins slitlags á hringveginn og aðra helstu þjóðvegi landsins, vill gjarnan gleymast vandinn við hið nærtækara og meira aðkallandi verkefni, sem er að ljúka við lagningu bundins slitlags á gatnakerfi í þéttbýli.

Víða er það verkefni reyndar nokkuð vel á veg komið, en í mörgum hinna smærri og fátækari sveitarfélaga bíða stórir og kostnaðarsamir áfangar óunnir, og verður vart séð að veruleg breyting verði þar á á næstunni. Árlega aukast einnig kvaðir á sveitarfélögin, sem takmarka ráðstöfunarfé þeirra til verklegra framkvæmda og þar með fjárveitingar til gatnagerðar. Fljótvirkasta fyrirgreiðsla ríkisvaldsins í þessum efnum hlýtur því að verða í beinum fjárframlögum og útvegun aukins lánsfjár til þessara framkvæmda.“

Í þessari till., sem hér liggur fyrir til umr., eru af hálfu flm. ekki gerðar beinar tillögur um aðgerðir af ásettu ráði. Ýmsar leiðir koma til greina í þeim efnum, svo sem aukin hlutdeild sveitarfélaga í bensínskatti og gúmmígjaldi eða bifreiðagjöldum yfirleitt.

Stjórnvöld hafa á undanförnum árum legið undir talsverðri gagnrýni fyrir það, að gjöld, sem innheimt eru af hálfu ríkisins vegna bifreiðaeignar og rekstrar landsmanna, komi ekki nægilega vel til skila í uppbyggingu vegakerfis í landinu, og vissulega má til sanns vegar færa að þessi gagnrýni eigi nokkurn rétt á sér. En vegna þess að umferðarþunginn er auðvitað mestur innan þéttbýlisstaðanna, þá fyndist manni eðlilegast, að aukin yrði hlutdeild sveitarfélaga í þessum bifreiðagjöldum. Enn fremur mætti taka til athugunar að auka þéttbýlisvegafé og hlutdeild sveitarfélaga í því og sömuleiðis að breyta reglum um úthlutun þéttbýlisvegafjár, taka t.d. mun meira tillit til ástands í sveitarfélögunum og þéttbýlisstöðunum heldur en að styðjast við þá reglu, sem nú er í gildi, að miða eingöngu við íbúafjölda þegar tekin er ákvörðun um deilingu þéttbýlisvegafjár, því eins og segir í grg. okkar flm., þá er ástandið mjög mismunandi innan hinna ýmsu sveitarfélaga.

Sum þeirra eru ágætlega á vegi stödd með að ljúka þessu verkefni, en önnur þannig í stakk búin, að ekki verður séð að á næstunni leysi þau þennan vanda af eigin rammleik, nema til komi stórkostlega aukin aðstoð og lánsfjármöguleikar.

Í sambandi við ákvörðun um skiptingu lánsfjár, sem ætlað er til lagningar bundins slitlags í þéttbýlisstöðum, verður að taka í ríkara mæli tillit til eðlilegs undirbúningskostnaðar en gert hefur verið fram að þessu. Lánsfjárákvarðanir eru, eins og háttað er í dag, bundnar við fermetrafjölda af bundnu slitlagi sem lagt er á hverju ári eða áættað er að leggja á hverju ári. En það er vitað, að þessum reglum þarf að breyta, vegna þess að um geysilega mismunandi mikinn undirbúningskostnað er að ræða hjá hverju sveitarfélagi miðað við aðstæður. Oft á tíðum þarf að standa í stórkostlegum jarðvegsskiptum og mjög dýrri undirbúningsvinnu, sem ekki er tekin með til útreiknings við ákvörðun um lánsfé, en er í mörgum tilfellum jafnvel dýrasti hluti framkvæmdanna, mun dýrari en það að ljúka við að leggja sjálft slitlagið.

Í till. okkar flm. eru þó beinar till. um tvö atriði sem getið er um í seinni hluta þáltill. Þessi atriði eru um breytingar á fyrirkomulagi um gatnagerðagjöld og heimild sveitarfélaga til innheimtu þeirra og sömuleiðis um breytingu á því hvimleiða ástandi sem hefur skapast við ákvörðun þeirra sem endanlega ákveða gjaldstofna til söluskatts. Þeir háu herrar hafa ákveðið að snjómokstur af götum sveitarfélaga skuli vera gjaldstofn til söluskatts. Það finnst okkur, sem í hinu snjóþyngstu héruðum landsins búum, ákaflega óeðlilegur gjaldstofn, að ekki sé meira sagt. Ég vil leyfa mér að vísa á ný til grg. sem till. fylgir, með leyfi forseta:

„Með setningu laga um gatnagerðargjöld var stigið skref í rétta átt til að ýta undir framkvæmdir við varanlega gatnagerð í þéttbýli, og víða hafa orðið á verulegar breytingar til batnaðar. En eins og áður sagði eru þó sveitarfélögin mjög misjafnlega á vegi stödd í þessum efnum, bæði vegna þess að framkvæmdir eru misjafnlega kostnaðarsamar vegna aðstæðna, og eins er um að ræða mjög mismunandi fjárhagslega getu til þess að sinna þessu verkefni. Takmarkanir á afturvirkni laganna um gatnagerðargjöld koma einnig mjög ójafnt niður á sveitarfélögunum og gera einstaklingum og fyrirtækjum mismunandi hátt undir höfði vegna þess ákvæðis að binda afturvirknina við 5 ár. Með því móti má segja að einstaklingar og fyrirtæki, sem hafa notið þeirra forréttinda að búa við götur sem lagðar eru bundnu slitlagi, lengri tíma en 5 ár, eru leystir undan þátttöku í því félagslega verkefni, sem gatnagerð og lagning bundins slitlags hlýtur að vera í hverju sveitarfélagi.“

Reynslan hefur einnig orðið sú, að finna má dæmi þess, að bæjarfélög, sem höfðu lagt í mikinn kostnað, áður en lögin voru sett, við að framkvæma lagningu bundins slitlags, hafa eftir að innheimta gatnagerðargjalda hófst ekki gert betur en að halda í horfinu á undanförnum árum, þ.e.a.s. að viðbótin við gatnakerfi þeirra, sem lagt er bundnu slitlagi, er ekki nema sem svarar árlegri aukningu gatnakerfisins.

Það er álit margra sveitarstjórnarmanna, og ég held að um það hafi verið fluttar till. hér á Alþ. áður, þó að ekki hafi þær náð fram að ganga, að þarna sé full þörf leiðréttinga og að afnumin verði takmörkun á afturvirkni réttarins til þess að innheimta svokölluð B-gjöld til gatnagerðar. Gjöld þessi eru talsvert þungar álögur á íbúa sveitarfélaganna, og það ýtir enn undir kröfuna um að þessar álögur verði samræmdar á þann hátt, að allir íbúar sveitarfélagsins verði skyldaðir til þess að taka á sig hlutdeild af kostnaði við þessar sjálfsögðu framkvæmdir á vegum sveitarfélaganna.

Við leggjum hins vegar til að það verði sett í vald sveitarfélaganna, hvers og eins, og þá náttúrlega tekið tillit til þess, hversu vel á vegi þau eru stödd við að leysa það verkefni að leggja götur sínar varanlegu slitlagi, þeim verði heimilað hverju um sig að breyta þessum takmörkunum um afturvirkni í reglugerðum sem þó verði bundnar af því að fá staðfestingu viðkomandi ráðherra.

Svo að ég víki aftur að ákvæðinu, sem við leggjum til að verði fellt niður, að innheimta söluskatt af kostnaði við snjómokstur í þéttbýli, þá langar mig enn á ný til að vísa til grg., með leyfi hæstv. forseta. Þarna er ekki um að ræða verulegar upphæðir, sem sköpum skipta varðandi umráðafé sveitarfélaganna til gatnagerðar eða fjárhagslega afkomu ríkissjóðs. En flm. þessarar þáltill. finnst ástæða til að ætla að nægileg óþægindi og aukakostnaður fylgi búsetu í snjóþyngstu héruðum þessa lands, þó að aðgerðir eins og snjómokstur af götum til að draga úr þessum óþægindum séu ekki notaðar sem gjaldstofn fyrir auknar álögur á viðkomandi sveitarfélög.

Ítrekaðar tilraunir forráðamanna sveitarfélaga til að fá söluskatt af snjómokstri felldan niður hafa ekki borið árangur og skattstjórar bera því við, að til þess skortir heimildir í lögum að fella söluskattinn niður. Við flm. teljum að þarna sé um slíkt réttlætismál að ræða að vart þurfi að eyða að því mörgum orðum og að tími sé kominn til að breyta lögum um söluskatt á þann veg, að heimilt sé að fella niður gjald af snjómokstri. Ef sú heimild er ekki þegar fyrir í lögum og um sé að ræða misskilning varðandi túlkun þeirra, sem leggja á söluskattinn, en sjálfsagt er að ganga að fullu úr skugga um það áður en farið er að breyta lögum.

Hér liggur reyndar fyrir á dagskrá í Ed. tillaga um niðurfellingu á söluskatti í fleiri tilfellum, og það mætti jafnvel gefa þm. tilefni til að ætla að veruleg ástæða væri til þess að taka lögin um söluskatt til heildarendurskoðunar og undanþiggja þá liði sem sjálfsagt er að séu undanþegnir söluskatti og framkvæmdin á innheimtu söluskatts komi ekki þannig út, að íbúum þessa lands sé verulega mismunað eftir búsetu. Um það held ég að ekki þyrftu að vera uppi neinar deilur.

Till., sem hér liggur fyrir til umr., er á engan hátt ætlað að draga úr áhuga manna á lagningu bundins slitlags á þjóðvegi þessa lands, sem mjög er nú á dagskrá, heldur er hugmyndin með flutningi þessarar till. fyrst og fremst að vekja athygli hv. alþm. og hæstv. ríkisstj. á því vandræðaástandi, sem víða er ríkjandi í varanlegri gatnagerð í þéttbýli utan Stór-Reykjavíkursvæðisins, og að full þörf er á aukinni þátttöku af hálfu ríkisvaldsins til að ráða bót á því. Þetta mál og þessi sjálfsagða réttlætiskrafa er liður í jöfnun byggðajafnvægis og aðgerðum til þess að draga úr aðstöðumun sveitarfélaga úti í dreifbýlinu. Hugmyndin, sem þarna býr að baki, er líka heilbrigðiskrafa. Að íbúum bæjarfélaga, sem búa við ófullkomið gatnakerfi, steðjar sívaxandi mengun í föstu, fljótandi og loftkenndu formi vegna síaukinnar umferðar um ófullkomnar götur.

Ég vil að lokum leyfa mér að láta í ljós ósk um, að þessi jafnréttistillaga hljóti fylgi hv. þm. til að ná fram að ganga, og leyfi mér að leggja til við hæstv. forseta, að þessari till. verði að umr. lokinni vísað til fjh.- og viðskn.