06.11.1978
Efri deild: 11. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 370 í B-deild Alþingistíðinda. (318)

62. mál, aðstoð við sveitarfélög vegna lagningar bundins slitlags á vegi í þéttbýli

Jón G. Sólnes:

Herra forseti. Í sambandi við þá þáltill., sem hér hefur verið lögð fram, held ég að það sé óhætt að fullyrða, að það muni vera almennur stuðningur við þá hugmynd sem felst í þessari þáltill. Allir viljum við þm. styðja og vinna að því, að hægt verði að hraða lagningu bundins slitlags á vegi í þéttbýli. Í því sambandi langar mig til að nefna, að mig minnir að á þinginu 1976 flyttum við, ég og núv. hæstv. forseti þessarar deildar, hv. 3. þm. Norðurl. e., frv. að beiðni bæjarstjórnar Akureyrar, en í því frv. var farið fram á að bæjarfélaginu yrði heimilað að leggja sérstakt fasteignagjald á allar fasteignir í bænum með því fororði, að því fé, sem þannig innheimtist yrði varið til þess að leggja bundið slitlag á vegi í kaupstaðnum. Að ósk um flutning þessa frv. um sérstakan fasteignaskatt á Akureyri stóð samhljóða, einróma samþykkt allra bæjarstjórnarfulltrúa Akureyrarkaupstaðar. Ég verð að segja það, að miðað við þær undirtektir, sem það frv. fékk í meðferð hins háa Alþingis, og endalok þess, sem urðu þau, að Alþ. sá sér ekki fært að verða við jafnalmennum óskum og þarna lágu að baki, þá hef ég nú ekki beinlínis trú á því, að það sé líklegt til árangurs í þessu máli að ætlast til að þess sé að vænta, að fá beina hækkun á fjárframlögum og útvegun aukins lánsfjármagns af hálfu hins opinbera í sambandi við þessi mál. (Gripið fram í.) Við skulum ræða það seinna. Ég vil einnig benda á í sambandi við þessi mál, að þó að ég hafi flutt og fylgt af heitum hug því frv., sem við hæstv. forseti þessarar deildar fluttum á slíkum tíma, sem var stutt með þeim rökum sem ég hef nú greint frá, þá hygg ég, að þrátt fyrir þá miklu breytingu til bóta sem hv. 4. þm. Norðurl. e. skaut hér fram í að orðið hefði á vali manna til þingsetu nú, leyfi gjörðir stjórnvalda í skattamálum ekki að frekar sé gengið út á þá braut að heimila bæjarfélögum, hversu mikill einróma vilji sem kann að vera þar á bak við, að fara þá leið sem bent var á í frv. okkar hæstv. forseta Braga Sigurjónssonar á sínum tíma. Og mér er mjög til efs, að samstaða muni t. a. m. vera innan bæjarstjórnar Akureyrar um að fara fram á heimild til slíks nú. Svo ógnvænleg þykir mér stefna núv. stjórnvalda í skattpíningarmálum, að ég held að það hafi orðið mikil breyting á hugarfari sveitarstjórnarmanna almennt um það, að þeir treystu sér ekki til að auka álögur á fasteignir fram yfir það sem nú er í gildi.

Þrátt fyrir góðan vilja sem ég efast ekki um að er fyrir hendi hjá þm. almennt, þá mun a.m.k. þessi tekjuöflunarleið, sem við höfðum í huga þegar við fluttum það frv. sem ég hef gert hér að umræðuefni, naumast vera fyrir hendi nú — eða það er mitt mat á málum — eins og skattpíningarstefnan er orðin hjá þjóðfélaginu af völdum hæstv. núv. ríkisstj. Ég held að staðreyndirnar séu þess vegna þær, því miður, að hv. flm. þessarar þáltill. muni komast að raun um að það er mun erfiðari róður nú að vinna að þessu mikla hagsmunamáli sem ég viðurkenni að er fyrir þéttbýlið að koma bundnu slitlagi á vegina.

Varðandi það að breyta úthlutun á svokölluðum þéttbýlisvegafé, þá hefur um meðferð þess fjár ríkt fullkomið samkomulag um það, að fyrst og fremst hefur því fé verið varið til þess að bæta aðalsamgönguæðarnar að og frá hlutaðeigandi þéttbýliskjörnum svo að ég held að það verði mjög erfitt að fá samstöðu um að breyta þeirri tilhögun.

Hins vegar vil ég í sambandi við þau ummæli, sem koma fram í grg. þeirri sem fylgir þessari þáltill., gera þá játningu, að mér kemur hreint og beint mjög ókunnuglega fyrir. Hef ég þó verið sveitarstjórnarmaður um alllangt tímabil, en dettur ekki í hug að rengja þá staðhæfingu sem hér kemur fram, að það sé innheimtur söluskattur af kostnaði sveitarfélaga við snjóruðning af götum með eigin vinnuvélum. Ég verð að segja það, að af kunnugleika mínum á bæjarmálum Akureyrarkaupstaðar finnst mér einhvern veginn einkennilegt ef það mál hefur aldrei skotið upp kollinum, að við höfum haft hug á því að fá úrbætur í sambandi við slíka innheimtu. Hvort slík innheimta hafi beinlínis ekki farið fram í sveitarfélagi mínu, Akureyri, það skal ég ekki segja um, en mér kemur þessi vitneskja mjög á óvart.

Ég get hins vegar tekið undir það með hv. flm., að þetta er náttúrlega atger óhæfa. Hins vegar verð ég þó einnig að viðurkenna, að það getur verið að ástæða sé til þess að endurskoða öll ákvæði um söluskatt og annað. En eftir því sem mér hefur verið tjáð af mönnum, sem eru sérfræðingar í sambandi við álagningu gjalda samkv. gildandi söluskattsreglum, er það sammála álit allra sem vegna bundins slitlags á vegi í þéttbýli. 372 um slík málefni fjalla, að það sé ákaflega erfitt í sambandi við framkvæmd slíkra laga með allar undanþágur, og ég get að vissu leyti skilið það, Í viðræðum og álítum allra hinna fróðustu manna sem fjölluðu um þau mál, bæði í tíð fyrrv. vinstri stjórnar, sem ríkti hér á árunum 1971–1974, og á tímabili síðustu fráfarandi ríkisstj., sem var á árunum 1974–1978, var mikið rætt um niðurfellingu á söluskatti af kjöti, og þá voru þessir vísu sérfræðingar á því máli, að slík niðurfelling væri vægast sagt ekki framkvæmanleg. En það er eitt af mörgu sem varð allt í einu hægt að framkvæma þegar núv. hæstv. ríkisstj. tók við.

Herra forseti. Ég vil með þessum fáu orðum, sem ég hef sagt hér, engan veginn leggja stein í götu þeirra hugmynda sem koma fram í þeirri þáltill. sem hér liggur fyrir. Aðeins vil ég benda á að mér er mjög til efs, að hægt verði að koma þessum málum í þann farveg að þetta verði framkvæmt með beinum fjarframlögum og útvegun aukins lánsfjármagns frá hinu opinbera. Ef um varanlegar úrbætur á að verða að ræða í þessum málum, þá hygg ég að það sé engin leið færari eða hentugri í þessum málum heldur en að sú leið sem getið var um í frv. því sem við hv. 4. þm. Norðurl. e. fluttum á þinginu 1976. En eins og ég sagði áðan, þá finnst mér allar aðstæður vera breyttar að því er snertir skattheimtu á borgara landsins, svo að mér er mjög til efs að nauðsynlegur stuðningur fáist við það innan hlutaðeigandi sveitarfélaga að fara þá leið nú.