23.04.1979
Neðri deild: 76. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4118 í B-deild Alþingistíðinda. (3218)
251. mál, Iðnlánasjóður
Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér hefur verið lagt fram um breyt. á lögum um Iðnlánasjóð, er efnislega um það að stofna skuli í Iðnlánasjóði lánadeild iðngarða er hafi þann tilgang að lána stofnlán til sveitarfélaga, félagasamtaka og einstaklinga sem reisa iðnaðatmannvirki í því skyni að efla íslenskan iðnað eða skapa með öðrum hætti starfsaðstöðu handa iðnfyrirtækjum sem greiða iðnlánasjóðsgjald.
Eins og fram kemur í grg. með frv. hafa hin síðari ár þróast hugmyndir um iðngarða sem reistir væru fyrir opinbert frumkvæði á. vegum ríkis eða sveitarfélaga og jafnvel félagasamtaka, en yrðu síðan leigðir til iðnfyrirtækja með hagstæðum kjörum sem gætu verið breytileg eftir aðstæðum. Gætu kjörin verið allt frá leiguundanþágu eða mjög vægri leigu til ungra og fjármagnslítilla fyrirtækja og upp í fulla leigu eða leigukaupkjör fyrir gróin fyrirtæki sem gætu borið fullan fjármagnskostnað. Mikilvægur þáttur iðngarða af þessari tegund er auk fyrrgreindra atriða sá, að reynt yrði að koma á fót margvíslegu samstarfi og sameiginlegri þjónustu meðal fyrirtækja í hverri slíkri miðstöð og stuðla að bættri aðbúð af hálfu sveitarfélaga til hagsbóta fyrir slík fyrirtæki. Gætu mörg smærri fyrirtæki þannig notið rekstrarhagræðis og aðbúnaðar sem aðeins stærri fyrirtæki njóta venjulega.
Ýmsar sveitarstjórnir, byggðadeild Framkvæmdastofnunar og fleiri aðilar hafa á undanförnum árum leitað eftir stuðningi við byggingu Iðngarða. Fyrir Alþ. liggja þáltill. um iðngarða og eflingu þjónustu- og úrvinnsluiðnaðar í sveitum, þingmál 5 og 12, og felst í þeim stuðningur við þetta mál.
Í reynd hefur Iðnlánasjóður enga möguleika haft til að lána sveitarfélögum til byggingar iðngarða, þar sem sjóðurinn veitir samkv. lögum forgang þeim fyrirtækjum, sem greiða eða koma til með að greiða iðnlánasjóðsgjald. Iðnlánasjóður hefur á seinustu árum ekki getað annað nema rúmlega þriðjungi lánsumsókna.
Ég vil víkja aðeins að efni frv. og einstökum greinum þess.
Eins og áður er greint frá og fram kemur í 1. gr. frv. er tilgangur þess að stofna í Iðnlánasjóði lánadeild iðngarða, er hafi þann tilgang að lána stofnlán til sveitarfélaga, félagssamtaka og einstaklinga, sem reisa iðnaðarmannvirki, í því skyni að efla íslenskan iðnað eða skapa með öðrum hætti starfsaðstöðu til handa fyrirtækjum sem iðnlánasjóðsgjald greiða samkv. 5. gr., enda öðlist þau á fullnægjandi hátt að mati stjórnar Iðnlánasjóðs leigu- og/eða kauprétt að þeirri aðstöðu eða mannvirkjum sem lánað er til.
Í þessari grein er fólgin öll sú breyting á lögunum um Iðnlánasjóð sem stefnt er að með frv. þessu. Heildarlögin um Iðnlánasjóð eru nr. 68 frá 1967, en á þeim hafa síðan fimm sinnum verið gerðar breytingar, árin 1968, 1971, 1973, 1974 og 1977. Samkv. 10. gr. gildandi laga um Iðnlánasjóð er það meginregla, að þeir aðilar, sem greiða iðnlánasjóðsgjald samkv: 5. gr. laganna, skuli að öðru jöfnu hafa forgang að lánum úr sjóðnum. Þar sem hins vegar sjóðnum hafa frá upphafi borist árlega fleiri lánshæfar umsóknir en umráðafé hans hefur gert kleift að sinna hefur þessi lagaregla þýtt að einungis þeir, sem greiða iðnlánasjóðsgjald, hafa fengið lán úr sjóðnum.
Með frv. þessu er ekki ætlunin að hverfa frá greindri lagareglu, heldur gera á henni nauðsynlega, en þó afmarkaða undantekningu.
Svo sem fyrr segir hefur Iðnlánasjóður til þessa ekki getað lánað sveitarfélögum sem haft hafa hug á að skapa iðnaði í byggðarlagi sínu, einkum nýjum iðnfyrirtækjum, bætta aðstöðu til iðnrekstrar með beinum fjárframlögum og annarri fyrirgreiðslu. Í því skyni að koma til móts við sveitarfélögin í þessum efnum er hér lagt til að Iðnlánasjóður geti lánað þeim þegar tilteknum skilyrðum er fullnægt þótt þau greiði ekki iðnlánasjóðsgjald. Vegna væntanlegrar þróunar í þessum efnum þykir rétt að binda þessa heimild ekki við sveitarfélög eingöngu, heldur láta hana ná til annarra aðila sem á svipaðan hátt og sveitarfélögin vilja efla og styrkja iðnþróun í byggðarlagi sínu. Þar gætu félagasamtök og einstaklingar komið til greina svo og ríkið eða einstakar stofnanir þess.
Þessi undantekning er gerð með þeim hætti, að stofnuð yrði ný deild í Iðnlánasjóði með framangreint hlutverk og heimildir. Fyrir er í Iðnlánasjóði önnur deild með sérstöku hlutverki, en það er lánadeild veiðarfæraiðnaðar. Lagaákvæðin um nýja lánadeild iðngarða eru áþekk þeim ákvæðum sem í gildi eru um lánadeild veiðarfæraiðnaðar.
Samkv. 1. gr. frv., sem verður 9. gr., er það meginskilyrði fyrir lánveitingu til iðngarða að þau iðnfyrirtæki, sem nytu þess að fá þar aðstöðu og fyrirgreiðslu, greiddu sjálf iðnlánasjóðsgjald eða ættu að greiða það. Ef iðngarðar, sem lánað hefði verið til, yrðu leigðir eða notaðir til annars, svo sem undir verslun, félagslega starfsemi, skrifstofur og þess háttar, yrði lánið uppsegjanlegt af hálfu Iðnlánasjóðs. Það leiðir af orðalagi þessarar greinar að aðili, sem sækir um lán til iðngarða, geri stjórn Iðnlánasjóðs fullnægjandi grein fyrir áformum sínum, hverjum hann ætli að leigja eða selja o. s. frv.
Þá gerir 1. gr. þessa frv. einnig ráð fyrir því, að á fjárlögum verði veitt fé til uppbyggingar þessarar lánadeildar eftir ákvörðun Alþingis hverju sinni, en miða þarf fjárhæðina við þróun þessara mála. Hér er verið að sameina kraftana, þ. e. að samhæfa átak fleiri aðila til eflingar iðnþróunar. Ákveðið er samkv. frv. að 1. milljarður kr. gangi beint úr Iðnlánasjóði til lánadeildarinnar sem slíkrar og að sú yfirfærsla til uppbyggingar taki 4 ár og nemi 250 millj. kr. á ári. Vextir og verðtrygging mundu að sjálfsögðu koma sem tekjur fyrir deildina. Annað umráðafé hennar eru svo afborganir lána og andvirði sérstakra lána sem stjórn Iðnlánasjóðs tæki fyrir deildina að fengnu leyfi iðnrh.
Þá gerir frv. einnig ráð fyrir því, að iðnrh. setji reglugerð um starfsemi deildarinnar á þeim lagagrundvelli sem hér er lagður. Með þeim hætti er hægt að búa þessum málum öruggan farveg á stjórnarfarslegan hátt eftir því sem þróun hugmynda um iðngarða fleygir fram og starfshættir lánadeildarinnar þróast. Í þessari grein er gengið út frá því, að sömu lánskjör gildi um lán til iðngarða og gilda um önnur lán úr Iðnlánasjóði.
Greinar 2. og 3. í þessu frv. þarfnast ekki sérstakra skýringa.
Það er verulegt áhyggjuefni, hve lítið hefur miðað í því að byggja upp nýjan iðnað og efla kannske sérstaklega iðnað í hinum dreifðari byggðum landsins. Í þeim efnum hefur tilfinnanlega skort opinbera stefnumótun og samhæfðar aðgerðir. Sérstakt átak verður því að koma hér til og að því er nú unnið með ýmsum hætti á vegum iðnrn.
Í mínum huga er gildi iðngarða ekki hvað síst fyrir hinar dreifðari byggðir landsins og er hér því hreyft mikilvægu byggðastefnumáli. Iðngarðar geta einnig og ekki siður orðið þáttur í því að styðja iðnþróun innan einnar og sömu greinar iðnaðarins eða skyldra greina, þar sem stuðlað yrði að framleiðslusamvinnu fleiri fyrirtækja, t. d. innan málm- og skipasmíðaiðnaðarins og þeirra greina sem þjóna skipasmíðum og skipaviðgerðum. Miðstöð slíkra fyrirtækja mætti skipuleggja í tengslum við sameiginlega dráttarbraut og viðleguaðstöðu, svo eitthvað sé nefnt. Almenn iðnþróunarmarkmið þessarar aðgerðar ættu því að vera öllum ljós. Hins vegar ber þess að sjálfsögðu að gæta, að með aðstöðu innan iðngarða sé fyrirtækjum, sem eiga í samkeppni í sömu grein, ekki mismunað eða stuðlað að neikvæðri samkeppni innan byggðarlaga eða á landsvísu.
Iðngörðum er öðru fremur ætlað að stuðla að nýjum atvinnutækifærum í iðnaði með sérstakri áherslu á framleiðsluiðnað. Er æskilegt að með þeim verði stuðlað að útflutningi í iðnaði eða umbótum sem opni nýjar leiðir í iðnþróun. Þessi stefnumótandi tilgangur iðngarða, sem hér er lýst, gerir það að verkum að vanda þarf og huga vel að eignar- og rekstrarformi þeirra og setja lög og reglur í því sambandi sem yrðu í samræmi við megintilgang þessara laga. Ef svo verður ekki gert nær breytingin ekki tilgangi sínum. Mun verða unnið að undirbúningi sérstaks lagafrv. um það efni á næstunni á vegum iðnrn.
Hagræðið af byggingu iðngarða getur, eins og hér hefur verið að vikið, orðið margvíslegt og nefni ég til viðbótar örfá atriði:
Í fyrsta lagi minnkuð fjárfestingarbyrði og fjármagnsþörf. Fyrirtæki geta einbeitt fjármunum að framleiðslubúnaði og tækjum. Þetta er ekki síst mikilvægt fyrir fyrirtæki sem eru að fara af stað.
Í öðru lagi að minna átak þarf við stofnframkvæmdir hjá nýstofnuðum fyrirtækjum. Sú framkvæmdaorka, sem fer í húsbyggingar, mundi sparast og jafnframt getur fyrirtækið strax notið hagræðis af heppilegu húsnæði.
Í þriðja lagi lægri rekstrarkostnaður sem leiddi af hagkvæmum byggingum og lægri húsnæðiskostnaði.
Í fjórða lagi möguleikar á samstarfi um ýmsa rekstrarþætti. Má þar nefna sem dæmi hráefniskaup og útvegun, aðflutninga, framleiðslusamstarf af ýmsu tagi, sölusamstarf og flutning afurða, bókhalds- og skrifstofuþjónustu og erindrekstur, m. a. varðandi bankamál og tollamál, matar- og kaffiaðstöðu og annan aðbúnað fyrir starfslið, bætt umhverfi innanhúss og utan, viðhaldsþjónustu og rekstrarráðgjöf.
Í fimmta lagi vil ég nefna að hægt er að koma við skipulögðum aðgerðum til að efla reksturinn með fræðslu og námskeiðahaldi fyrir stjórnendur og starfslið og bæta félagslega aðstöðu þeirra sem starfa á slíkum stöðum.
Ég vil að endingu leggja sérstaka áherslu á að Byggðasjóður taki að sér að veita framlög til byggingar iðngarða á móti lánum úr Iðnlánasjóði. Með þeim hætti væri hægt að hafa veruleg áhrif á staðsetningu og uppbyggingarhraða í samræmi við stefnu í byggðamálum og í samræmi við mótaða iðnaðarstefnu.
Ég vona að mál þetta fái góðar viðtökur hjá hv. þm. Ég vænti þess, að efnislegur ágreiningur sé ekki teljandi og málið fái skjóta afgreiðslu.
Herra forseti. Ég leyfi mér að leggja til að frv. þetta verði að lokinni þessari umr. vísað til iðnn. og 2. umr.