24.04.1979
Sameinað þing: 82. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4121 í B-deild Alþingistíðinda. (3221)

205. mál, atvinnumál á Keflavíkurflugvelli

Fyrirspyrjandi (Gunnlaugur Stefánsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram á þskj. 396 fsp. til hæstv. utanrrh. um atvinnumál á Keflavíkurflugvelli, svo hljóðandi:

„Hve margir útlendingar vinna nú við verkamanna-, iðnaðar- og skrifstofustörf á vegum bandaríska hersins og annarra aðila á Keflavíkurflugvelli? Hver var fjöldi þessa starfsfólks í febr. 1978?

2. Hve margir útlendingar á vegum bandaríska hersins búa nú utan Keflavíkurflugvallar?

3. Er fyrirhugað að fjöldi útlendinga við störf á Keflavíkurflugvelli fari vaxandi á þessu ári?

4. Hve mörgum Íslendingum hefur verið sagt upp störfum á Keflavíkurflugvelli frá 1. sept. á síðasta ári?“ Tilefni fsp. þessara eru umr. um atvinnumál á Keflavíkurflugvelli og uppsagnir íslensks verkafólks á Keflavíkurflugvelli þegar þessi fsp. var fram borin. Það er alllangur tími síðan fsp. kom fram á þingi, en vegna ýmissa ástæðna verður henni ekki svarað fyrr en nú.

Það hlýtur að vera nauðsynlegt á hverjum tíma að Alþ. fái tækifæri til þess að fylgjast með þróun atvinnumála á Keflavíkurflugvelli, fá upplýsingar um hvernig atvinnumálum er háttað, fjölda Íslendinga í vinnu á Keflavíkurflugvelli og síðast en ekki síst hver sé fjöldi útlendinga við störf á vellinum hverju sinni.

Eins og öllum er kunnugt hefur atvinnuþróun á Suðurnesjum fyrst og fremst snúist um útgerð og fiskvinnslu og í nokkrum mæli um Keflavíkurflugvöll og þá starfsemi sem þar fer fram. Það verður að segja eins og er, að ætíð hefur verið nokkur tilflutningur á vinnuafli milli þessara atvinnugreina, annars vegar á milli Keflavíkurflugvallar og hins vegar annars atvinnulífs á Suðurnesjum. En þar sem ástandið í útgerðar- og fiskvinnslumálum á Suðurnesjum hefur verið ótryggt á undanförnum árum hefur sókn í störf á Keflavíkurflugvelli eðlilega aukist. Fréttir hafa borist um að fjöldi útlendinga við störf á Keflavíkurflugvelli hafi farið vaxandi á undanförnum árum í hlutfalli við þann fjölda Íslendinga sem þar er við störf. Þess vegna er sú fsp. borin fram hér, hvernig mál standi í raun og veru hvað þetta snertir.

Ég vil undirstrika að atvinnustefnan fyrir Suðurnes verði ekki til frambúðar byggð á starfsemi kringum herinn á Keflavíkurflugvelli, heldur verði þar að koma til samstillt átak um nýja atvinnuþróun fyrir Suðurnesjasvæðið byggt á íslenskum atvinnugreinum og íslenskum fyrirtækjum. En á meðan slíkt hefur enn ekki komist á verður að leita allra ráða til að sporna við atvinnuleysi á svæðinu. Hitt er svo annað mál, sem jafnan verður að athuga, hve margir séu þeir útlendingar sem störf á Keflavíkurflugvelli vinna. Ég tel að það hljóti að vera kappsmál að sá hópur sé jafnan í lágmarki. Hitt er ekki síður mikilvægt, að útlendingar á vegum bandarískra stjórnvalda við störf á Keflavíkurflugvelli búi innan vallargirðingarinnar. Því leyfi ég mér nú að spyrja hve margir þeirra búi utan flugvallarsvæðisins enn.

Því hefur oft verið haldið fram, að í kringum starfsemi hersins á Keflavíkurflugvelli þróist alls konar spilling og brask. Um það skal ekki dæmt hér, en eigi að síður fullyrt að atvinnustefna íslenskra og bandarískra stjórnvalda á Keflavíkurflugvelli sé sveitarfélögum ög ríkissjóði dýr.

Fjögur íslensk fyrirtæki starfa fyrst og fremst á Keflavíkurflugvelli. Íslenskir aðalverktakar borga meginhluta af opinberum gjöldum sínum til Reykjavíkur, eins er ástatt með Flugleiðir. Auk þeirra eru tvö fyrirtæki á Keflavíkurflugvelli ekki minni í sniðum en hin fyrrnefndu hvað varðar athafnasemi, en það eru bandarísk fyrirtæki sem heita Public Wards, þjónustufyrirtæki á vegum hersins, og Navy Exchange, sem er bandarískt fyrirtæki sem rekur ýmsa þjónustustarfsemi á vellinum með samningi við herinn. Eftir því sem næst verður komist vinnur eitthvað á þriðja hundrað manns hjá hinu bandaríska fyrirtæki Navy Exchange. Þá er einnig ljóst að aðeins lítill hluti starfsmannafjöldans er Íslendingar, en þó nokkur eigi að síður eða eitthvað nálægt 100. Þessi bandarísku fyrirtæki, eftir því sem næst verður komist, borga engin opinber gjöld til sveitarfélaga eða ríkissjóðs, ekki einu sinni opinber launatengd gjöld, eins og Íslenskum aðalverktökum er þó gert að gera samkv. íslenskum lögum. Það er ekki einu sinni vitað til þess að útlendingar í þjónustu þessara bandarísku fyrirtækja, sem vinna við hlið Íslendinga almenn störf, þurfi atvinnuleyfi eins og íslensk lög mæla raunverulega fyrir um.

Ég vildi gjarnan að þetta kæmi fram strax í upphafi þegar ég legði fram fsp. mína og mælti fyrir henni, aðaltilgangurinn með fsp. þessari er að Alþ. gefist tækifæri til að fylgjast með hvernig atvinnumálum er háttað á Keflavíkurflugvelli með tilliti til þeirrar starfsemi sem fer fram í kringum herinn.