24.04.1979
Sameinað þing: 82. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4136 í B-deild Alþingistíðinda. (3237)

205. mál, atvinnumál á Keflavíkurflugvelli

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Síst ber að lasta fjarveru hv. þm. Sighvats Björgvinssonar, sem ég hygg að telja megi prýði á hverju samfélagi, en þó hefði ég gjarnan viljað að hann væri hér inni. (Gripið fram í: Hann er kominn.) Það var ágætt að hann hirtist eins og ónefndur andi stundum þegar hann er nefndur. En honum gengur erfiðlega að hafa rétt eftir þótt skammur tími líði. Ekki kallaði ég það, að hv. þm. Karl Steinar Guðnason flytti sorp hingað inn í þingsalinn. Ég sagði að ekki bæri að lasta þann gust sem hann bæri með sér hingað inn í þingsalina af sorphaugum Keflavíkurflugvallar, því að einnig sá gustur ætti heima hér í þingsölum.

Annars kom ég upp í ræðustól aðallega til þess að leiðrétta þau orð sem féllu hjá hv. þm. Oddi Ólafssyni, sem sagði að við hv. þm. Kjartan Ólafsson hefðum látið skip okkar umskipa fiski í Njarðvíkurhöfn yfir í loðnuveiðiskip til þess að flytja á erlendan markað. Mér er ekki kunnugt um skipaeign Kjartans Ólafssonar, en ég er h. u. b. alveg viss um að ekki á ég togarann Sigluvík sem hv. þm. átti við áðan. Ástæðan var sú, að ekki var mannskapur til þess eða gagnbúin fiskiðjuver að vinna allan þann fisk sem þá barst á land á Suðurnesjum, vegna þess að ekki vinna 2000 manns eða rúmlega það við fiskverkun á Suðurnesjum eins og vinna á vellínum. Það er langt frá því. Þennan afla hefðu Suðurnesjamenn getað fengið til vinnslu í fiskiðjuverum sínum.

Hitt er annað mál, að till., sem hv. þm. Oddur Ólafsson flutti á sínum tíma um athugun á áhrifum af hersetunni á hina þjóðlegu atvinnuvegi á Suðurnesjum, var góð till. Hún var samþ. hér á Alþ. Og ég veit ekki betur en réttum aðilum hafi verið falið að framkvæma þá könnun, sem mun þó ekki hafa verið gerð til hlítar enn.