06.11.1978
Efri deild: 11. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 380 í B-deild Alþingistíðinda. (324)
62. mál, aðstoð við sveitarfélög vegna lagningar bundins slitlags á vegi í þéttbýli
Jón G. Sólnes:
Þær aths., sem ég flutti áðan í sambandi við þetta mál, áttu ekki af minni hálfu að verða til þess að hér yrðu stórpólitískar umr. í sambandi við þessa að mínu áliti meinlausu þáltill.
Út af ummælum hv. 3. landsk. þm., Ólafs Ragnars Grímssonar, um það, að við Sjálfstæðisþm., sem tekið höfum þátt í þessum umr., höfum verið að koma á framfæri áróðurssöng út af skattlagningu samkv. brbl. núv. ríkisstj., þá vil ég bara segja það, að ég held að hvenær sem minnst er á skattlagningu eða einhver gjöld, þá ætti honum, hv. stuðningsmanni núv. ríkisstj., að vera það kunnugt, að þá fyrst og fremst svíða þau ákvæði á baki manna sem eru í svokölluðum brbl. um aðgerðir í efnahagsmálum. Hvernig hann getur fundið þeim orðum stað, að enn sé ekki búið að ná því hámarki sem ákveðið var í þeim nýju lögum um tekju- og eignarskatt sem afgreidd voru á síðasta þingi, það er mér torráðin gáta. Ég held að eina skýringin, sem þar getur verið um að ræða, sé að hann rugli þar saman frv. sem sýnt var á þinginu um staðgreiðslukerfi skatta og prósentur þar. Ef ég man rétt var í skattalögunum, sem við vorum að samþykkja í vor, hæsti skattstigi 40% af tekjum. En nú samkv. þeim breytingum, sem hafa verið gerðar á lögum um tekju- og eignarskatt, er allt í einu búið að finna upp nýjan skattstofn, fyrningar, sem eru af öllum aðilum taldar vera alveg nauðsynlegar hverju fyrirtæki, að geta afskrifað eða lagt í sjóð verðmæti til þess að geta endurnýjað þá hluti sem nauðsynlegt er að endurnýja, hvort heldur eru fasteignir eða tæki til rekstrarins. Þá er þetta allt í einu orðið skattskylt. Svo á það ekki að vera nein viðbót að mati hv. 3. landsk. þm. að það er búið að koma með viðbótartekjuskatt, tekjuskatt sem var ekki einu sinni lagður á sama gjaldstofn og ráðgert er í núgildandi skattalögum, heldur er hann lagður á allt annan gjaldstofn, því að hann er lagður á svokallaðar vergar tekjur, þannig að ekki er búið að draga frá leyfilegan frádrátt þegar skattstofninn er reiknaður út. Það skiptir því máli, að þó að talað sé um 6% aukningu á skatti, þá er skattbyrðin miklu meiri í prósentum en lögin tilgreina. Út af ummælum um niðurfellingu söluskatts af kjöti, þá er rétt að það kemur sér sjálfsagt mjög vel fyrir allan almenning og að vissu leyti er gott að það hefur tekist að framkvæma það að fella niður söluskatt af kjöti. Og auðvitað er ekki ástæða til annars en að fagna því, að þar flutu með allar matvörur, að ég tali ekki um allt bruggefni. Það hefur ekki litla þýðingu fyrir margar fjölskyldur að losna við söluskattinn af bruggefninu, hann var nokkuð verulegur, og ekki virðist draga úr aðdáun og þakklæti fyrir það. Ég hygg að þar mæli ég fyrir munn margra sem fögnuðu þeirri ráðstöfun.
Ég vil alveg sérstaklega biðja hv. 4. þm. Norðurl. afsökunar. Mér hefur orðið á þarna mjög mikil skyssa og er þar um að kenna leiðinlegu misminni mínu, og skal ég taka á mig allar vítur og ákúrur í því sambandi. Það er ekki sæmilegt fyrir þm. að koma hér upp og telja upp flm. að frv. og telja upp allt aðra en þar var um að ræða, því auðvitað átti ég að geta þess og þarf ekki að taka það fram, að hv. þm. Stefán Jónsson, 4. þm. Norðurl. e., hefur að mínu mati ávallt verið við því búinn og ötull stuðningsmaður að öllum þeim málum sem að mínu mati hafa getað orðið til heilla og góðs fyrir íbúa í Norðurlandskjördæmi eystra. Hitt er svo annað mál, að ég hef svolitlar áhyggjur af því, að nú kunni að fara svo illa, þrátt fyrir góðan hug og vilja þessa ágæta hv. þm., að hann verði þátttakandi í aðgerðum sem jafnvel gegn hans ágætu fyrirætlan verði íbúum kjördæmis hans til mikillar óþurftar.
Áður en ég skil við þessa fljótfærnislega röngu tilvísun mína í sambandi við flm. þess frv., sem ég gerði að umræðuefni áðan, vil ég aðeins taka fram til þess að fyrirbyggja allan misskilning, að það að draga hæstv. forseta deildarinnar, 3. þm. Norðurl. e., í þessar umr. var á engan veg gert með því hugarfari, eins og kom oft fram hjá hv. 4. þm. Norðurl. e. á framboðsfundunum í sumar, þegar hann tók fram hvað eftir annað að hann yrði að fara dálítið gætilega í því að skamma frambjóðendur Alþfl., því að það gæti verið að það þyrfti að nota þá eftir kosningar. Ég vil taka fram, að það að ég var að minnast á að hv. 3. þm. Norðurl. e. hafi verið samflm. minn að þessu margnefnda frv. var ekki á neinn hátt byggt á því, að ég hafi í huga að brúka þennan hv. þm. til eins eða neins í framtíðinni. Þessu vildi ég koma til skila.
Eins þykir mér rétt í sambandi við þau ummæli, sem fallið hafa hér út af söluskattsskyldu á notkun vinnuvéla við snjóruðning í kaupstöðum og annað, að láta það koma skýrt fram, að þó að ég kannist ekki við þetta mál, og mér finnst þetta einkennilegt, þá er ég ekki í nokkrum vafa um að það eru engir ógreiddir reikningar á Akureyrarbæ hjá ríkissjóði í sambandi við þetta mál frekar en annað sem Akureyrarkaupstaður á að borga.
Herra forseti. Ég skal svo ekki lengja umr. þessar út af fyrir sig mikið. Ég vil enn ítreka það, að þótt manni hafi fundist að gæti verið möguleiki á því og ágæt samstaða hafi á sínum tíma verið meðal bæjarfulltrúa í bæjarstjórn Akureyrar um flutning á þessu ágæta frv., sem við hv. 4. þm. Norðurl. e. byrjuðum fyrst tveir að flytja, — ég get nú bætt um söguna en betur, því að við fluttum þetta frv. hér fyrir þing fyrr og vorum þá aðeins tveir um hituna, og það sýnir hvílíkir brautryðjendur við erum á þessu sviði, — að þó að full samstaða hafi verið meðal bæjarfulltrúa í bæjarstjórn Akureyrar um gildi og þýðingu þessa máls þá, þá er ég ekki í nokkrum vafa um að það eru margir bæjarfulltrúar og ég hygg að þurfi ekki endilega að vera úr flokki núverandi stjórnarandstæðinga, sem muni vilja endurskoða afstöðu sína um það, hvort þeir treysti sér að ganga nú á árinu 1978 og í byrjun árs 1979 lengra á þann veg að skattleggja fasteignir, einmitt með tillíti til þeirrar stefnu sem þessi mál hafa tekið í höndum núv. hæstv. ríkisstjórnar.