24.04.1979
Sameinað þing: 82. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4139 í B-deild Alþingistíðinda. (3241)

206. mál, jarðborar

Fyrirspyrjandi (Oddur Ólafsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. iðnrh. fyrir hans ágæta svar. Það kom á daginn, eins og mig grunaði, að mjög verulegur kostnaður fylgir þessum tækjum enda þótt þau séu ekki notuð. Og þar sem svo stendur á að mikil þörf er fyrir mikla innlenda orku og við eigum sérfræðinga til rannsókna og við eigum tæki, þá vona ég að hæstv. ráðh. finni leiðir til að láta þau vera í gangi svo lengi sem unnt er.