24.04.1979
Sameinað þing: 82. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4141 í B-deild Alþingistíðinda. (3243)

224. mál, jarðhitaleit og fjarvarmaveitur á Snæfellsnesi og í Dalasýslu

Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):

Herra forseti. Ég mun hér leitast við að svara fsp. sem borin er fram af hv. þm. Alexander Stefánssyni ásamt hv. þm. Halldóri E. Sigurðssyni, og í þeim svörum, sem ég gef við þeim, er aðallega stuðst við upplýsingar frá Orkustofnun svo og nokkur atriði sem koma fram í nýútkominni skýrslu um varmaveitur á Vestur- og Norðurlandi.

Varðandi 1. lið fsp., sem varðar tilraunaborun eftir heitu vatni á norðanverðu Snæfellsnesi á þessu ári, skal þetta tekið fram.

Á norðanverðu Snæfellsnesi er aðeins einn jarðhitastaður, þ. e. fram undan Berserkseyri í Kolgrafarfirði. Staðurinn er í of mikilli fjarlægð bæði frá Grundarfirði og Stykkishólmi til þess að hitaveita þaðan sé talin hagkvæm. Rannsóknir og jarðhitaleit hafa því beinst að öllu norðanverðu nesinu í heild. Fundist hefur, með því að bora grunnar rannsóknarholur, svæði milli Ólafsvíkur og Stykkishólms þar sem hitastigull er allmiklu hærri en búast hefði mátt við. Talið er líklegt að orsök þess sé volgt eða heitt vatn í berggrunni þar undir. Fremur litlar líkur eru samt taldar á að með borun hitti menn á nýtanlegt heitt vatn, a. m. k. ekki í fyrstu atrennum, þar sem lítið hefur fundist sem leiðbeint gæti um staðarval borholanna.

Fyrir liggur að reynslan af jarðhitaleit á svæði blágrýtismyndunarinnar á Vestfjörðum og Austfjörðum, þar sem laugar vísa ekki til hvar bera skuli niður, er fremur neikvæð. Engu að síður hefur verið stefnt að því að kanna þetta nánar með djúpborun eða um 1500 m djúpri borholu. Hugmynd jarðhitadeildar Orkustofnunar hefur verið að deildin sæki um styrk til Orkusjóðs til að standa undir kostnaði við borunina þegar staðarval hefur verið undirbúið nógu vel og hentugur bor fæst til verksins. Áætlað er að staðarval geti legið fyrir fyrri hluta sumars 1979. Jarðborinn Narfi, sem best hentaði til að bora holuna, er upptekinn í forgangsverkefnum fyrir hitaveitur úti um land allt þetta ár og fram á næsta ár, að því er fram kemur í upplýsingum jarðhitadeildar Orkustofnunar. Til greina gæti komið að nota borinn Glaum, er gæti borað 1000 m holu sem hugsanlega þyrfti þá að dýpka síðar. Sakir óvissu varðandi útvegun á fjármagni og tækjum til verksins hefur að mati Orkustofnunar rannsóknarborun á Snæfellsnesi ekki verið talin raunhæf á þessu ári.

Ég vil til nánari glöggvunar á þessu geta þess, að á fjárlögum yfirstandandi árs eru Orkusjóði ætlaðar 350 millj. kr. til að lána til jarðhitaleitar. Af þeirri fjárhæð hafði Orkuráð veitt lán að upphæð 825 millj. kr. nú í byrjun aprílmánaðar og eftir standa þá aðeins 65 millj. kr., en fjöldi umsókna liggur fyrir um stuðning við jarðhitaleit. Veldur þetta því, að ekki er talið líklegt að hægt sé að verða við óskum um jarðhitaleit á norðanverðu Snæfellsnesi í því formi, sem hér er um rætt, og svo könnun með slíkri djúpborun á þessu ári vel að merkja.

Varðandi 2. lið fsp. um athugun á fjarvarmaveitum fyrir þéttbýlisstaði á Snæfellsnesi skal fram tekið: Úrvinnslu eftir frumathuganir á jarðvarmaveitum við einstaka staði á Snæfellsnesi og víðar er lokið og er skýrsla um þær nýlega komin út á vegum iðnrn. og Rafmagnsveitna ríkisins, eins og hv. fyrirspyrjandi raunar gat um. Þessi skýrsla tekur til 5 þéttbýlisstaða á Vesturlandi: Hellissands, Ólafsvíkur, Grundarfjarðar, Stykkishólms og Búðardals, og þar er um algera frumathugun að ræða. Þar segir orðrétt, með leyfi hæstv. forseta: „Að meðaltali fyrir veiturnar á Vesturlandi er orkuverðið 6.26 kr. á kwst. á fyrsta rekstursári og mun það verð lækka með stærri markaði og bættri nýtingu mannvirkja. Orkuverð þetta er nokkuð hátt sé miðað við orkuverð frá hagkvæmum jarðvarmaveitum, en í meðallagi sé það borið saman við olíukyndikostnað. Dreifð byggð, mikil þilofnahitun og hár fjármagnskostnaður valda miklu um orkuverðið.“ Nokkru síðar segir í sömu skýrslu: „Af framansögðu er ljóst, að hugmyndin um gerð slíkra varmaveitna er mjög athyglisverð og álitleg fyrir hagkvæmustu veiturnar sem valkostur til húshitunar í stað beinnar rafhitunar eða olíukyndingar, ef ekki er möguleiki á hagkvæmri jarðvarmaveitu.“

Þess ber að geta, að af þessum 5 stöðum virðist hagkvæmni jarðvarmaveitna vera mest í Ólafsvík og í Búðardal, þar sem orkuverðið lægi nokkuð undir því meðaltali sem hér var frá greint.

Fyrir utan þetta er þess að geta, að senn lýkur heildarathugun á tiltækri afgangsraforku í landskerfinu er nota mætti að hluta sem orkugjafa fjarvarmaveitna og raunar er fyrirhuguð sem aðalorkugjafi, en hins vegar svartolía til þess að taka af afltoppa þegar afgangsorka er ekki fyrirliggjandi. Einnig er að ljúka hagkvæmnisamanburði á fjarvarmaveitum og beinni rafhitun, þannig að þessi mál varðandi hagkvæmni fjarvarmaveitnanna eru smám saman að skýrast með tilliti til uppbyggingar raforkukerfis landsmanna á næstu áratugum. En hagkvæmnin þjóðhagslega séð fer verulega eftir því hver afgangsorka verður til í landskerfinu að jafnaði á því árabili sem menn eru að horfa til.

Ég hef getið þess hér í þingræðu ekki alls fyrir löngu, að mikil ástæða sé til þess að fá skorið úr þessum þáttum fyrr en seinna, en jafnframt, að fjarvarmaveiturnar hafi ýmsa kosti fram yfir beinu rafhitunina, ekki síst á þeim þéttbýlisstöðum þar sem von gæti verið um jarðvarma við nánari rannsókn og jarðhitaleit síðar, svo og að þær veiti meira öryggi en fæst með beinni rafhitun, þar sem um aðflutta orku eða annan orkugjafa er að ræða, ef raforku af einhverjum ástæðum þrýtur tímabundið.

Varðandi 3. lið fsp. skal það upplýst, að tilraunaborun eftir heitu vatni í Dalasýslu hefur enn ekki komið til álita. Athugað hefur verið, hvort hagkvæmt sé að leiða heitt vatn frá Grafarlaug til Búðardals, en svo er ekki talið að mati Orkustofnunar. Engin vísbending er um jarðhita nær Búðardal.

Almennt vil ég svo aðeins segja um þetta, að ég hef verulegan áhuga á því að greiða fyrir jarðvarmaleit sem víðast og þá einnig á þeim svæðum er talin hafa verið köld eða liggja á mörkum þeirra svæða þar sem líklegt er að jarðvarma megi vinna. Þarf að sjálfsögðu að ganga í slíkar rannsóknir með þeirri tækni og kunnáttu, sem fyrir hendi er, og meta þann tilkostnað, sem í er lagt, og vonir um ávinning hverju sinni. Ég tek undir það sem frsm. sagði og tel fyllilega eðlilegt og skiljanlegt að af íbúum þessara svæða sé ýtt á eftir jarðhitaleit til þess að fá sem fyrst úr því skorið hvort þar gæti falist álitlegur orkugjafi. Hitt er svo annað mál, að út frá þjóðhagslegu sjónarmiði og út frá sjónarmiði þeirra, sem eru að horfa á líklegan ávinning af jarðhitaleit, getur gætt annarra sjónarmiða. Mjög eðlilegt er að þeir vilji fremur leita eftir jarðhita þar sem árangurs er að vænta án mjög mikillar óvissu og tilkostnaðar. Þarna þarf því að horfa til beggja þessara þátta: Hinna almennu rannsókna til þess að skera úr um hvar mörkin liggja milli þeirra svæða, sem líklegt er að gefi árangur með jarðhita í framtíðinni, og hinna, þar sem áhættan hvað snertir fjármagnskostnað og jarðhitaleit er ekki jafnmikil. Þar er náttúrlega dæmið nánast borðleggjandi að herða róðurinn, en hitt verður líka að fylgja eftir.

Það sem kom einnig fram frá hv. fyrirspyrjanda, það sögulega sem hann dró fram í máli sínu, var athyglisvert og sýnir okkur að það er víðar jarðvarma að finna heldur en á þeim svæðum sem heit hafa verið talin til skamms tíma litið í jarðfræðilegum skilningi. Þannig hefur fundist þetta allstóra afbrigðilega belti, ef svo má segja, við Breiðafjörð. Nær það nokkurn veginn í kringum Breiðafjörð á norðanverðu Snæfellsnesi og til Barðastrandarsýslu, og vott þess er einnig að finna í Dalasýslu. Ekki ósvipað hefur komið fram á Austurlandi þar sem fundist hafa svæði er skera sig úr hvað snertir hitastigul, þar sem einnig finnst jarðvarmavottur á yfirborði, eins og fram hefur komið við Egilsstaði, þ. e. Urriðavatn í Fellum. Þar eru menn nú að leggja út í framkvæmdir við jarðvarmaveitu á grundvelli þeirrar borunar. En það má segja, að reynslan þaðan sýni okkur nokkuð vel hvað það hefur mikið gildi að hafa upplýsingar um streymi á yfirborði, jarðvarmastreymi. Líkurnar til að ná árangri tengjast ekki síst þeim stöðum eða blettum, þar sem slíkan vott er að finna. Óvissan um ávinning, þar sem ekki gætir neins jarðvarma á yfirborði, er því miður miklu meiri. En væntanlega fullkomnast tæknin að þessu leyti. Það má raunar nefna það hér í þessu sambandi, að við Íslendingar höfum nýlega tekið að okkur að axla nokkra ábyrgð á þessu sviði með því að gerast eins konar leiðbeinendur á alþjóðavísu í sambandi við nýtingu jarðhita. Við höfum gert samning við Háskóla Sameinuðu þjóðanna um að deild sú, sem á að sjá um fræðslu á því sviði, verði hér á landi, og Orkustofnun hefur tekið að sér veg og vanda af því verkefni hér. Þetta ætti einnig að verða okkur hvatning til þess að standa vel að rannsóknum á svíði þessarar mikilvægu auðlindar okkar, sem við erum nánast rétt að byrja að hagnýta okkur, ef frá eru talin þau not sem varða varða húshitun og eru vissulega orðin veruleg.