25.04.1979
Neðri deild: 77. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4193 í B-deild Alþingistíðinda. (3295)

186. mál, orkuiðnaður á Vesturlandi

Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):

Herra forseti. Ég var því miður fjarverandi þegar 1. flm. þessa frv. mælti fyrir því, en hef hlýtt á 2. flm. hv. þm. Jósef H. Þorgeirsson, auk þess að kynna mér efni þess frv. sem hér er flutt. Það var, eins og fram kemur í grg., samið af nefnd, sem iðnrh. skipaði á árinu 1976, og þessi nefnd vann verulegt starf, eins og fram kemur í fskj. sem birt er með frv. Formaður nefndarinnar var 1. flm. frv. Ég skil út af fyrir sig vel þann áhuga sem hann hefur á því að sýna afrakstur af þessu verki hér á Alþ. Nefndin skilaði áliti á fyrri hluta þessa árs. Skýrsla hennar til rn. er dags. í aprílmánuði s. l. og lá í rn. þegar ég kom þar til starfa á s. l. sumri.

Það kemur fram í grg. með frv., að fyrrv. iðnrh. hafi kynnt málið í þáv. ríkisstj., en þar hafi ekki tekist samstaða um að málið yrði flutt sem stjfrv. Eftir að ég kom til starfa í rn. eða þegar þinghald hófst í haust kom hv. 1. flm., hv. þm. Friðjón Þórðarson, að máli við mig og leitaði eftir því hvort rn. mundi hafa áhuga á því að beita sér fyrir flutningi frv., en ég greindi honum frá því að svo væri ekki, og ástæðurnar raunar augljósar því að stjórnarflokkarnir höfðu þá samið um allt aðra meginstefnu í raforkumálum en tekið er mið af í till. frv., einkum þó að því er snertir I. kafla þess, um stofnun sérstakrar virkjunar á Vesturlandi eða heimildar til stofnunar slíkrar virkjunar til að afla orku til almenningsnota, iðju og iðnaðar fyrir svæðið.

Till. ríkisstj. eru kunnar og ég þarf ekki að rifja þær hér sérstaklega upp. Þær miða við það varðandi raforkuöflunina, að stofnað verði eitt landsfyrirtæki sem sjái um raforkuöflun í samtengdu landskerfi og flutning eftir stofnlínum milli landshluta. Að framgangi þessarar stefnu hefur verið unnið frá því s. l. haust. Sú vinna er komin á talsverðan rekspöl, og ég vænti þess að þetta ár líði ekki svo að áfanga verði ekki náð í því mikilsverða máli. Hefði ég raunar kosið að hægt hefði verið að sýna árangur af því starfi, sem unnið hefur verið, á þessu þingi, en mjög er nú liðið á þinghaldið, þannig að óvíst er um hvort lagafrv. varðandi þetta verða sýnd fyrir þinglokin.

Till. þær, sem í frv. felast, endurspegla aðra stefnu en í stefnu núv. ríkisstj. felst og eru raunar framhald af viðhorfum sem voru ríkjandi og eru sumpart enn ríkjandi varðandi raforkuöflunina, en skýrast komu fram í stofnun Orkubús Vestfjarða sem lögfest var á árinu 1977, að mig minnir, en það tók til starfa í byrjun árs 1978. Þó er hér ekki að öllu leyti farið í sömu spor þar sem ekki er gert ráð fyrir einu fyrirtæki, heldur tveimur aðgreindum fyrirtækjum, öðru sem annist raforkuöflun og hinu sem annist dreifingu orku á svæðinu, og þá ekki einskorðað við raforku, heldur geti hitaorka komið þar til álita einnig.

Það kom fram í máli hv. þm. sem hér talaði áðan, Jósefs Þorgeirssonar, að meginhugmyndirnar á bak við þetta frv. væru að ná fram hagsbótum fyrir íbúa þessa landshluta. Það er ofur skiljanlegt og ekki nema gott um það að segja, að þm. reyni að þoka slíkum málum fram. En eins og mönnum er kunnugt hafa verið og eru mjög skiptar skoðanir um hvernig þeim markmiðum verði best náð. Ég vil að það komi skýrt fram hér, að ég tel að sú leið, sem ríkisstj. nú beitir sér fyrir að farin verði í raforkumálunum, sé miklu líklegri til þess, einkum horft til lengri tíma, að skila lægra raforkuverði fyrir landsmenn og að ná fram verðjöfnun á raforku fyrr, ákveðnar og betur en takast mætti með því að deila raforkuöflunarfyrirtækjum landsins upp í mörg fyrirtæki og deila þeim á einstaka landshluta. Þar með er út af fyrir sig ekki sagt að slíku kerfi mætti ekki koma á og ná fram verðjöfnunarstefnu innan slíks kerfis, en það er ólíkt erfiðara og óvissara um árangur og því er ég ekki meðmæltur.

Í II. kafla frv., um stofnun Vesturlandsveitu, tel ég að séu ýmsar gagnlegar ábendingar og hugmyndir um að laða saman þá aðila sem annast raforkudreifingu nú í þessum landshluta og að vel megi athuga þær hugmyndir þegar til verður tekið við að koma fastara skipulagi á raforkudreifinguna þar sem mörkum þess landsfyrirtækis sleppir sem nú er að stefnt að því að stofnað verði með samkomulagi þeirra aðila sem þar eiga hlut að máli. Það er ekki síður mikilvægt verkefni að þar takist vel til en um raforkuöflun og meginraforkuflutning. Ég er þeirrar skoðunar, að einmitt á þeim vettvangi sé rík ástæða til að heimaaðilar komi til með íhlutun í stjórnun og rekstri og þar beri að vinna að skipulagi innan landshlutanna í góðu samstarfi við aðila á hverjum stað og tryggja þeim með einhverjum hætti eðlilega aðild að raforkudreifingunni innan hvers svæðis.

Eins og ég gat um, tel ég að sú nefnd, sem samdi það frv. sem hér er flutt, hafi unnið verulegt starf og sumpart gagnlegt starf sem megi nýta þegar kemur að því að hafist verði handa um að endurskipuleggja raforkudreifinguna, og ég tel það ekki nema góðra gjalda vert að störf hennar séu sýnd hér á Alþ., þó að ekki séu líkur á því, að till. þær, sem hún flytur, nái fram að anga eða meginatriði þeirra hafi fylgi hér í þinginu. Ég vænti þess hins vegar, að þeim markmiðum, sem ekki er ágreiningur um í orði a. m. k. að ná fram, verðjöfnun á raforku og helst öðrum orkutegundum í einstökum landshlutum og um landið allt, verði náð fyrr en seinna, og ég treysti því, að góð samstaða verði um að leita færri leiða til þess að það geti orðið fyrr en síðar.