06.11.1978
Neðri deild: 12. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 391 í B-deild Alþingistíðinda. (330)

22. mál, Framkvæmdasjóður öryrkja

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Þetta frv. gerir ráð fyrir að stofna nýjan sjóð, Framkvæmdasjóð öryrkja, og á hlutverk sjóðsins að vera að greiða fyrir fjármögnun þeirra framkvæmda sem gert er ráð fyrir í lögum, reglugerðum og áætlunum um sérkennslu og endurhæfingu.

Um málefni öryrkja erum við vafalaust sammála og ég vil á engan hátt gera lítið úr því, sem gert hefur verið að undanförnu í þeim efnum og verið er að undirbúa með lagasetningu á síðustu árum. Sérkennslan er og verður málefni menntmrn., gert er ráð fyrir því í lögum, og að mínum dómi á að standa undir þeirri sérkennslu með fjárframlögum á fjárlögum eins og ætlast er til um aðra þætti þeirrar kennslu og kennslu almennt.

Í sambandi við endurhæfingu hefur margt verið gert í þeim efnum og verið mjög komið til móts við aukinn og vaxandi skilning á málefnum þessa fólks. Ég held að það sé rétt hjá mér, að hv. flm. þessa frv. hafi ekki minnst á það, að á s.l. vori eða rétt fyrir lok síðasta þings voru gerðar veigamiklar breytingar á lögum um almannatryggingar, en þar eru ákvæði til bráðabirgða þess efnis, að ráðh. er heimilt að fela Tryggingastofnun ríkisins að semja við tiltekin atvinnufyrirtæki um að þau taki í vinnu einn eða fleiri 75% öryrkja, sem hafa vinnugetu, en nýtast ekki á vinnumarkaðnum og hafa ekki verulegar aðrar tekjur til lífsviðurværis en bætur lífeyristrygginganna. Á meðan slíkur vinnusamningur stendur greiðir vinnuveitandinn öryrkjanum fastakaup, en Tryggingastofnunin endurgreiðir 75% af þeim launum, sem öryrkinn fær greidd fyrsta starfsárið, 50% af þeim launum, sem hann fær greidd annað starfsárið, og 25% af þeim launum, sem hann fær greidd þriðja starfsárið, og telst þá samningstímabili við atvinnurekanda lokið. Bætur öryrkjans falla niður á starfstímabilinu, þar sem honum er gert samkv. þessu að fá fullar tekjur þetta samningstímabil. Gert er ráð fyrir að kveðið sé nánar á um þessa öryrkjavinnu í reglugerð, sem ég veit ekki hvort liggur fyrir, en nauðsynlegt er að hún liggi fyrir um áramót, því að eðlilegt er að tryggingaráð setji eða geri drög að slíkri reglugerð, enda var til þess ætlast eftir að þessi lög voru sett á s.l. vori.

Ég tel að hér sé eitt atriði af mörgum, sem er mikilvægt í þeim efnum að koma til móts við öryrkja. Jafnframt er það mikilvægur áfangi í þeirri viðleitni, að öryrkjar geti unnið með fullkomlega heilbrigðu fólki, og þá er talið að rétt sé að reyna þessa leið og því var þetta ákvæði sett til bráðabirgða í almannatryggingalögin.

Þetta frv., sem hér liggur fyrir frá hv. 12. þm. Reykv., gerir ráð fyrir, að sérstakur sjóður sé stofnaður til þess að greiða fyrir fjármögnun þessara framkvæmda. Álhliða er ég þeirrar skoðunar, eins og raunar hv. síðasti ræðumaður minntist á, að þegar Alþ. hefur sett lög og reglugerðir hafa verið gefnar út í samræmi við þau lög, þá beri samfélaginu eða ríkinu að greiða á fjárlögum framlag til að framkvæma þessi lög sem Alþ. hefur sett.

Það má alltaf bæta á einhverjum nýjum liðum, t.d. á brennivín og tóbak, eins og hér er gert ráð fyrir. Ríkið hefur hagnaðinn af brennivíns- og tóbakssölu í landinu. En það eru líka takmörk fyrir því, hversu langt á að ganga í þeim efnum. Nú skulum við segja, að vilji sé hjá flestum að draga úr sölu á þessum vörutegundum, en hins vegar byggja fjárlög hverju sinni að töluverðu marki á því, hvað ríkið muni hafa í hagnað af sölu á þessum vörum. Þá verður að gæta þess að spenna ekki bogann það hátt, að sú fjáröflun standist ekki. Þá fær ríkið ekki áætlaðar tekjur. Ég veit ekki hvernig tíðar hækkanir á brennivíni og tóbaki hafa verkað á söluna, en mér er sagt að töluvert hafi dregið núna úr sölu. Það út af fyrir sig er gott, en ríkið fær þá minni tekjur.

Hér er líka lagt til að leggja 20 kr. styrktargjald ofan á verð allra seldra aðgöngumiða í landinu og það á að greiða samhliða skemmtanaskatti. Ég er ekki sannfærður um að þessi sífelldi sparðatíningur, ný gjöld og gjald ofan á gjald á öllum sviðum, sé það eina rétta og sanna. Ég vil í þessu tilfelli minna á, þannig að það líti ekki út fyrir, af því að ég er stjórnarandstæðingur, að ég skipti um skoðun eftir því hvort ég á aðild að stjórn eða ekki, að samstarfsnefnd um varnir gegn tóbaksreykingum hafði tekjur sínar af tóbakssölu. Með lögum, sem ég beitti mér fyrir og Alþ. samþykkti, var þessi tekjuöflun felld niður og kostnaður við þessa starfsemi tekinn inn á fjárlög, þannig að Alþ. réði því hverju sinni hversu há upphæð yrði veitt til þessa verkefnis. Það er í samræmi við þá skoðun mína, sem ég hafði þá og hef nú, að það eigi ekki, þó að séu mikilvæg og góð málefni, að fara allt í einu að stofna nýjan sjóð með nýja tekjustofna sem eru gjald á ákveðnar tegundir af vörum eða þjónustu sem borgurunum er seld. Þess vegna er ég fyrir mitt leyti alfarið á móti þessari tekjuöflun, en það er ekki vegna þess að hún er sett fram hér í þessu frv. Ég er sammála hv. 9. þm. Reykv. um það, að mörkuðu tekjustofnarnir eiga sín takmörk og við megum ekki færa þá út í tíma og ótíma, hvað sem líður viðhorfum okkar til viðkomandi ríkisstj. á hverjum tíma. Hitt breytir ekki skoðun minni og er samhljóða skoðun hv. flm. þessa frv., að það er margt ógert enn þá í málefnum öryrkja. En við megum á engan hátt gera lítið úr því, sem gert hefur verið á undanförnum árum til hagsbóta þessu fólki og ekki heldur gleyma því nýjasta, sem Alþ. samþykkti með lögum sem samþykkt voru 6. maí á s.l. vori. Ég tel mikilvægt atriði að fylgja þessum samþykktum vel eftir og vil á allan hátt styðja hv. flm. að því að þessi verkefni verði endurskoðuð þannig að fjárveitingum verði varið til þeirra á þann hátt sem gildandi lög og reglugerðir segja til um. En ég efast mjög um að hér sé farið út á rétta braut, að stofna sérstakan sjóð með sérstakri stjórn. Þessi verkefni eru allflest eða öll í höndum annarra aðila, og því held ég að athuga verði þessi mál í heild þegar þetta frv. kemur til meðferðar í nefnd.