06.11.1978
Neðri deild: 12. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 393 í B-deild Alþingistíðinda. (331)

22. mál, Framkvæmdasjóður öryrkja

Gunnar Thoroddsen:

Herra forseti. Ég tel ástæðu til að þakka hv. flm., 12. þm. Reykv., fyrir að hafa hreyft þessu mikilvæga máli og fyrir ítarlega og fróðlega framsöguræðu fyrir frv. Málefni öryrkja eða þroskaheftra eru svo mikilvæg, að þar þarf auðvitað að gera á mörgum sviðum betur en gert hefur verið hingað til.

Þetta frv. hefur samkv. grg. það höfuðmarkmið að tryggja ákveðinn tekjustofn til sérkennslu, samkv. áætlun, sem gerð hefur verið í samræmi við grunnskólalög, og þar er mikil fjárþörf fyrir hendi. Það er ljóst að sérkennsla þroskaheftra er eitt þeirra vandamála sem ekki hefur enn fengist viðhlítandi lausn á og langt frá því, eins og kemur skýrt fram í grg. þessa frv. Ýmis önnur vandamál, sem snerta þroskahefta, þarf einnig að leysa.

Eftir stjórnkerfi okkar falla vandamál öryrkja eða þroskaheftra aðallega undir þrjú rn., menntmrn., heilbr.- og trmrn. og félmrn., og í rauninni er sinn þátturinn undir hverju þessara rn. Eitt af því, sem brýn nauðsyn er að gera skipulagslega séð, er að koma hér á sem bestu samstarfi og samráði. Í því skyni hafa á undanförnum árum verið settar nefndir á laggirnar. Nú síðast mun það hafa verið á s.l. vori, að ákveðið var í samráði við Landssamtökin Þroskahjálp að skipa nefnd með fulltrúum frá þessum þrem rn. og frá Þroskahjálp til þess að gera till. um heildarlöggjöf um vandamál þroskaheftra. Það er rétt að það komi einnig fram, að sú er yfirlýst skoðun Landssamtakanna Þroskahjálpar og eindregin ósk þeirra samtaka, að yfirstjórn þessara mála sé í höndum félmrn. Ég sé á þessu frv., að hv. flm. virðist vera sömu skoðunar, því að það kemur fram að þótt hér sé um að ræða kennslu- og fræðslumál öryrkja að verulegu leyti, þá leggur hv. flm. til að þessi mál heyri fyrst og fremst undir félmrn. Mér er ekki kunnugt um hvað líður starfi þessarar nefndar, en vænti þess, að tillagna frá henni sé að vænta áður en langt um líður, vegna þess að þegar hún var skipuð lá þegar fyrir veruleg vinna bæði af hálfu nefndar, sem áður hafði verið skipuð, og einnig frá Þroskahjálp um hvernig þessum málum skyldi í heild skipað.

Varðandi fjáröflun samkv. þessu frv. vil ég ekki á þessu stigi taka afstöðu til þeirra leiða sem þar er á bent. En þó þykir mér ástæða til að minnast nokkuð á mismunandi skoðanir sem fram hafa komið í þessum umr. um það hvort eigi að veita fé í fjárlögum af almennum ríkissjóðstekjum til slíkra mála eða leita til markaðra eða sérstakra tekjustofna. Það er rétt, að það væri ákaflega æskilegt ef hægt væri að afla fjár úr ríkissjóði, af almennum ríkissjóðstekjum, til nauðsynjamála eins og þessara. En reynslan bendir til þess, að oft verða nauðsynjamál að bíða allt of lengi ef á að fara þessa leið eingöngu. Þess vegna hefur oft verið gripið til markaðra tekjustofna, sérstaklega til að þoka fram líknar-, mannúðar- og menningarmálum. Ég fullyrði að mörg slík mál hafa verið leyst eða a.m.k. hefur þeim þokað betur áfram en ella, vegna þess að ákveðnir hafa verið sérstakir markaðir tekjustofnar til þeirra. Sum þessara mála hafa þurft að bíða árum saman eftir því að Alþ. sinnti þeim nægilega við afgreiðslu fjárlaga. Þegar slíkt hefur ekki tekist hefur verið gripið til hinna mörkuðu tekjustofna. Ég get nefnt það sem dæmi, að slysavarnir Íslands væru í lakara ástandi en þær nú eru, ef ekki hefði verið fyrir mörgum árum gripið til markaðs tekjustofns fyrir Slysavarnafélagið. Ég held einnig að málefni fatlaðra og þroskaheftra væru enn verr á vegi stödd en þau nú eru, ef ekki hefði notið við markaðra tekjustofna. Þess vegna held ég að ekki sé rétt að útiloka hina mörkuðu tekjustofna, því að reynsla okkar a.m.k. tvo síðustu áratugi hefur áþreifanlega sannað að þeir hafa verið nauðsynlegir oft og tíðum til þess að leysa mikil vandamál, sérstaklega á sviði félagslegra umbóta, líknar- og mannúðarmála.

Ég skal ekki fara frekar út í efni þessa frv. nú — það kemur væntanlega til þeirrar n. sem ég á sæti í — en ég vildi láta þessar aths. koma fram strax um leið og ég ítreka að hv. flm. á þakkir skilið fyrir að hafa hreyft þessu merka máli.