26.04.1979
Sameinað þing: 84. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4215 í B-deild Alþingistíðinda. (3322)

227. mál, tolltekjur af sjónvarpstækjum og sjónvarp á sveitabæi

Menntmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Hv. þm. Ellert Schram hafði uppi þungar ásakanir á hendur núv. stjórn og talaði um bláeyga menn. Ég veit að það er eitthvað blátt í augnasvip hv. þm., en hann er samt ekki svo bláeygur að hann ímyndi sér að hann geti slegið sér upp pólitískt á því að fara að rífast um þetta mál.

Tengst á milli tolltekna og ríkisframlags til sjónvarps voru afnumin, eins og hefur margoft komið fram í þessum umr., í tíð fyrri stjórnar. Við tókum hvorugur eftir því. Ég, tel að málið sé sannarlega ekki þess eðlis að hægt sé að saka einn flokk fremur en annan um hvernig nú er komið málum. Alþm. munu almennt ekki hafa orðið varir við þegar þessar breytingar áttu sér stað.

Hér hefur hins vegar verið minnst á að Ríkisútvarpinu sé haldið í svelti vegna þess að afnotagjöld hafi lítt verið hækkuð í tíð þessarar stjórnar. Ég vil minna á það hér, að afnotagjöld voru nýlega hækkuð um 15% hjá útvarpi og 17% hjá sjónvarpi. Þessi hækkun gildir fyrir fyrri hluta ársins 1979, en gert hefur verið ráð fyrir að hliðstæð hækkun ætti sér stað á síðari hluta ársins. Samanlagt yrði þá hækkun afnotagjalda hjá þessari stofnun um og yfir 35% á árinu, sem er mjög nærri þeim verðbreytingum sem reiknað hefur verið með á þessu ári. Auglýsingar í útvarpi voru hins vegar hækkaðar um 35%, og ef auglýsingar verða hækkaðar enn frekar á síðari hluta ársins, sem enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um, verður hækkun þeirra talsvert miklu meiri en nemur verðbreytingum á árinu. Einnig er gert ráð fyrir að sjónvarpsauglýsingar verði hækkaðar í verði á síðari hluta ársins, en þær voru hækkaðar verulega í lok seinasta árs. Ég held því að ekki verði sagt með neinum rétti að ekki hafi verið um að ræða verulegar hækkanir á afnotagjöldum og auglýsingaverði hjá útvarpinu og sjónvarpinu. Ég held að þeir menn, sem halda öðru fram, viti einfaldlega ekkert hvað þeir eru að tala um.

Ég vil svo að lokum fagna þeirri almennu samstöðu sem hefur komið fram í þessum umr. og hefur lýst sér í því, að menn hafa almennt verið sammála um að tolltekjur af sjónvarpstækjum ættu að renna til fjárfestingarverkefna sjónvarps og útvarps. Sú er og hefur verið skoðun mín og kom skýrt fram í upphafi þessarar umr. Ég heyri að yfirgnæfandi meiri hl. þm. hlýtur að vera sama sinnis þar sem engin rödd hefur heyrst mótmæla þessu.

Ég tek undir það sem hér hefur komið fram, að verkefnin eru sannarlega næg hjá útvarpi og sjónvarpi. Það er ekki aðeins að koma þurfi sjónvarpinu til yfir 300 bæja sem ekki njóta þess nú eða njóta ófullnægjandi móttökuskilyrða, vissulega kostar það verkefni eitt út af fyrir sig stórfé, heldur er líka þörf á því á næstu þremur árum að byggja langbylgjustöð fyrir útvarpið, þar sem möstur gömlu langbylgjustöðvarinnar eru úr sér gengin og það er álit sérfræðinga að þau geti fallið í ofviðri hvenær sem er. Það er stórkostlegt öryggismál fyrir þjóðina alla að slíkt gerist ekki og því brýn þörf á að hafist verði handa um byggingu langbylgjustöðvar með nýjum möstrum. Talið er að á núgildandi verðlagi muni slíkt mannvirki kosta fast að 2000 millj. kr. Geta því allir séð að þegar það bætist við hitt stórverkefnið, að koma á fullkomnu dreifikerfi sjónvarps, eru verkefnin sannarlega næg.

Ég vil svo að endingu láta þess getið, að samkv. þeirri framkvæmdaáætlun, sem fjárlög gerðu ráð fyrir, er ætlunin að verja til sjónvarpsdreifingar 510 millj. kr. á þessu ári og einnig verður hafist handa um undirbúning vegna byggingar langbylgjustöðvar og varið til þess nokkuð á annað hundrað millj. kr. Ég tel að eins og staðan er nú og með hliðsjón af því, að þau verkefni verða ekki að öllu leyti fjármögnuð með tekjum sjónvarps og útvarps, sé óhjákvæmilegt að sjónvarpinu sé útvegað nokkurt lán, væntanlega 200–300 millj. kr., til þess að þessum verkefnum verði sinnt eins og ráðgert er. Ég held að endurskoðun fjárhagsáætlunar Ríkisútvarpsins sýni að þó útvarp og sjónvarp hafi þegar fengið nokkrar hækkanir og muni fá síðar á þessu ári dugi það fjármagn ekki til og því sé óhjákvæmilegt að útvega nokkurt lánsfé til að hægt verði að standa við gerðar áætlanir. Þetta mál höfum við þegar rætt, ég og hæstv. fjmrh., en málið er að öðru leyti á undirbúningsstigi.