26.04.1979
Sameinað þing: 84. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4223 í B-deild Alþingistíðinda. (3330)

250. mál, málefni þroskaheftra

Fyrirspyrjandi (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Á þskj. 509 ber ég fram fsp. til félmrh. um málefni þroskaheftra: Verður frv. til l. um aðstoð við þroskahefta lagt fyrir yfirstandandi Alþingi?

Fsp. þessi var flutt þar sem ég vissi að frv. til l. um þetta efni, samið af sérstakri nefnd, hafði legið á borðum í rn. frá því í lok des. 1978 og mér er fullkunnugt um að hér er um að ræða frv. um aðstoð við þroskahefta samið í samráði við landssamtök þroskaheftra. Allir hafa mikinn áhuga á því, að frv. verði að lögum, þar sem málefni þroskahefts fólks hafa ekki fengið þá meðferð sem þjóðinni er skylt að veita. Jafnframt hafa verið til meðferðar á hv. Alþ. mál varðandi þroskaheft fólk og komið fram í umr. áhugi alþm. á að gera átak til lausnar málefnum þess. Þess vegna er brýn nauðsyn að heildarlöggjöf um málefni þroskaheftra verði sett.

Síðan ég bar upp þessa fsp. eru liðnir tæpir tveir mánuðir, en í gær, 25. apríl, var lagt fram á hv. Alþ. stjfrv. til laga um aðstoð við þroskahefta. Þar með er fsp. minni raunar svarað á afgerandi hátt sem ég þakka og fagna alveg sérstaklega, um leið og ég skora á hv. alþm. að afgreiða það frv. sem lög frá þessu þingi. Að því væri mikill sómi fyrir yfirstandandi þing.

Herra forseti. Ég tel að fsp. hafi verið svarað.