27.04.1979
Efri deild: 84. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4251 í B-deild Alþingistíðinda. (3356)
273. mál, framlag Íslands til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
Viðskrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Með frv. því, sem hér er lagt fram, er óskað heimildar fyrir ríkisstj. til að hækka fjárframlag eða m. ö. o. kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum um 50% eða úr 29 millj. sérstakra dráttarréttinda, skammstafað SDR, í 43,5 millj. sérstakra dráttarréttinda.
SDR er gjaldmiðill sem aðildarþjóðir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins samþ. 1968 að myndaður yrði til að taka við stöðu dollarans sem alþjóðlegur gjaldmiðill. Verðgildi SDR ræðst í dag af verðgildi 16 helstu viðskiptagjaldmiðla heims, sem vegið er með hlutdeild þeirra í milliríkjaviðskiptum í heiminum. Hinn 1. febr. s. l. var hver eining SDR jafnvirði 1.28 bandaríkjadollara eða u. þ. b. 412 ísl. kr.
Heildarkvóti aðildarríkjanna og kvótar einstakra ríkja hafa verið endurskoðaðir með reglubundnum hætti frá því að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn tók til starfa. Hinn 11. des. s. l. var einróma samþ. af sjóðsráði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins ákvörðun um að hækka heildarkvóta aðildarríkjanna um 50% eða úr 39 milljörðum SDR í 58.6 milljarða SDR. Með frv. þessu er því einungis leitað eftir heimild til að hækka kvóta Íslands til samræmis við þessa ákvörðun. Hverju ríki er í sjálfsvald sett hvort það eykur kvóta sinn, en vegna þeirra réttinda sem kvótaaukningunni fylgja, eru þess fá dæmi að ríki hafi ekki fylgt almennum kvótahækkunum, sérstaklega eftir að úthlutun sérstakra dráttarréttinda hófst. SDR hefur þá sérstöðu sem gjaldmiðill að einungis er um reikningseiningu að ræða, þ. e. a. s, seðlar og mynt eru ekki sett í umferð.
Ég tel að hér sé um einfalt og ljóst mál að ræða sem hv. Alþ. hljóti að kannast við því að hliðstæð mál hafa komið fyrir fyrri þing. Ég tel ekki ástæðu á þessu stigi nema tilefni gefist til, til að eyða frekari tíma fyrir hv. Ed.
Ég legg til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn. deildarinnar.