27.04.1979
Neðri deild: 78. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4259 í B-deild Alþingistíðinda. (3366)

70. mál, veðdeild Búnaðarbanka Íslands

Frsm. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Þetta frv. var sent til umsagnar til Búnaðarþings, eins og venja er með mál sem kemur landbúnaðinum við, og umsögn Búnaðarþings var á þá leið að það óskaði eftir eftirfarandi breytingum:

Við 2. gr. frv. 2. gr. frv, orðist svo:

„Stjórn Búnaðarbanka Íslands hefur á hendi stjórn veðdeildar Búnaðarbankans. Þegar bankaráð tekur til meðferðar og ákvörðunar málefni veðdeildarinnar sem landbúnað varða skulu fulltrúi frá Búnaðarfélagi Íslands og fulltrúi frá Stéttarsambandi bænda taka sæti í bankaráði Búnaðarbanka Íslands sem fullgildir bankaráðsmenn. Fulltrúar þessir skulu tilnefndir til 4 ára í senn svo og varamenn þeirra.“

Í öðru lagi vill Búnaðarþing að við 3. gr. frv. komi sú breyt., að í stað þess að Stofnlánadeildin leggi fram fjármagn ásamt ríkissjóði verði þetta framlag eingöngu lagt til af ríkissjóði og nemi 60 millj. til ársloka 1985 á hverju ári.

Landbn. sendi ályktun þessa til umsagnar Búnaðarbankans. Ég tel rétt að lesa þá umsögn upp, með leyfi forseta:

„Bankastjórn Búnaðarbanka Íslands hefur borist ályktun Búnaðarþings um frv. til l. um veðdeild Búnaðarbanka Íslands, þar sem m. a. er gerð till. um breyt. á 2. gr. frv. varðandi yfirstjórn veðdeildarinnar. Af þessu tilefni telur bankastjórnin nauðsynlegt að taka eftirfarandi fram:

Það hefur verið föst venja að fjalla í stjórn Stofnlánadeildar landbúnaðarins um öll veigamestu mál veðdeildarinnar og ekki ætlunin að breyta þeim vinnubrögðum. Hins vegar verður að teljast mjög hæpið og raunar varasamt fordæmi að veita hagsmunasamtökum aðild að stjórn veðdeildar bankans, sem er mun tengdari almennri starfsemi bankans en Stofnlánadeild landbúnaðarins sem er algjörlega takmörkuð við stofnlán í landbúnaði og því aðild bændasamtaka að stjórn hennar jafneðlileg og aðild hagsmunasamtaka sjávarútvegs og iðnaðar að stjórn Fiskveiðasjóðs og Iðnlánasjóðs. Eftir að jarðakaupalánin hafa verið flutt frá veðdeild Búnaðarbankans til Stofnlánadeildar verður breyting á starfsemi veðdeildarinnar, en fjárhagsvandi deildarinnar er til kominn vegna jarðakaupalánanna undanfarin ár og því eðlilegar þær ráðstafanir sem frv. gert ráð fyrir.

Alþ. hefur markað þá stefnu varðandi alla ríkisbankana, að bankaráð þeirra séu alfarið þingkjörin. Væri farið inn á þá braut að veita vissum hagsmunasamtökum beina aðild að yfirstjórn eins ríkisbanka er hætt við að hliðstæðar kröfur gætu komið fram varðandi aðra ríkisbanka, t. d. aðild húsbyggjenda að veðdeild Landsbankans. Þá telur bankastjórnin rétt að vekja athygli landbn. á, hvort ekki sé eðlilegra að fella ákvæði frv. inn í lögin um Búnaðarbanka, þar sem lagaákvæði um veðdeild bankans eiga þar fremur heima, svo sem áður var, heldur en í sérstökum lögum.“ Undir þetta skrifa allir bankastjórar Búnaðarbankans.

Þetta málefni var rætt líka í bankaráðinu og auðvitað í landbn. N. varð sammála um að ekki væri hægt að verða við óskum Búnaðarþings um að breyta frv. eftir óskum þess.

N. hefur fjallað um frv. og leggur til að það verði samþ. með breyttri tímasetningu. Eðvarð Sigurðsson var fjarstaddur afgreiðslu málsins.

Þá eru þær brtt. sem n. leggur til að verði samþ.:

1. Við 2. gr. Í stað „ársloka 1985“ á tveim stöðum komi: ársloka 1986.

2. Við 18. gr. Í stað „1. jan. 1979“ komi: 1. jan. 1980. Hv. þm. Bjarni Guðnason skrifaði undir nál. með fyrirvara.