30.04.1979
Efri deild: 85. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4266 í B-deild Alþingistíðinda. (3381)

265. mál, tollheimta og tolleftirlit

Fjmrh. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l., sem útbýtt hefur verið í d., um breyt. á lögum nr. 59 28. maí 1969, um tollheimtu og tolleftirlit, sbr. lög nr. 2 11. febr. 1970, lög nr. 66 30. apríl 1973 og lög nr. 71 31. maí 1976, um breyt. á þeim lögum.

Ríkisstj. hefur ákveðið að leggja frv. þetta fyrir Alþ. til samþykktar. Megintilgangurinn með því er að breyta ákvæðum í VI., VII. og IX. kafla laga um tollheimtu og tolleftirlit sem lúta að viðurlögum, greiðslufresti á aðflutningsgjöldum og endursendingum á innfluttum vörum. Rétt þykir að benda á í þessu sambandi að breytingar þessar fela ekki í sér neina nýsmíði, með þeirri undantekningu þó er lýtur að innheimtu vaxta vegna greiðslufrests á aðflutningsgjöldum, en ef frv. þetta verður að lögum munu ákvæði þess verða tollgæslunni til styrktar og veita einstökum ákvæðum laganna meiri virkni en nú er, m. a. með því að létta álagi af dómstólum, eins og ég mun víkja nánar að hér á eftir.

Um einstakar greinar frv. þykir mér rétt að taka eftirfarandi fram:

Í núgildandi lögum um tollheimtu og tolleftirlit er í 1. mgr. 52. gr. heimilað að leggja viðurlög við því, ef þeirri skyldu er eigi fullnægt að aðflutningsgjöld séu greidd af innfluttri vöru innan þeirra tímamarka, talið frá komudegi flutningsfars til landsins, sem ákveðin kunna að vera í reglugerð. Meðal þeirra viðurlaga, sem ákvæðið heimilar að lögð verði á, er greiðsla dráttarvaxta, 1.5% fyrir hvern byrjaðan mánuð talið frá gjalddaga aðflutningsgjalda. Þegar ofangreint ákvæði var lögfest á árinu 1969 voru dráttarvextir innlánsstofnana 1.5%. Frá því að ákvæðið var lögfest hafa dráttarvextir hækkað smátt og smátt og eru nú 3%. Telja verður eðlilegt að dráttarvextir, sem á kunna að verða lagðir samkv. ákvæðum laga um tollheimtu og tolleftirlit, séu í sem mestu samræmi við þau vaxtakjör sem gilda almennt um þetta efni. Er því lagt til samkv. frv. að ákvæðið verði rýmkað að þessu leyti. Þykir rétt að um ákvörðun lágmarks og hámarks dráttarvaxta gildi í þessum efnum 13. gr. laga nr. 10 frá 1961, um Seðlabanka Íslands. Benda má jafnframt á að samhljóða ákvæði um útreikning dráttarvaxta er einnig að finna m. a. í lögum um tekju- og eignarskatt svo og í söluskattslögum.

Samkv. 2 gr. frv. er lagt til að tekið verði upp í 53. gr. laganna ný mgr. er kveði skýrt á um að heimilt skuli að reikna sömu vexti af aðflutningsgjöldum, sem greiðslufrestur kann að verða veittur á samkv. 53. gr. laganna, og gildir almennt í lánsviðskiptum innlánsstofnana. Tel ég eðlilegt að sömu vaxtakjör verði látin gilda hvort sem ríkissjóður veitir greiðslufrest á aðflutningsgjöldunum eða innflytjendur fjármagna greiðslu þeirra með fyrirgreiðslu lánastofnana.

Samkv. núgildandi lögum um tollheimtu og tolleftirlit er heimilt að falla frá innheimtu aðflutningsgjalda þegar endursendar eru vörur sem ekki hefur verið vitjað, viðtakandi hefur ekki fundist að eða neitað hefur verið um viðtöku á. Það skilyrði er m. a. sett fyrir niðurfellingu gjalda, að viðkomandi tollyfirvaldi sé sett full fjártrygging, peningatrygging, fyrir greiðslu aðflutningsgjalda þar til varan er sannanlega komin til útlanda. Ákvæði þetta um fulla fjártryggingu hefur íþyngt endursendendum vara og valdið nokkrum erfiðleikum í framkvæmd þegar um endursendingu á vörum hefur verið að ræða sem veruleg gjöld hafa hvílt á. Þá hefur einnig reynst ýmsum erfiðleikum bundið fyrir sömu aðila að afla staðfestingar á því, að endursend vara hafi skilað sér á áfangastað, þar sem erlend tollyfirvöld hafa gert ýmsar breytingar á starfssviði tollsins, m. a. í þessum efnum. Af þessum sökum er lagt til samkv. 3. gr. frv. að núgildandi ákvæði verði rýmkuð þannig að fjmrn. geti ákveðið í reglugerð eða með öðrum fyrirmælum að heimilt skuli að víkja frá skilyrði um peningatryggingu og krefjast í þess stað fullnægjandi tryggingar í öðru formi. Jafnframt er lagt til að horfið verði frá því að krefja um staðfestingu erlends tollyfirvalds á innflutningi vöru til viðkomandi lands, en í þess stað verði gjöld felld niður þegar það hefur verið tryggt nægilega að mati viðkomandi tollyfirvalds að varan verði endursend til útlanda, t. d. með flutningi vöru undir tolleftirliti um borð í flutningsfar.

Auk þeirra breytinga, er ég hef hér vikið að, er lagt til að frestur til endursendingar á gölluðum vélum samkv. 3. tölul. 57. gr. verði lengdur nokkuð, eða úr 6 mánuðum í eitt ár, jafnframt því sem skýrar verði kveðið á um efnisinntak ákvæðisins.

Breytingar þær, sem lagt er til að gerðar verði á 2. mgr. 76. gr. núgildandi laga, um sektir og eignaupptöku tollyfirvalda, eiga fyrst og fremst rætur sínar að rekja til þeirra miklu verðlagsbreytinga sem orðið hafa frá því að ákvæðunum var síðast breytt, á árinu 1976. Má ljóst vera að verðlagsbreytingar þessar hafa haft mjög neikvæð áhrif á þau markmið sem að er stefnt með ákvæðum þessum, þ. e. að auka varnað við refsiverðu atferli, jafnframt því sem heimildum þessum er ætlað að létta álagi af dómstólum vegna hinna smærri brota. Samkv. gildandi lögum er heimild tollyfirvalda til ákvörðunar sektar bundin við 80 þús. kr. og heimild til ákvörðunar eignaupptöku við 150 þús. kr. Þar sem ákvæði þessi eru eigi lengur í neinu samræmi við verðlag í landinu og gera má ráð fyrir að áhrifa þeirra til varnaðar gæti því lítt lengur, auk þess sem eigi er lengur hægt að afgreiða minni háttar mál utan réttar og því nauðsynlegt að senda þau hinum ýmsu embættum til afgreiðslu, er lagt til að heimildir tollyfirvalda til ákvörðunar sekta verði bundnar við hámarksfjárhæð, 350 þús. kr., og heimild til eignaupptöku verði bundin við 500 þús. kr.

Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um frv. þetta, en vænti þess hins vegar að hv. Alþ. sjái sér fært að samþykkja frv. Að lokum leyfi ég mér að leggja til að málinu verði vísað að lokinni þessari umr. til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.