30.04.1979
Efri deild: 85. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4281 í B-deild Alþingistíðinda. (3387)
277. mál, verslun ríkisins með áfengi
Jón G. Sólnes:
Herra forseti. Í grg. þeirri, sem fylgir því frv. sem hér er til umr., kemur ljóslega fram að forráðamönnum ríkissjóðs stendur nokkur stuggur af því að þróunin hefur verið á síðustu tímum á þann veg að tekjur ríkissjóðs vegna sölu áfengra drykkja hafa orðið mun minni en áætlað hefur verið. Ég verð að segja að mér koma þessar staðreyndir ekki neitt á óvart, og þó ég vilji ekki gera lítið úr hæfileikum hv. ráðuneytismanna til að setja fram áætlanir um tölur, því að ég veit að þeir hafa mikla reynslu og þekkingu þegar þeir fjalla um slík mál, hallast ég frekar að því að þær tölur, sem gefnar eru upp um tekjumissi ríkissjóðs í sambandi við sölu þeirra efna, sem verið er að ræða um í þessu frv., séu miklu hærri í raun en nefndar eru. Tilgreint er í aths. að tekjur ÁTVR voru 1.5 milljörðum lægri en gert var ráð fyrir að þær yrðu samkv. fjárl. 1978, og samkv. grg. eru tekjur Áfengis- og tóbaksverslunarinnar af áfengissölu á fyrsta ársfjórðungi þessa árs ca. 20% lægri en gert hefur veríð ráð fyrir.
Svo er komið og það orðið á allra vitorði, að á markaðinum eru svo dýrleg tæki og þægileg að víngerð er hreinasti skemmtiiðnaður og unun að umgangast. Hefur og sannarlega verið staðið myndarlega að því að hvetja menn og örva til mikils heimilisiðnaðar, sem er orðinn mikið ánægjuefni og augnayndi margra þjóðfélagsþegna. Ég verð að segja frá eigin brjósti: Ég er orðinn nokkuð fullorðinn, en herra minn trúr, hefðum við, þegar ég var ungur og til í tuskið, haft ráð á slíkum tækjum! Hvílíkur munur eða þegar maður var að bíða eftir því að „landinn“ læki í dropatali úr spanskgrænu smurningsolíurörunum sem stolin voru venjulega úr trillum og nótabátum sem voru uppi á grandanum, og allir geta vitað hve allt slíkt var mengað þá! — En það var samt bruggað. Og þá var ekki verið að brugga í skemmtilegum, uppyljuðum bílskúrum! Slíkt fór venjulega fram úti í fjósi eða í enn þá leiðinlegra umhverfi. Og mikið var bruggað. Ég er ekki frá því — þetta var á kreppuárunum og þá var minna um niðurgreiðslur á landbúnaðarafurðum — að nokkrir bændur hafi drýgt tekjur sínar verulega, a. m. k. gerðu það nokkrir í nágrenni Akureyrar, og ég fullyrði að svo hafi verið víðar um sveitir landsins. En þegar svo er komið að jafn dýrleg tæki og ég var að lýsa áðan eru fáanleg og það á mjög hagstæðu verði, að ég tali ekki um þegar þjóðfélagið verður fyrir því stórkostlega happi að fá ríkisstj. sem lítur svo frjálslyndum augum á þennan heimilisiðnað, að hennar fyrsta verk þegar hún sest í stólana er að afnema söluskatt af þessari nauðsynjavöru, er ekki nema von að slík uppörvun verði til þess að menn reyni að standa sig vel.
Ég veit að hv. þm. hefur verið kunn afstaða mín í sambandi við áfengismál frá því að ég byrjaði að láta heyra í mér á hinu háa Alþingi. Ég hef einnig tvívegis gert tilraun til þess að reyna að fá í gegn breytingar á áfengislögunum um að leyfilegt væri að framleiða áfengt öl í landinu. Þessar tilraunir mínar hafa ekki borið árangur. Síðast flutti ég þáltill. um að ákveðið yrði að þjóðin yrði spurð, hinn almenni kjósandi fengi tækifæri til þess að segja til um hvort hann vildi leyfa að sú breyting yrði gerð á áfengislöggjöfinni að heimiluð yrði bruggun áfengs öls. Till. náði ekki fram að ganga. Hv. alþm. voru það fastheldnir á framkvæmd lýðræðisins að þeir treystu sér ekki, samvisku sinnar vegna sjálfsagt, að veita kjósendum tækifærið, sem fólst í þáltill., til að menn mættu láta í ljós skoðanir sínar á þessu máli. Ég hef orðið var við það í samtali við ýmsa aðila, að menn hafa spurst fyrir um hverju það sæti að ég hafi ekki haldið áfram tillöguflutningi í sama dúr og ég hef gert undanfarið. Er því beinlínis til að svara, að eins og komið er málum í þessu þjóðfélagi fyrir tilstuðlan ríkisvaldsins, því að búið er að gera svo aðlaðandi og þægilegt og skemmtilegt að stunda þessa heimilisiðju fyrir þess atbeina, er mér persónulega mjög til efs að þó að þjóðin væri nú spurð að því, hvort hún vildi heimila þá breytingu á áfengislöggjöfinni að farið yrði að framleiða áfengt öl, fengist meiri hluti fyrir því. Og hver er ástæðan fyrir þessari skoðun minni? Jú, hún er einfaldlega sú: Almenningur er búinn að ná slíkum árangri við framleiðslu þessarar vörutegundar og gæði framleiðslunnar eru orðin með þeim ágætum að ríkið mundi undir engum kringumstæðum vera samkeppnisfært um verð. Hægt er að framleiða nærri því hvaða tegund sem er af bjór, hverju nafni sem menn vilja kalla hann, allar tegundir, fyrir ca. 35 kr. pottinn. Hafa ágætir stuðningsmenn mínir í þessu máli sagt við mig: Nei, vinur minn, þú þarft ekki að halda að við ætlum að fara að borga fjmrh. eða Áfengisverslun ríkisins það verð sem hún þarf til þess að geta staðið undir slíkri sölu. Það mundi verða mörg hundruð prósent dýrara fyrir okkur en að framleiða sjálfir þessar vörur núna.
Þannig hefur þá þróunin orðið. Þetta eru afleiðingarnar af því að stimpast hefur verið við undanfarin ár í þjóðfélagi þar sem heimilt er að selja í tugum lítra sterkustu áfenga drykki sem til eru á markaðnum, en harðbannað með lögum að selja veikasta drykkinn.
Samþykkt frv. þess, sem hér liggur fyrir, hefur ekki nokkur minnstu áhrif á þróun mála, eins og þau eru nú, þannig að tekjur ríkisins aukist. Það má banna með margföldum lögum hver eigi að selja gerla og tegundir bruggefnis. Þegar almenningur er búinn að ná slíkri hæfni og árangri í framleiðslu þessara vörutegunda sem raun ber vitni er mönnum hjartanlega sama hvaða lagaákvæði verða samþ. hér. Bruggunin heldur áfram. Það er ekkert léttara en að halda áfram þó að þessi lög verði samþ. En það er annað sem gæti komið í ljós og kannske orðið til þess að árangur af lagasetningu sem þessari yrði algerlega í öfuga átt. Ég gæti látið mér detta í hug ef sá árangur næðist sem stefnt er að með því að bera fram frv. eins og þetta, að hörgull yrði á lifandi gerlum og þeim frumefnum sem þarf til þess að búa til hinn ágæta bjór sem er á hvers manns borði, þá sneru menn sér næst að því að nota hin dýrmætu tæki til þess að eima. Það getur vel verið út af fyrir sig að það verði tilbreyting fyrir menn og menn fari að snúa sér að slíkri framleiðslu. Vil ég benda hæstv. fjmrh. á að þegar sú starfsemi væri búin að vera í 1–2 ár held ég að tekjutap ríkissjóðs yrði nokkrum sinnum 1.5 milljarðar og nokkrum sinnum 20%; þegar þau dýrmætu tæki sem nú eru nærri því í hverju húsi, jafnvel á meiri hluta heimila. væri almennt farið að nota til að brugga sterkar veigar.
Nei, ég held að kominn sé tími til — og það fyrir lifandi löngu — að hv. yfirvöld og þeir, sem fást við og fara með þessi mál, fáist til að líta á þau af því raunsæi sem nauðsynlegt er til að við getum umgengist málefnið af skynsemi og af sæmilegu viti. Og ég held að það komist aldrei lag á þessa hluti fyrr en við hættum að stinga höfðinu í sandinn og förum að takast á við þessi mál með fullri viðurkenningu á staðreyndum og eðlilegum hætti. Auðvitað á að leyfa sölu á öllum tegundum áfengis í þessu landi. Við erum miðsvæðis í „heimstrafíkinni“, ef svo mætti að orði komast, og við erum orðin að viðundri vegna þess hvernig við högum okkur í áfengismálum, sérstaklega í sambandi við sölu og meðferð áfengra drykkja.
Ég vil í allri einlægni og velvild segja fyrir mitt leyti: Mér er alveg eins ljóst og hverjum einum að við eigum við gífurleg vandamál að etja í þjóðfélagi okkar af afleiðingum ofdrykkju og ofnotkunar áfengis, og það má enginn skilja orð mín þannig að mér sé ekki ljós sú hætta sem felst í ofnotkun áfengis. Ég vil aðeins að gefnu tilefni nota þetta tækifæri til þess að staðfesta að ég er reiðubúinn með atkv. mínu á hinu háa Alþingi að styðja duglega við bakið á hverjum þeim aðila sem vill gera nauðsynlegar ráðstafanir til bjargar og hjálpar þeim sem berjast við það mikla böl sem ofnotkun áfengis er. En ég fer ekki ofan af þeirri sannfæringu minni, að besta lækningin í þessum málum og skynsamlegustu víðhorfin til þessara mála séu að viðurkenna staðreyndir. Við getum ekki komist hjá því. Högum okkar er þannig komið, að við getum ekki einangrað okkur og verið eins og hvert annað eyðisker þar sem útilokað sé með öllu að ná í áfengan bjór. Ég held að það eigi að vera stefna löggjafans í þessu máli að líta á þetta mikla vandamál, sem það vissulega er, frá uppeldislegu sjónarmiði. Ef það þykir nauðsynlegt að hefja kynferðisfræðslu meðal barna sem hafa náð 6–7 ára aldri, hví skyldi þá ekki vera ástæða til þess að fræða æskuna um skaðsemi og skaðleg áhrif áfengisnotkunar um leið og þjóðfélagið viðurkennir að það er beinlínis ekki hægt að útiloka áfengisnotkun í þjóðfélaginu? Ég held að það væri því miklu betra ef hæstv. yfirvöld, sem hafa með framkvæmd þessara mála að gera, vildu taka á sig rögg og snúast við þessum vandamálum, ekki á þann veg sem stefnt er að með flutningi þessa frv., heldur kæmu þessum málum í einhvern skynsamlegan farveg með fræðslu, skynsamlegri löggjöf og skynsamlegri framkvæmd þeirrar löggjafar, þannig að okkur mætti takast að kenna þjóðinni að umgangast áfengi og áfenga drykki á manneskjulegan og menningarlegan hátt. Með því eina móti mundi okkur takast að ráða við og minnka eða lina þær miklu þjáningar sem vissulega eru fyrir hendi í hinu fámenna þjóðfélagi okkar af ofnotkun áfengis, sem við áreiðanlega allir erum sammála um að við viljum veita styrk til þess að bæta úr.