30.04.1979
Efri deild: 85. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4285 í B-deild Alþingistíðinda. (3389)

277. mál, verslun ríkisins með áfengi

Oddur Ólafsson:

Herra forseti. Ég kem hér upp í ræðustól til þess að láta í ljós stuðning minn við þetta frv. Ég geri það fyrst og fremst vegna þess að mér er alveg ljóst og allir vita að þau efni, sem hér er um að ræða, eru flutt inn til landsins í þeim eina tilgangi að brugga áfengt öl. Hvort sem áfengt öl er nauðsyn eða æskilegt, er óeðlilegt að á meðan bannað er að brugga áfengt öl í landinu og bannað að neyta þess sé með vitund yfirvalda flutt inn efni í þeim eina tilgangi að nota það til þess arna.

Annars langar mig til að velta því fyrir mér, hvort sá samdráttur, sem orðið hefur í sölu Áfengisverslunar ríkisins, sé fyrst og fremst eða eingöngu þessu atriði að þakka. Það er ekki nýtt fyrirbrigði að á vissum tímabilum dragist sala á áfengi saman og það fer eftir ákveðnum farvegi. Ef kaupgeta í landinu minnkar dregst áfengissalan eitthvað saman. Ef áfengisverðið hækkar skyndilega til muna dregst salan saman. Venjan er svo sú að það jafni sig með tímanum. Ég held að það, sem hafi e. t. v. ekki síður verkað í þá átt að minnka sölu hjá Áfengisverslun ríkisins, sé í fyrsta lagi afturvirkni skatta, sem olli því að margir, sem hefðu haft rúm fjárráð seinni hluta árs, höfðu það ekki lengur, í öðru lagi stórkostleg hækkun á bensínverði, sem hefur rýrt kaupgetu fólks gífurlega mikið, og í þriðja lagi óttinn við hvað væri fram undan og því væri farið varlegar í notkun fjármuna en áður. Ég held að þetta hafi allt saman mikil áhrif á sölu Áfengisverslunar ríkisins. Hitt er svo annað mál, að vafalaust er mikið keypt af bruggunarefnum, þótt ég geti ekki almennilega fellt mig við að skýra samdráttinn í áfengissölunni með því, ekki síst vegna þess að oft leiðir bjórdrykkja einmitt til drykkju á sterkara áfengi og þess vegna er ekki vafi á að í vissum tilfellum hefur bruggun áfengs öls í för með sér enn þá frekari og langvinnari drykkju áfengis frá Áfengisverslun ríkisins.

Annars er því ekki að neita, eins og ég oft sagt hér áður, að erfitt er að andæfa framleiðslu eða sölu á veikum drykkjum í landi þar sem sterkir drykkir eru fyrir hendi. Ég vil þó geta þess, að ef við t. d. hugsum til barna og unglinga er nokkur eðlismunur á því að drekka öl eða drekka vín. Það er fullkomlega afsakanlegt að drekka öl og þá sama hvort prósentan er 2, 2.2 eða 2.3, það er ekki meginatriði, en að er allt annað að drekka brennivín eða annað vín. g held að kannske liggi það til grundvallar því, að við andæfum sölu áfengs bjórs mjög mikið, að við getum fengið veikt áfengi hér í landi. Við höfum hvítvín og rauðvín og öll þau veiku vín sem mér hefur lengi fundist að væru of hátt verðlögð hér í landi og ef við kærum okkur um að drekka veika drykki eru þeir fyrir hendi hér.

En það þýðir ekki að stinga hausnum í sandinn, eins og sagt var áðan. Alþjóðastofnanir eru loksins búnar að finna út að áfengi sé skaðlegt og svo hroðalega skaðlegt að Alþjóðaheilbrigðisstofnunin er loksins búin að viðurkenna að það sé eitt mesta böl mannkynsins, bæði heilsufarslegt og félagslegt. Þess vegna er náttúrlega ekki nokkur glóra í því að vera að halda því fram, að það mundi bæta eitthvað fyrir okkur að fá bjór til viðbótar. Flestar þær þjóðir, sem eru nú að uppgötva, hvað þær eru í raun og veru illa staddar heilsufarslega, hafa drukkið bjór öldum saman. Og ég held að það sé kannske að koma í ljós að íslenska þjóðin er ekkert verr stödd en aðrar þjóðir, þó rétt sé, eins og kom fram hjá hæstv. ráðh., að áfengisneysla er eitt mesta félagslega vandamál landsins. Við erum ekkert verr staddir en aðrir í því efni, það er mikill misskilningur. Fjöldi þjóða er miklu verr á vegi staddur í þessum efnum en við. Ég held því að rétt sé að hamla gegn bruggun.

Það má vera að sá tími sé ekki langt undan að svo fari með áfengið sem með tóbakið. Fyrir 10–20 árum hefði ekki þýtt að minnast á það við nokkurn mann, að sá tími kynni að renna upp að framleiðsla sígarettunnar yrði bönnuð. En það virðist ekki vera langt undan að það komi fyllilega til greina. Ef það væri ekki svona mikið atvinnuspursmál og viðskiptaspursmál væri eflaust búið að banna tóbakið. Þannig geta tímarnir breyst. Það er að sýna sig að neysla áfengis fer vaxandi með vaxandi kaupgetu í fjöldamörgum löndum. Það þýðir að skaðvænu áhrifin margfaldast og betur kemur í ljós hvað áfengi er stórskaðlegt. Því mun verða reynt að hamla gegn skaðlegum áhrifum þess.