30.04.1979
Neðri deild: 79. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4290 í B-deild Alþingistíðinda. (3400)
272. mál, hátekjuskattur
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Ég hef fullan skilning á viðleitni hv. flm. sem standa að frv. því sem hér er til umr. Það er afar skiljanlegt að þeir vilji reyna að stemma stigu við þeim ójöfnuði sem ríkir í launamálum í þessu þjóðfélagi, og er það að sjálfsögðu í anda þeirrar stefnu sem þeir eru fulltrúar fyrir.
En þó er ástæða til að skoða þetta mál örlítið frá nokkrum hliðum. Ég er hræddur um að þegar það verður gert í n., en málið fer þangað til athugunar, komi í ljós að ýmsir erfiðleikar hljóta að verða á framkvæmd þessa máls. Ég þarf ekki annað en minnast á að það eru tvær fyrirvinnur í fjölmörgum fjölskyldum og tekjur manna frá einum tíma til annars eru ákaflega misjafnar. Það má m. a. s. setja upp dæmi, til þess að nefna eitthvað, sem gefur til kynna um tvær fyrirvinnur: Við getum hugsað okkur að ráðh. væri giftur lækni, sem er tekjuhár, eða hæstaréttardómara, svo að tekin séu einhver dæmi sem hægt er að ímynda sér að gætu gerst. Þá lendir þessi skattur ekki á þeim aðilum, því að þeir fara ekki hvor um sig yfir það mark sem um er að ræða. Ýmis slík tilvik geta komið upp og geta gert tilgang frv. að litlu eða engu. Þetta frv. held ég sé þess vegna fyrst og fremst tilraun til kattarþvottar — tilraun til þess að láta líta út fyrir að Alþfl. beri ekki ábyrgð á þeirri launastefnu sem ríkisstj. hefur fylgt, ef stefnu skal kalla.
Hv. 1. flm. sagði að tilgangurinn væri að setja þak á laun manna. Þá vakna ýmsar spurningar, eins og t. d.: Hvers vegna fauk launaþakið af? Hvers vegna fóru Flugleiðasamningarnir eins og þeir fóru? Og af hverju er ríkisstj. í vandræðum með launamálin? Svörin eru afskaplega augljós. Þeim var reyndar komið á framfæri við hv. þd. á sínum tíma þegar hæstv. forsrh. lýsti yfir að forsendur þess, að þakið fauk af í dómi Kjaradóms, væru að sjálfsögðu þær að Reykjavíkurborg samdi þannig við starfsmenn sína og það sama gerði t. d. Íslenska álfélagið. Þetta er tekið fram í forsendum þess dóms og þess vegna er ríkisstj. í þessum vandræðum.
En hverjar voru svo ástæður þess, að Reykjavíkurborg samdi eins og raunin varð á? Þær eru að finna í kosningabaráttu Alþfl. og Alþb. og þá einkum og sér í lagi Alþb., sem gerði það að sínum helstu kosningamálum að samningarnir færu í gildi. Það er því alfarið þessum flokkum tveimur að kenna — eða þakka — hvernig málum er nú háttað á launamarkaðinum hér á landi. Þetta ber okkur að hafa í huga. Þetta ber okkur að ítreka hér í þingsölum þannig að það fari ekki milli mála. Og ég leyfi mér að koma upp í ræðustól á hv. Alþ. til þess að rifja upp ummæli hæstv. forsrh. í þessu máli þannig að á framfæri komist hin beina viðurkenning hans á því, hvernig þessum málum er komið.
Sökin er ríkisstj. Að ríkisstj. standa þrír flokkar, þ. á m. Alþfl., og í Alþfl. eru hv. flm. þessarar till. sem nú ætla með þessu frv. að þvo hendur sínar. Það er í sjálfu sér skiljanleg afstaða þeirra sem ekki þora að takast á við afleiðingar eigin gerða. Maður verður að skilja slík viðhorf. En það breytir ekki því, að till. eins og þessi eru fyrst og fremst settar fram til þess að slá ryki í augu fólks. Þær eru ekki settar fram til þess að þær fáist samþykktar á þessu þingi. Það er ekki heil hugsun á bak við frv. Ég held að afgreiðsla þingsins á þessu máli verði í stíl við það hvernig til var stofnað.