30.04.1979
Neðri deild: 79. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4291 í B-deild Alþingistíðinda. (3401)
272. mál, hátekjuskattur
Viðskrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Hér er hreyft ákaflega þýðingarmiklu máli sem landsmenn allir eru með hugann við um þessar mundir, einkum og sér í lagi þó í framhaldi af þeim samningum sem gerðir voru við flugmenn á sínum tíma. Það er mjög eðlilegt að menn velti fyrir sér með hvaða hætti á að bregðast við samningum af því tagi. Ég er þeirrar skoðunar, að meðferð mála í svipaða veru og gerð er till. um hér í frv. hv. þm. Alþfl. eigi að koma til skoðunar. Hins vegar er flókið mál að koma því fyrir og það þarf að vanda slíka lagasmíð. Veit ég að hv. þm. hafa fullan skilning á slíku.
Ég kem hér sem sagt fyrst og fremst til að undirstrika stuðning minn við þá meginhugsun sem mér skilst að liggi á bak við þetta frv., en ég undirstrika jafnframt að á því eru verulegir tæknilegir ágallar sem þarf að lagfæra. Ég held að nauðsynlegt sé að þannig verði að staðið að tæknilegir ágallar verði ekki til að afla jafnþörfu máli óvinsælda og skapa því óánægju meðal landsmanna að óþörfu, sbr. þann áróður sem þegar er hafinn gegn þessum þanka í stjórnarandstöðublöðunum, einkum og sér í lagi í Morgunblaðinu.
Við hv. 5. landsk. þm. hef ég í sjálfu sér ekki margt að segja. Þetta var venjulegt nöldur af hálfu stjórnarandstöðunnar. Hann flutti auðvitað engar till. um eitt eða neitt í þessum efnum, var með getsakir á ríkisstj. og stjórnarflokkana út og suður sem engu breyta og engin áhrif hafa á mig frekar en aðra þm. stjórnarflokkanna í þessum efnum.
Ég bið menn að hafa það í huga í sambandi við þetta mál, að ekki má blanda því að óþörfu og á ótímabæran hátt saman við þá kjaradeilu sem nú stendur yfir af hálfu yfirmanna á farskipum og útgerðarfélaga þeirra. Ég held að skynsamlegt sé að láta reyna á það til þrautar hvað séu eðlilegust viðbrögð og vinnubrögð, láta reyna á til þrautar hvort menn geta þar náð samkomulagi. Eftir þeim upplýsingum, sem ég hef þaðan, tel ég að það þurfi alls ekki að vera útilokað. Öll ótímabær afskipti af slíku, jafnvel yfirlýsingar einstakra ráðh. um þau mál, geta spillt fyrir frekar en greitt fyrir. Það sýnir reynslan okkur frá undanförnum mánuðum.
En erindi mitt í ræðustólinn var það eitt að lýsa viðhorfum mínum til þess meginsjónarmiðs sem ég tel koma fram í frv. þeirra hv. þm. Alþfl.