02.05.1979
Efri deild: 87. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4297 í B-deild Alþingistíðinda. (3411)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Mér hefur borist svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 30. apríl 1979.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Norðurlandskjördæmi vestra, Stefán Guðmundsson framkvæmdastjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Ólafur Jóhannesson, 1. þm. Norðurl. v.“ Stefán Guðmundsson hefur tekið hér sæti áður á þessu þingi og býð ég hann velkominn á ný til starfa.