02.05.1979
Neðri deild: 80. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4304 í B-deild Alþingistíðinda. (3428)

259. mál, lausaskuldir bænda

Pálmi Jónsson:

Herra forseti. Eins og fram hefur komið á þetta mál nokkurn aðdraganda. Búið er að leggja töluverða vinnu í að athuga um stöðu bænda og lausaskuldir þeirra.

Út af fyrir sig vil ég taka fram, að ég tel góðra gjalda vert að opnuð sé heimild til lánaflokks til þess að breyta lausaskuldum bænda í föst lán, enda þótt ég telji að hér hafi ekki komið fram neitt um hvar eigi að fá fjármagn til þess að tryggja framkvæmd þessa máls. Í annan stað kom glöggt fram hjá hæstv. ráðh. að þessi bankavaxtabréf eiga að bera fulla verðtryggingu plús vexti, sem væntanlega þýðir að þau verða með miklu óhagstæðari kjörum en þau lán sem þau eiga að leysa af hólmi. Framkvæmd málsins sýnist aðallega eiga að vera í því fólgin að veita eigi bændum ný lán til að leysa af hólmi eldri lán í því formi að nýju lánin verði með miklu óhagstæðari kjörum en gömlu lánin.

Það var auðvitað rétt tekið fram hjá hæstv. ráðh., að engin skuldbinding er í því fólgin af opinberri hálfu að kaupa þessi bréf, en væntanlega verða heldur engar skuldbindingar um það af hálfu bænda, að þeir taki þessi nýju lán til þess að þyngja á sér lánskjörin.