02.05.1979
Neðri deild: 80. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4313 í B-deild Alþingistíðinda. (3438)

190. mál, ráðstafanir vegna lánsfjáráætlunar 1979

Lúðvík Jósepsson:

Herra forseti. Vegna fjarveru minnar af þingi gat ég ekki tekið þátt í afgreiðslu þessa máls í fjh.- og viðskn. nema að litlu leyti, í upphafi afgreiðslutímans. Ég mun af þeim ástæðum ekki gera neina tilraun til þess að tefja þá afgreiðslu, sem hér liggur nú fyrir. Það hefur tekist ákveðið samkomulag um afgreiðslu málsins a. m. k. í meginatriðum, og mér þykir sjálfsagt að málið gangi áfram, a. m. k. til 3. umr. Hvort aðstaða gefst til þess á milli 2. og 3. umr. að skoða einstaka þætti málsins verður svo að ráðast. En ég vildi eigi að síður láta koma fram nokkuð afstöðu núna til málsins eins og það liggur nú fyrir, sem er líka að mörgu leyti í samræmi við það sem hefur fram komið af minni hálfu áður þegar þetta mál var rætt við 1. umr.

Það er þá í fyrsta lagi, að ég hef gert nokkra aths. við 3. gr. frv., en þar er um að ræða samskipti ríkisvaldsins við lífeyrissjóðina í landinu. Ég skildi ummæli hv. frsm. n. þannig, að ætlað væri að athuga nokkru nánar um orðalag á þessari grein á milli 2. og 3. umr., enda er mér kunnugt um að í mínum flokki eru menn sem vilja gera breytingar á greininni og stefna að því að flytja um það brtt. ef ekki næst samkomulag um tilteknar breytingar á orðalaginu. Ég vil segja að ég tel að afgreiðsla málsins í þeim búningi, sem á 3. gr. er nú, væri mjög óheppileg og mundi leiða af sér margvísleg vandkvæði fyrir ríkisstj. Enginn vafi er á því, að hyggilegra hefði verið að hafa þann hátt á að reyna til hins ítrasta að ná samkomulagi við lífeyrissjóðina um ráðstöfun á því fjármagni sem er verið að seilast eftir frá þeim. Sú lögbindingarleið, sem hér er valin og á þann hátt sem gert er í þessari grein, er ég mjög hræddur um að verði erfið í framkvæmd og muni leiða af sér miklu meiri vandkvæði fyrir hæstv. ríkisstj. en hún hefur gert sér grein fyrir. Það er eins og í fleiri slíkum málum þýðingarmikið að gera sér grein fyrir því strax í upphafi hvernig best sé að ná marki, t. d. í samskiptum við fjölmenn hagsmunasamtök í landinu eins og þau sem standa að lífeyrissjóðakerfinu.

Ég tel líka að þetta hafi komið greinilega í ljós í sambandi við setningu laga um efnahagsmál. Þá taldi ég líka vera farið mjög óhyggilega að: að slá í rauninni á útrétta hönd launþegasamtakanna í landinu, sem höfðu allan tímann boðið núv. hæstv. ríkisstj. ákveðið samstarf. En þá þótti ekki fært að fara samkomulagsleiðina og þá voru knúin í gegn ýmis ákvæði, og ég er mjög hræddur um að hæstv. ríkisstj. eigi eftir að reka sig á að fyrirskipunarleiðin getur líka verið kostnaðarsöm.

Það er þetta atriði varðandi 3. gr. frv. sem ég sérstaklega hnýt um. Ég held að hægt hefði verið að ná því markmiði, sem að er stefnt í sambandi við ráðstöfun á fjármagni lífeyrissjóðanna til samræmis við meginatriðin í stefnu ríkisstj., eftir samkomulagsleið. En með fyrirskipunarleið eins og þeirri, sem mörkuð er í 3. gr. frv., er ég hræddur um að allt fari úr böndunum. Þetta vildi ég láta koma fram sem mína skoðun á þessu máli og hafði reyndar vikið nokkuð að því við 1. umr. málsins.

Þá er annað atriði sem ég hef aths. við að gera, en það eru ákvæðin í 11. gr. frv. Ég tel að það ákvæði, sem er í 11. gr., þar sem sú nýbreytni er tekin upp að fyrirskipa í lögum að taka 2000 millj. kr. af skyldusparnaði ungmenna, sem ákveðinn hefur verið með lögum til ákveðinnar starfsemi, þ. e. a. s. til rekstrar Byggingarsjóðs ríkisins, og ætla að ráðstafa fjármagninu á allt annan hátt, sé óhyggilegt og sé í rauninni ekki verjandi leið. Ég hafði þó minnst á það áður, að ef aðeins væri um að ræða að þetta fjármagn væri lánað til annarra þarfa til mjög stutts tíma, eins og t. d. til eins árs, mætti þola þá aðgerð að ráðstafa þessu fjármagni aðeins með bráðabirgðaláni, en að taka 2000 millj. kr. af skyldusparnaði ungmenna sem bundinn er með húsnæðismálalöggjöf og ráðstafa fjármagninu til allt annarra hluta tel ég í rauninni alveg siðlausa aðgerð. Ég er á móti þessu og mun greiða atkv. á móti greininni, því að ég tel að varast eigi að knýja fram skyldusparnað í tilteknu skyni og hlaupa svo frá á miðri leið þegar búið er að innheimta féð. Ef hæstv. fjmrh. hefði lýst yfir að framkvæmdin á þessum lið væri hugsuð þannig að hér væri aðeins um bráðabirgðalán að ræða, t. d. til eins árs eða svo, svo yrði fjármagninu skilað aftur til hins rétta aðila og til síns upphaflega verkefnis, liti málið allt öðruvísi út.

Þá hef ég einnig aths. að gera við 12.–20. gr., en þær eru að mínum dómi allar gagnrýni verðar. Þó að n. geri á greinunum talsverðar breytingar til bóta tel ég að uppsetning greina þessara sé ekki í samræmi við það samkomulag, sem gert var á milli stjórnarflokkanna við afgreiðslu fjárlaga um ákveðinn samdrátt í sambandi við ráðstöfunarfé Framkvæmdasjóða eða stofnlánasjóða. Þar var beinlínis gert ráð fyrir að draga úr lögbundnum framlögum til stofnlánasjóðanna sem næmi 10% af því sem annars er bundið með lögum. Ég tel að það hefði átt að halda sig við þetta og setja frv. upp í þeim búningi, en ekki á þann hátt sem gert var og ekki heldur á þann hátt sem meiri hl. n. hefur þó gert. Ég tel líka að þær fjárhæðir, sem nefndar eru nú eftir breytingu frá meiri hl. fjh.- og viðskn., séu ekki fullnægjandi. Þar nefni ég t. d. framlagið til Fiskveiðasjóðs, sem ég tel að sé mjög ranglega túlkað í þessari löggjöf. Samkomulagið, sem gert var á milli stjórnarflokkanna um að draga úr framlögum til Fiskveiðasjóðs sem næmi 10% af lögskyldu framlagi, var. miðað við hvernig lög stóðu þegar verið var að afgreiða fjárlög, þ. e. a. s. í desembermánuði. Það var því 10% af þeim framlögum sem gert var ráð fyrir samkv. lögum eins og þau stóðu þá. En síðan er gerð breyting á lögum um Fiskveiðasjóð, í rauninni bráðabirgðabreyting af sérstökum ástæðum, snemma í marsmánuði, þar sem teknar eru af tekjum sjóðsins í kringum 450 millj. kr. og varið í sérstakan olíusjóð í sambandi við verðhækkun á olíu. Nú sýnist mér að 10% niðurskurður á framlaginu til Fiskveiðasjóðs sé miðaður við að hann komi til viðbótar við þann niðurskurð sem þegar er búið að reikna með sérstaklega. Raunverulega verður útkoman sú, að minnkuð framlög frá gildandi lögum til Fiskveiðasjóðs munu nema á milli 700 og 800 millj. kr., sem er miklu hærri fjárhæð en nokkrum hafði komið til hugar í sambandi við lækkun á framlagi til þess sjóðs. Þetta tel ég ekki vera í samræmi við það samkomulag sem gert var á milli stjórnarflokkanna og hér sé því um að ræða að nýtt samkomulag sé tekið upp um að skera niður framlögin til sjóðsins miklu meira en fyrra samkomulagið stóð um. Ég er þessu andvígur og tel að það hafi ekki verið rétt og aðstæður séu ekki til að skera niður framlögin til stofnlánasjóðanna meira en var gert ráð fyrir í sambandi við afgreiðslu fjárlaga.

Þessi atriði vildi ég að kæmu fram varðandi afstöðu mína til málsins. Ég mun styðja allan megintilgang frv., eins og ég hef tekið fram áður, en tel að breytingar hefði átt að gera því að þær hefðu verið í samræmi við það sem áður var gert.

Þá er á það að minnast, að uppi hafa verið hér umr. um að með einum eða öðrum hætti þyrfti að útvega fjárframlög vegna stöðu landbúnaðarins sem gætu numið 3.5 milljarði kr., og rætt hefur verið um lántöku í því skyni. Mér skilst að hæstv. landbrh. hafi beinlínis lagt fram till. um það í ríkisstj. að farin yrði sú leið að taka erlent lán til viðbótar þeim lánum, sem gert er ráð fyrir í lánsfjáráætlun, sem næmi 3.5 milljörðum kr. Sé ætlunin að taka það lán tel ég að það eigi að koma inn í lánsfjáráætlun, því að ákvæði í hinum nýju efnahagslögum gera beinlínis ráð fyrir að ekki sé hægt að taka viðbótarlán umfram það sem ráð hafi verið gert fyrir í lánsfjáráætlun ríkisins nema þá meiningin sé ný túlkun á því ákvæði frv. að ekki sé að marka það. Mér þykir að vísu mjög sennilegt að svo fari að það ákvæði í efnahagslögunum nýju standist aldrei í reynd, — það fari svo, að hver sem við völd er verði að víkja frá því og fara jafnvel í meiri lántökur ef mál ber svo að, en geti ekki verið bundinn af slíku lagaákvæði. En lagaákvæðið er þó nýlega samþykkt og þá þykir mér harla einkennilegt að gera ekki ráð fyrir því að setja inn í lánsfjáráætlun heimild til ofangreindrar lántöku. Ég vek athygli á þessu. Það er að sjálfsögðu hægt á milli 2. og 3. umr. að koma lántökuheimild inn í frv., þannig að ekki þurfi að stranda á að heimild sé ekki fyrir hendi ef um það gæti orðið samkomulag í ríkisstj. að fara þessa leið í sambandi við vandamál landbúnaðarins.

Ég skal svo ekki lengja þessar umr. frekar, en vildi að þessar aths. mínar varðandi afgreiðslu málsins kæmu hér fram. Ég mun að sjálfsögðu styðja að málið nái fram að ganga til 3. umr. Gefst þá væntanlega tími til að athuga málið nánar á milli 2. og 3. umr.