03.05.1979
Efri deild: 88. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4327 í B-deild Alþingistíðinda. (3446)

198. mál, fjörutíu stunda vinnuvika

Frsm. minni hl. (Guðmundur Karlsson):

Herra forseti. Minni hl. félmn. skilaði séráliti í þessu máli eins og við var að búast.

Við teljum að þarna sé um mál að ræða sem best sé komið hjá viðkomandi hagsmunaaðilum og sé ekki á valdsviði löggjafans. Segja má að það hljómi svolítið undarlega, en stjórnarliðar túlka þetta þannig að þeir séu að færa lægst launaða fólkinu gjafir hverja af annarri þegar ríkisstj. er greinilega búin að missa gersamlega tökin á launamálum, eins og sjá má af framvindu bæði flugmannaverkfallsins og að nú sýnist ætla að verða hið sama uppi á teningnum í sambandi við farmannaverkfallið.

Það má segja að að þessum málum hafi mjög mikið verið unnið úti á vinnumarkaðinum. T. d. má segja frá því, að úti í Vestmannaeyjum hafa aðilar t. d. komið sér saman um það, bæði vinnuveitendur og verkafólk, að stytta vinnudaginn frá því sem verið hefur. Í mörgum tilfellum hefur verkafólkið tekið sig fyrst og fremst fram um að stytta vinnudag sinn og tilkynnt vinnuveitendum hreinlega að það mætti ekki til vinnu á ákveðnum dögum, sem er ósköp eðlilegt. T. d. er alls ekki unnið laugardaga og sunnudaga yfir sumartímann og yfir vetrartímann vinna verkakonur alls ekki á sunnudögum, nema í síld og loðnu, og kemur fram að báðir aðilar taka tillit til þeirra aðstæðna sem eru á hverjum stað. Sama er uppi á teningnum, geri ég ráð fyrir, víðast hvar í kringum landið. Þessir aðilar stefna að því að haga svo málum sem hagkvæmast er á hverjum stað og hverjum tíma.

Við teljum að þetta mál eigi fyrst og fremst að vera í höndum viðkomandi aðila og á því fari best.