03.05.1979
Efri deild: 88. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4330 í B-deild Alþingistíðinda. (3453)
194. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands
Frsm. (Stefán Jónsson):
Herra forseti. Það er ánægjuefni að hér í d. virðist vera sátt um þá leið sem sjútvn. leggur til að yfirveguðu ráði.
Ég kem upp í ræðustólinn öðru sinni að gefnu tvöföldu tilefni, fyrst frá hv. þm. Alexander Stefánssyni og síðan frá Guðmundi Karlssyni. Vikið var að möguleikunum á því að nýta og vinna kolann, sem veiðist, í arðbæra vöru. Svo vill til að við höfum hér við Faxaflóa vélar sem ætlaðar eru til kolaflökunar, og þar sem við leggjum til að Hafrannsóknastofnunin haldi áfram tilraunum með kolaveiðar á Faxaflóa bætum við því einnig við, að það verði til þess gert að skorið verði úr því hvort nýta megi þennan fiskstofn á skynsamlegan hátt þannig að ekki skaði fiskislóðina. Á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar hefur þetta verið gert lítillega á síðustu tveimur árum. Við erum hér að fara fram á að slíkum tilraunum verði haldið áfram og þær auknar þannig að niðurstöður verði marktækar. Til þess að hægt sé að gera marktæka tilraun, bæði um veiðarnar og áhrif þeirra og eins um nýtingu á kola, verður að sjá til þess, að hægt sé að reynsluvinna kola í nefndum vélum, og sjá svo til hvernig efnahagsleg útkoma úr því verður. Þetta er náttúrlega innifalið í því sem við erum að reyna að koma hér á framfæri við hv. d. og í þeirri von að hún staðfesti það til ríkisstj. Þetta er ákaflega þýðingarmikið atriði.
Ég verð að segja eins og er, að eftir að ég hafði komist að þeirri niðurstöðu við eftirgrennslan, að þetta snurvoðamál í Faxaflóa hefði verið léttilega kynnt fyrir þeim sem hvattir voru til undirskrifta, þá vógu undirskriftirnar í meðallagi þungt í vitund minni við umfjöllun þessa máls. Það breytir ekki því, að þessi fiskislóð er almenningur og íbúarnir á þessu svæði eiga umsagnarrétt um hvernig sá atmenningur verði nytjaður. Það fer ekkert milli mála. En það er fyrir löngu búið að gera þetta dragnótamál að tilfinningamáli hérna á Faxaflóasvæðinu. Að vissu leyti er það vel að svo sé, að fólkið láti sig þetta máli skipta, og ég er sömu skoðunar og ýmsir nm. og þá kannske e. t. v. fyrst og fremst hv. þm. Oddur Ólafsson, um það sem kom fram af hálfu hans í n., því að ég hygg að rétt sé að mörgum spurningum í sambandi við notkun snurvoðarinnar sé ósvarað og það er vel að svara sé leitað við þeim spurningum af hálfu Hafrannsóknastofnunar. En þrátt fyrir þá röksemdafærslu, að vafasamt sé að opna Faxaflóann fyrir dragnótaveiðum yfirleitt fyrr en að loknu lengra tímabili, skil ég ekki ugg og andúð þeirra manna á takmörkuðum dragnótaveiðum undir fræðilegu eftirliti í Faxaflóa sem hvetja mjög svo eindregið til dragnótaveiða á öðrum stöðum og jafnvel án slíks eftirlits og með miklu grófari og óvarfærnislegri veiðarfærum en ætlunin var að nota á Faxaflóanum. Ég skil ekki þá andstöðu til hlítar. Ég veit aftur á móti að hún er sprottin af einlægu hugarfari.
Ég vil gjarnan láta það koma svart á hvítu í þskj., að ég hefði kosið persónulega að við hefðum samþykkt frv. sem hér er um að ræða með þeim breytingum sem komnar voru fram í d. — breytingum á þá lund að afli umfram 15% af öðrum nytjafiskum en kola yrði gerður upptækur í Landhelgissjóð eða til Slysavarnafélags og að Hafrannsóknastofnun gerði sérstakar ráðstafanir til að fylgjast með veiðunum þær tvær haustvertíðir sem ráðgerðar voru til reynslu. Mér hefði verið nær skapi að samþykkja málið í þeirri mynd. En hitt er alveg efalaust, og ég sannfærðist m. a. um það eftir að hv. þm. Alexander Stefánsson hafði lýst yfir skoðunum sínum mjög eindregið í n., ef manni leyfist að vísa svo mjög til umr. í n., og aðrar undirtektir sem þar komu fram, að málið hefur raunar ekki verið undirbúið á þann hátt sem þarf um mál eins og þetta, hvorki pólitískt, þ. e. a. s. í umfjöllun meðal fólksins, né heldur fiskifræðilega eða tæknilega. Málið var ekki komið á það stig, og því miður varð það niðurstaðan hjá mér að við ættum á hættu of mikla sundurþykkju ef við færum að knýja á um samþykkt frv. í þessari mynd. E. t. v. kynni það að leiða til þess að sár móðursýkinnar, sem ríkt hefur um þetta mál, kynnu að ýfast upp og við jafnvel að loknu þessu tilraunatímabili standa fjær því að fá skynsamlega lausn á málinu en áður. Aftur á móti hygg ég að það sé á mati Hafrannsóknastofnunar að gera þessar tilraunir, útfæra þær, auka þær og gera þær þannig að þær verði ekki tortryggilegar í hugum fólksins á þessu svæði og okkur auðnist þá, við skulum segja að tveimur árum liðum, að loknum tveimur haustveiðitímabilum, að taka þetta mál upp að nýju og ræða það á traustari grundvelli, láta reynsluna þá skera úr og miða lagasetningu um þetta við þá fræðilegu niðurstöðu.
Í lokin ætla ég, vegna þess að ég hef orðið þess var að menn hafa verið að lá flm. frv., Ólafi Björnssyni, flutning þess vegna þess að hann hefði persónulegra hagsmuna að gæta, að andmæla því sjónarmiði. Ég hygg að það sé efalaust, að hv. flm. hafi flutt þetta mál í þinginu vegna þess að hann hafði atvinnu sinnar vegna og reynslu sérstakan áhuga á því, ákveðna sannfæringu. Ég vil a. m. k. sjálfur þakka honum kærlega fyrir að hafa flutt það.