03.05.1979
Neðri deild: 81. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4338 í B-deild Alþingistíðinda. (3464)

44. mál, þingfararkaup alþingismanna

Eggert Haukdal:

Herra forseti. Það var af hlífð við hv. þm. við atkvgr. áðan að ég bað ekki um nafnakall, en það hefði sannarlega verið eðlilegt. Í þeirri mynd sem frv. er núna er það miklar umbúðir utan um lítið, en þrátt fyrir það segi ég já.