03.05.1979
Neðri deild: 81. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4339 í B-deild Alþingistíðinda. (3466)

7. mál, ráðstafanir vegna breytingar á gengi íslenskrar krónu

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Hæstv. sjútvrh. flytur við 3. umr. þessa máls tvær brtt. Er önnur till. þess efnis að aftan við 3. gr. komi ný mgr.: Áður en kemur til skipta á fé samkv. a- og b-lið þessarar greinar skal greiða lífeyrissjóði sjómanna 75 millj. kr. til að verðbæta örorku- og lífeyrisgreiðslur og aðrar tryggingabætur til sjómanna og 15 millj. kr. til orlofshúsa sjómannasamtakanna og enn fremur 10 millj. kr. sem varið yrði til öryggismála sjómanna samkv. nánari ákvörðun sjútvrh. og samgrh.

Ég flutti ásamt fjórum örðum þm. till. við 2. umr. málsins hér í hv. d. um að greiða lífeyrissjóði sjómanna 175 millj. kr. til að verðbæta örorku- og lífeyrisgreiðslur og aðrar tryggingabætur til sjómanna og 25 millj. kr. til orlofshúsa sjómannasamtakanna. Sumir hv. þm. sem greiddu atkv. gegn þeirri till., gerðu grein fyrir atkv. sínu og vitnuðu til þess að sjútvrh. mundi að lokum, við 6. umr. málsins á Alþ., flytja till. þess efnis að koma eitthvað til móts við sjómenn.

Ég hef haldið því fram, og held því fram mjög ákveðið, að við gengisbreytingar eigi sjómenn fullan rétt á að fá ákveðna hlutdeild í gengishagnaði. Um það er ekki deilt að 50% af gengishagnaði fari til Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins, en það er gert fyrir allar greinar sjávarútvegsins, sjómenn, útgerð og fiskvinnslu. Hitt er sanngirnismál, að sjómaðurinn, sem er mikilvægur þátttakandi í þessari framleiðslu, fái á einhvern hátt að njóta þess. Till., sem við fimmmenningarnir fluttum, var í samræmi við það sem hafði gerst við næstsíðustu gengisbreytingu og við gengisbreytinguna þar á undan. Það var ekki verið með neitt yfirboð í þessum efnum þó að við værum stjórnarandstæðingar. Till. var í fullu samræmi við þá upphæð sem kemur til skipta af gengishagnaði og í fullu samræmi við það sem gerðist við þær gengisbreytingar sem ég nefndi. En það undarlega gerðist, að hæstv. sjútvrh., sem telur sig til verkalýðsflokks, skar till. niður um helming, lét sem sagt stjórnarliðið, eða það af stjórnarliðinu sem lét að stjórn, fella till., en flytur svo — auðvitað nauðugur — við 3. umr. í síðari d., við 6. umr. málsins, till. um 100 millj. kr. Það má því segja að stjórnarandstaðan hafi þó gert það að verkum að ráðh. flutti till. og þá væntanlega stjórnarliðið eða það af því sem er í stuðningi við hann, en það eru menn úr öllum flokkum. Þar er með talinn 3. þm. Suðurl. sem drap fyrrnefndu till. vegna þess að hann treysti því að till. kæmi frá sjútvrh. við 6. umr. þar sem ekki yrði skorið við nögl, en hann er einn af þeim þm. sem hafa ekki viljað skera framlög við nögl þegar hans starfsgrein hefur átt hlut að máli fyrr en nú eftir að hann lagði traust sitt á Alþfl. með þeim árangri að skorið er niður framlag til lífeyrissjóðs sjómanna um 100 millj., farið niður í 75 millj., og það er skorið niður framlag til orlofshúsa sjómannasamtakanna úr 25 í 15 millj. og 10 millj. varið til öryggismála sjómanna samkv. nánari ákvörðun sjútvrh. og samgrh. — Ég held að 10 millj. kr. framlag til öryggismála sjómanna eða öryggis í skipum sé ákaflega lítilfjörleg upphæð. Það er auðvitað meira virði að auka framlög lánasjóðanna til að lána til útgerðar, svo hún geti bætt öryggismál sjómanna, en koma með þennan sparðatíning. Til orlofshúsa sjómannasamtakanna fer ekki há upphæð miðað við það sem gerðist í tíð fyrri ríkisstj. Mér skilst að hæstv. sjútvrh. og þm. mörgum hverjum hefði ekki þótt mikið til þess koma. En er furða þótt ekki þyki mikið að leggja nú til 15 millj. þegar lítið þótti fyrir þremur árum að leggja fram 11 millj. í þessu skyni? Farið er að draga verulega úr. Og ekki er verið að íþyngja ríkissjóði í þessum efnum því að hér er aðeins um að ræða að skipta því fjármagni sem kom af gengishagnaði vegna breytingar á gengi krónunnar á s. l. hausti. Þarna er ekki um annað að ræða en fé sem myndast innan sjávarútvegsins.

Það getur vel verið að meginþorra stjórnarliðsins sé umhugað um að láta alls ekki yfir 100 millj. til málefna sjómanna. Þó vil ég taka fram að 1. þm. Austurl. lýsti yfir stuðningi sínum við till. mína, en hann var fjarverandi þegar atkvgr. fór fram og varamaður hans greiddi ekki atkv. með till., ekki heldur á móti, og flestir flokksmanna hans felldu hana þrátt fyrir yfirlýsingu 1. þm. Austurl. og beggja nm. Alþb. í fjh.- og viðskn. Svo mikið kapp var lagt á að sinna ekki þessum sjálfsögðu félags- og réttindamálum sjómanna. Það stóð auðvitað ekkert á Framsfl. að skera niður um 100 millj. þegar sjómenn eru annars vegar. Ég skal láta þess getið í leiðinni svo að það fari ekki fram hjá neinum.

Hin till., sem hæstv. sjútvrh. flytur, er kannske flutt af annarri ástæðu. Hann varð fyrir miklu áfalli við 2. umr. málsins þegar brtt. Lúðvíks Jósepssonar og Kjartans Ólafssonar voru samþykktar. Það kom mjög á sjútvrh. er till. þeirra voru samþykktar hér í d. Hefur liðið langur tími á milli 2. og 3. umr. af þeim sökum að menn hafa þurft alllangan tíma til þess að jafna sig eftir það áfall. Hæstv. forseti hefur líka verið afskaplega rólegur í því að taka málið fyrir. Sýnir það að hann er trúr og dyggur og góður við ríkisstj. sem góðum stjórnarþm. auðvitað sæmir að vera. En nú á sem sagt að fara að manna sig upp og afgreiða 7. mál þingsins með þeim harmkvælum sem hafa átt sér stað á undanförnum vikum og mánuðum.

Brtt. flytur hæstv. sjútvrh. við b-lið 3. gr. Aftur að t. tölul. verði b-liður óbreyttur eins og hann er núna í frv., en í 1. tölul. leggur ráðh. til að 50% skuli veitt til hagræðingar í fiskiðnaði og til þess að leysa sérstök staðbundin vandamál. Meiri hl. í þessari hv. þd. samþykkti við 2. umr. að 50% af því, sem kemur í Gengismunarsjóð af andvirði þeirra afurða sem taldar eru upp í a-lið þessarar greinar, skyldu veitt sem lán til hagræðingar og framleiðniaukningar í fiskiðnaði og lánið skyldi fyrst og fremst veitt til kaupa á vélum og tækjum og til að koma upp kældum fiskmóttökum, eins og segir í samþykkt deildarinnar við 2. umr. Nú er aftur tekið fram að 50% skuli veitt til hagræðingar í fiskiðnaði. Ég spyr: Af hverju má ekki segja eins og d. samþykkti áður, að 50% skuli veitt sem lán til hagræðingar? Því er orðið „lán“ fellt niður? Er það viljandi eða óviljandi gert? Mér er fullkunnugt um, ég vil ekki vera það ósanngjarn við hæstv. sjútvrh., að hann er búinn í trausti þess að hafa meiri hl. á Alþ. fyrir því, að ráðstafa allverulegum upphæðum af hagræðingarfénu. Það kemur sér auðvitað illa. Hins vegar verða menn að flýta sér hægt í þeim efnum nema hafa það alveg tryggt og þá auðvitað fyrst og fremst innan ríkisstjórnarflokkanna. Ef hann hefði viljað leita samstarfs um afgreiðslu á þessu máli, sem er ekkert stórpólitískt mál, — ráðstöfun gengishagnaðar ætti meira að vera samkomulagsmál, — hefði ég talið vera hyggilegra að reyna eftir 2. umr. að fá samkomulag um breytingar sem allir hefðu getað sætt sig við, en ekki að tala við einn ákveðinn nm., þó að hann tilheyri stjórnarflokki, og segja að það sé samkomulag. Ég er ekki búinn að sjá að það sé fullt samkomulag í stjórnarliðinu um þessa brtt. sjútvrh., en það kemur þá á daginn.

Annar liðurinn: 40% skal varið til að létta stofnfjárkostnaðarbyrði eigenda fiskiskipa, sem orðið hafa fyrir gengistapi vegna erlendra og gengistryggðra lána. Er niður fellt frá frv. „samkv. nánari reglum sem stjórn Fiskveiðasjóðs setur“. Hæstv. sjútvrh. leggur til að það sé fellt niður. Hvað er á bak við það? Hvað hefur hann á móti því að sagt sé „samkv. nánari reglum sem stjórn Fiskveiðasjóðs setur“? Við ráðstöfun gengishagnaðar við nokkrar undanfarnar gengisbreytingar hafa slíkar reglur alltaf verið settar af stjórn Fiskveiðasjóðs og ákvæði um það var komið inn í frv. eins og það var samþykkt við 2. umr. málsins hér í hv. þd. Hvað liggur þá á bak við að taka þá setningu út? Þetta er fjármagn sem sjávarútvegurinn á, sem kemur til ráðstöfunar í sjávarútvegi. Stjórn Fiskveiðasjóðs er mynduð af fulltrúum bankanna, fulltrúum útgerðar, sjómanna og fiskvinnslu. Hvað er eðlilegra en að ákvæði sem þetta sé í lagagr.? Það var samþ. við 2. umr. samkv. till. nm. Alþb. í fjh.- og viðskn. og ég sé enga ástæðu til að fella það niður. Ég hreinlega skil ekki hvað hæstv. sjútvrh. meinar með því að leggja til slíka breytingu. Nú væri fróðlegt að fá á því frekari skýringar.

Þriðji liður í till. sjútvrh, er breyting á orðalagi 3. undirliðar b-liðar 3. gr. Í samþykktinni, sem hér var gerð við 2. umr., segir að 10% skuli renna í Aldurslagasjóð fiskiskipa hjá Samábyrgð Íslands á fiskiskipum. En nú skal sagt, og er sú till. sjútvrh.: „10% skal renna í sérstakan sjóð til þess að greiða fyrir því, að útgerðaraðilar geti hætt rekstri úreltra fiskiskipa.“ — Látum þessa breytingu vera, en síðan kemur viðbót: „Heimilt er að sameina þennan sjóð Aldurslagasjóði fiskiskipa og skal að því stefnt.“ — Hvað sér hæstv. sjútvrh. við að gera þessa breytingu og hvað sjá hv. stjórnarliðar og aftaníossar sjútvrh. við það? Ég tel enga ástæðu til þess að tveir aðilar séu að skipta þessu fjármagni, það séu einhverjir pólitískir fulltrúar að skipta hluta á vegum sjútvrn., en aldurslagatryggingin eða Aldurslagasjóður fiskiskipa, sem er innan Samábyrgðar Íslands, eigi að starfa samkv. þeim sérstöku lögum sem samþ. voru á síðasta þingi og voru samþykkt, að því er ég best man, shlj. og eiginlega algerlega ágreiningslaust. Hvers vegna á ekki að láta skiptinguna vera á einum og sama stað? Það er ekki kjörið í stjórn Samábyrgðar Ístands eftir pólitískum línum. Þar kjósa bátaábyrgðarfélögin tvo fulltrúa úr hópi útgerðarmanna, Landssamband ísl. útvegsmanna kýs tvo, sem ráðh. skipar að fengnum till. þessara aðila, og ráðh. skipar fimmta stjórnarmanninn. Ég var ekki í þau 4 ár, sem ég fór með tryggingamálin, flokkspólitískari en það, að ég skipaði ágætan Alþfl. mann í stjórn það tímabil. Ég sé því ekki endilega ástæðu til að vera að hafa sérstaka pólitíska úthlutun á þessu fjármagni og mér finnst það skjóta skökku við þær siðgæðishugmyndir sem flokkur hæstv. sjútvrh. beitti sér mjög fyrir fyrir síðustu kosningar. Flokkur hans sagði að hann hefði á því megnustu fyrirlitningu, og var ekki klipið utan af því af þeim herrum sem fyrir siðvæðingunni ráða í þeim flokki, að láta alltaf pólitíska „spekúlanta“ fara með fjármagnið, það væri kominn tími til að afnema það. Mér finnst því að þingflokkurinn þurfi að taka sjútvrh. á beinið fyrir að hann sé að fara út af línunni í þessum efnum. (Gripið fram í: Hreinsunardeildin er alveg sér.) Já, það hefur dofnað yfir hreinsunardeildinni að undanförnu.

Ég vona að hæstv. sjútvrh. skýri í hverju þessar breytingar eru fólgnar. Ég sé ekkert athugavert við áhyggjur hans út af samþykktinni varðandi 1. liðinn, og það er auðvitað margt sem skiptir máli fyrir hann. Hvers vegna er ekki heldur reynt að ná víðtæku samkomulagi og samstarfi um lausn og afgreiðslu á þessu máli en hafa þau vinnubrögð sem hæstv. ráðh. hefur?

Ég vil svo að síðustu segja að ég er að mörgu leyti ánægður með að við sjálfstæðismenn höfum orðið til þess að hæstv. sjútvrh. hefur þó flutt till. um að verja til málefna sjómanna 100 millj. kr., þó það sé helmingi lægri upphæð en við lögðum til. Það er þó árangur af þeim till. sem við höfum verið að flytja. Annars hefði engum manni í stjórnarliðinu dottið í hug að sinna verkefnum sjómanna.