03.05.1979
Neðri deild: 81. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4342 í B-deild Alþingistíðinda. (3467)

7. mál, ráðstafanir vegna breytingar á gengi íslenskrar krónu

Forseti (Ingvar Gíslason):

Út af þeim orðum, sem hv. 1. þm. Vestf. hafði um þær tafir sem orðið hafa á þessu máli innan d., vil ég alveg vísa á bug því sem hann gaf þar í skyn, að ég hefði sem forseti, og þá kannske varaforsetar líka, sett mér það að tefja afgreiðslu málsins. Þessu vil ég mótmæla. Að öðru leyti mun ég ekki ræða ummæli hv. þm. (MB: Af hverju hefur það tafist?)