03.05.1979
Neðri deild: 81. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4347 í B-deild Alþingistíðinda. (3470)
7. mál, ráðstafanir vegna breytingar á gengi íslenskrar krónu
Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Það eru örfá orð út af aths. hæstv. forseta áðan við það sem ég sagði.
Ef við lítum á meðferð þessa máls og hve oft það hefur verið á dagskrá, hve oft hefur dregist að taka það fyrir, er það staðreynd sem ekki verður móti mælt að orðið hefur óhæfilegur dráttur á afgreiðslu þess. Forseti má ekki taka það á þann veg að ég sé að ætla honum að hann hafi valdið þeim drætti, en það hafa aðrir, og þá fyrir atbeina ríkisstj., gert það að verkum að afgreiðsla málsins hefur dregist úr hömlu.
Mér fundust þau svör, sem hæstv. sjútvrh. gaf við þeim aths. sem ég gerði áðan og síðan hv. 1. þm. Austurl., ósköp léttvæg. Í sambandi við 3. liðinn í b-lið 3. gr. sagði hann að tveir embættismenn ættu að úthluta fénu og einn alþm., Alþfl.-maður, sem er formaður nefndarinnar sem sjútvrh. skipaði. Ég endurtek þau rök sem ég viðhafði og hv. 1. þm. Austurl. ræddi enn ítarlegar en ég: Ég sé enga ástæðu til að baka mönnum aukin óþægindi, sem þurfa að sækja um styrk til að gera skip sín ónýt, með því endilega að sækja styrkinn til tveggja aðila í stað eins, en sá aðili er til og löggjöf um starfsemina. Ég tel því að ef menn vildu eitthvað einfalda kerfið og minnka skriffinnskuna væri miklu hyggilegra að hafa úthlutun þessa á einum og sama stað.
Það er afskaplega óþægilegt, og það er eitt af því sem er nú orðið mjög áberandi í hinu þunglamalega kerfi, hvað ýmsar stofnanir tefja afgreiðslu mála vegna þess að önnur stofnun eitthvað lík er ekki búin að afgreiða þau. Það getur vafist fyrir slíkum stjórnum vikum og mánuðum og jafnvel árum saman að afgreiða mál vegna þess, að þær eru alltaf að bíða hver eftir annarri. Ég held að sannarlega sé kominn tími til að gera skipulagið einfaldara, en ekki vera sífellt að bæta við.
Ég er mjög óánægður með þann niðurskurð sem hæstv. sjútvrh. hefur gert á þeirri till. sem hlaut afgreiðslu við 2. umr. og ég flutti þá ásamt fjórum öðrum þm. Ég vil því leyfa mér ásamt hv. 1. þm. Austurl. að flytja þá skrifl. brtt. við till. sjútvrh., að í stað „75 millj. kr.“ komi: 125 millj., og í staðinn fyrir „15 millj.“ komi: 25 millj. kr.