07.05.1979
Sameinað þing: 88. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4365 í B-deild Alþingistíðinda. (3484)

357. mál, utanríkismál

Einar Ágústsson:

Herra forseti. Ég tek næstur til máls þótt venja sé að stjórnarandstaðan tali næst á eftir ráðh., en um þetta fyrirkomulag hefur samist og er það ekki í neinu ósamræmi eða óvild við Sjálfstfl., heldur þvert á móti.

Ég sé ekki sérstaka ástæðu til að halda ýkjalanga ræðu um þessa skýrslu, einkum vegna þess að stefna sú, sem núv. ríkisstj. fylgir, er í öllum meginatriðum, nánast í öllum atriðum, sú sama og fylgt var í fyrri ríkisstj., þar sem ég átti sæti, og út af fyrir sig fagna ég því að svo skynsamlega er á málum haldið. En þó eru nokkur atriði í skýrslunni sem ég ætla að leyfa mér að gera að örlitlu umræðuefni.

Í fyrsta lagi vil ég segja það, að fyrir tveimur árum — eða kannske þrem núna — byrjaði ég á að reyna að hafa almennan inngang eða formála að skýrslu um utanríkismál, þar sem leitast var við að leggja nokkurn dóm á hvað væri að gerast í veröldinni í kringum okkur og á hvern hátt það mundi snerta Ísland sérstaklega. Þeim, sem þá töluðu fyrir hönd stjórnarandstöðuflokka, fannst lítið til þessa koma. Sá kafli var að þeirra mati stuttur, innihaldslítill og heldur lélegur. Ég minnist þess, að hæstv. núv. utanrrh. var einmitt einn þeirra sem gagnrýndu þetta hvað myndarlegast. En ég verð að segja að ég sé ekki að í þessari skýrslu — eða ég hef ekki fundið það — sé ítarlegar út í þessi mál farið en þó var gert með þeirri tilraun sem ég gerði til að gera þeim nokkur skil. Ég hlýt þá að sakna þess nokkuð og undrast dálítið að ekki skuli hafa verið bætt um betur úr því að svona slaklega tókst til hjá mér með þessa tilraun. Mér er alveg ljóst, og það held ég að ég hafi sagt í þessum ræðustól fyrr, að það er ekkert áhlaupaverk né auðvelt að setja fram spádóma um það sem fram undan sé. Þess vegna skil ég vel að ekki er farið ítarlega út í slíkt. En jafnframt hlýt ég þá að ætlast til þess að þeir, sem gagnrýndu mig fyrir tilraunina, líti nú sömu augum á að hér sé ekki um auðvelt verkefni að tefla, þar sem ekki hefur verið farið ítarlegar í það en raun ber vitni í þessari skýrslu.

Vissulega er það rétt, sem hæstv. ráðh. sagði, að utanríkisstefna Íslands er byggð á þeim atriðum sem hann nefndi: norrænu samstarfi, þátttöku í Evrópuráði, þátttöku í Sameinuðu þjóðunum, þátttöku í Fríverslunarbandalagi, sérstöku samkomulagi við Efnahagsbandalag Evrópu og þátttöku Íslands í Atlantshafsbandalaginu. Þetta hefur ekki breyst og ég tel ekki ástæðu til að gagnrýna það, eins og ég áðan sagði, heldur þvert á móti.

Í kaflanum um Austurlönd nær er eðlilega fagnað þeirri viðleitni sem fram hefur farið milli Egypta og Ísraelsmanna um að finna varanlega lausn á hinu 30 ára gamla þrætumáli. Ég tek alveg undir að fagna ber þeim áfanga sem þar hefur náðst. En ég vil jafnframt vekja athygli á að mjög margt er þar enn óleyst og í óvissu. Málefni Palestínu-Araba eru alveg óleyst og eru enn frekar í brennidepli en nokkru sinni fyrr eftir þetta samkomulag, auk þess sem enginn veit enn hvaða viðbrögð önnur arabaríki hafa við þeirri viðleitni Egypta að sættast við Ísraelsmenn. Ég vek því athygli á að hér getur enn til illra tíðinda dregið. Ég er ekki að spá neinu, ég vona að það verði ekki, en ég bendi á að enginn fullnaðarsigur er þarna unninn.

Ég fagna því líka, að framhald verður á starfi því, sem hafið var í Finnlandi, og framkvæmd þess sem nefnt er Helsinki-sáttmáli. Ég tel að með þeim fundi 35 þjóða hafi verið stigið eitt stærsta skref í þágu mannréttinda og jafnréttis í veröldinni. Og ég vona, að sú ráðstefna, sem ráðgerð er í Madrid á næstunni, verði áfangi fram á veginn í þessu mikilsverða máli, og tek undir með ráðh. að því leyti. Við Íslendingar erum svo lánsamir að við gátum skrifað undir Helsinki-sáttmálann með algerlega hreinan skjöld. Við höfum uppfyllt þær kröfur sem þar eru settar fram til annarra ríkja. Þess vegna höfum við aðstöðu til að beita okkur á þessum ráðstefnum og höfum gert það eftir föngum. Ég veit að íslensk utanríkisþjónusta er fáliðuð, en hún er vel mönnuð og hún á að geta tekið drjúgan þátt í þessum störfum, hefur gert það og ég vænti þess að hún muni halda áfram að gera það, því að mikið er í húfi.

Um Afríkumálin mætti ýmislegt segja, en aðeins fátt af því mun ég rekja. Þjóðir Afríku eru nú smátt og smátt að öðlast sjálfstæði. Íslendingar hafa frá fyrstu tíð verið framarlega í stuðningi við frelsishreyfingar í viðkomandi löndum og oft og einatt gengið feti framar en aðrar Norðurlandaþjóðir í því að styðja fólk í Afríku til sjálfstæðis. Þetta munu skýrslur geta sannað og ég tel ekki ástæðu til að fara um það mörgum orðum. Ég bendi aðeins á þetta. Þetta kom mjög glögglega fram í sjónvarpsþætti sem ég horfði á, þar sem dr. Gunnar Schram gerði grein fyrir afstöðu Íslands til þessara mála á vettvangi Sameinuðu þjóðanna á réttan og skilmerkilegan hátt. Þar kom fram það sem ég var nú að segja, og ég tel að við getum verið stoltir af því og borið höfuðið hátt þess vegna.

Ég tek undir að samstarfið við Norðurlöndin er gífurlega þýðingarmikið. Mér dettur ekki í hug að gagnrýna hæstv. utanrrh. fyrir að gera því ekki frekari skil en gert er í skýrslunni, enda þótt ég hafi verið gagnrýndur fyrir það, vegna þess að Norðurlandaráð heyrir ekki undir utanrrn. og aðrir eiga að gefa skýrslur um störfin sem þar fara fram. Þeir hafa líka gert það. Hv. 5. þm. Reykv., Ragnhildur Helgadóttir, hefur gefið Alþ. skýrslu um störf þau, sem unnin eru á vettvangi Norðurlandaráðs, og ég tel og hef sagt það áður og stend við það, að það eigi ekki heima hér, og þess vegna tel ég eðlilegt að ekki sé frekar farið út í þau mál í þessari skýrslu en raun ber vitni.

Um Atlantshafsbandalagið vil ég aðeins segja að ég hef frá fyrstu tíð verið fylgjandi því að Ísland væri aðili að því bandalagi. Feimnismál ber víst ekki að ræða á þessum vettvangi, þannig að hin svokölluðu varnarmál eiga að liggja í þagnargildi, og ég ætla þá ekki að fara að hvetja til neinna ótímabærra umr. um þau mál, aðeins að segja að ég fagna því að áfram er haldið því verki, sem hafið var fyrir 4 árum, að aðskilja herinn frá annarri starfsemi á Keflavíkurflugvelli. Það hefur gengið nokkru hægar en skyldi og ég vonaði, en það miðar samt í rétta átt og ég veit ekki betur en sífellt sé verið að flytja inn í nýjar íbúðir á því svæði sem herfólkinu er ætlað til umráða. En ég vek enn þá einu sinni athygli á því, að til þess að aðskilnaður geti orðið raunverulegur þarf að byggja flugstöð á öðrum stað en sú stendur á sem er notuð. Það er nauðsynlegt. Þegar ég var í Bandaríkjunum ásamt embættismönnum var fallist á að aðstoða Íslendinga fjárhagslega til að koma upp flugstöð, og ég fæ ekki skilið hvers vegna hæstv. ríkisstj., sem stefnir að slíkum aðskilnaði, ræðst ekki í þá byggingu. Ég hef áður sagt það úr þessum ræðustól að ef einhverjir eru í vandræðum með að samþykkja það er einfalt ráð við því. Það er að semja bókun, birta hana og láta þar við sitja.

Í sambandi við Bandaríkjaförina get ég ekki alveg stillt mig um að víkja örlítið að öðru, þó að það komi kannske umræðu um skýrslu utanrrh. ekki beinlínis við. Ég sé nefnilega ástæðu til að óska sjálfstæðismönnum alveg sérstaklega til hamingju með að þeir eru búnir að finna orsökina fyrir því, hvers vegna þeir töpuðu Reykjavík. Það kemur fram í Morgunblaðinu á laugardaginn var. Þar segir hv. 4. þm. Reykv., nýendurkjörinn formaður Sjálfstfl., eftir honum er haft orðrétt og ég — með leyfi forseta — les það upp:

„Geir kveðst hafa farið utan í skylduerindum. Sér hefði ekki þótt það fýsilegt að senda framsóknarmann á fund NATO á kjördegi í Reykjavík.“

Þarna kemur skýringin á því, hvers vegna Sjálfstfl. tapaði Reykjavík. Sem samviskusamur embættismaður, glöggur og góður lögfræðingur hlaut hann auðvitað að meta það þannig að fórna yrði minni hagsmunum fyrir meiri, og þó að Reykjavík hefði hingað til þótt Sjálfstfl. mikils virði var þó enn þá meira virði að framsóknarmaður kæmi ekki á NATO-fund í Washington.

Á þessum fundi heyrði ég ekki hv. 4. þm. Reykv. segja neitt það sem ég hefði ekki komist fram úr að segja og engin launungarmál, en það er skylt að geta þess að hann átti sérstakan fund með Carter Bandaríkjaforseta, og má vera að það hafi verið á þeim fundi sem þau skilaboð voru flutt sem framsóknarmenn máttu ekki vita um. Þetta kemur auðvitað ekki skýrslu utanrrh. beint við, en er þó kannske ekki alveg óviðkomandi því sem gerðist í sambandi við varnarsamninginn eða viðbótina við hann sem gerð var á sínum tíma, þ. á m. um þá flugstöð sem ég áðan gerði að umræðuefni. Læt ég svo útrætt um þetta.

Eitt af því, sem hæstv. núv. utanrrh. gagnrýndi mig harðlega fyrir, var að ég gat ekki um í skýrslu minni eitt alvarlegasta vandamál Íslendinga, gífurlegar erlendar skuldir. Ég hef lesið skýrslu hans. Ég hef ekki fundið að minnst sé í henni sérstaklega á það stórkostlega vandamál. Má vera að hæstv. núv. ríkisstj. sé búin að lækka skuldirnar svo mikið að þær séu ekki lengur hættulegar. Ég hef ekki tötur um það. En ekki heyrist mér í almennum umr. og skrifum að þannig hafi tekist til að um verulega skuldalækkun hafi verið að tefla. Finnst mér mega segja um það atriði: Fyrst það vantaði hjá mér hlýtur það að vanta líka í þessa skýrslu.

Annað gagnrýnisatriði hæstv. utanrrh. á mig í fyrra starfi mínu var að hann taldi að ég sýndi verulegan tvískinnung í afstöðu til Suður-Afríku, ég væri með öðrum Norðurlandaráðh. að samþykkja æ ofan í æ að ekki ætti að hafa viðskipti við Suður-Afríku og taldi það mjög stangast á og hneykslanlegt að keyptar hefðu verið appelsínur fyrir 260 millj. kr. frá því ríki á sama tíma sem stefnan þar var fordæmd. Nú vil ég spyrja, af því að ég hef ekki flett því upp í töflum: Hafa þessi viðskipti verið stöðvuð, og ef þau hafa ekki verið stöðvuð hefur hæstv. núv. utanrrh. ekki tekið undir fordæmingu á Suður-Afríkustjórn? Þetta þætti mér fróðlegt til upplýsingar og til að fá samanburð á orðum og athöfnum, ekki bara hjá mér, heldur einnig hjá honum.

Hæstv. ráðh. greindi frá hafréttarmálum. Það eru auðvitað veruleg stórmál í augum okkar allra og mál sem við höfum borið gæfu til að standa saman um. Eitt af því, sem þar hefur komið fram, er að draga beri úr fiskveiðum Belga hér við land. Þessu er ég algerlega samþykkur. Þegar samningurinn við Belga var gerður var fyrir fram vitað að þeir ætluðu sér að hætta útgerð og þeir mundu ekki smíða eða kaupa ný skip, heldur láta eldri skipin ganga úr sér eftir hendinni, ef svo mætti segja. Ég er alveg samþykkur þeirri meðferð sem hæstv. ráðh. hefur skýrt frá að viðhöfð verði, að farið verði fram á samdrátt í veiðum Belga, en samningnum ekki beinlínis sagt upp. Við eigum þráfaldlega í samskiptum við Belga sem eina af þjóðum Efnahagsbandalags Evrópu. Við erum að sækja af og til um tilteknar undanþágur frá gerðum samningi við bandalagið. Ég veit ekki betur en til standi að biðja um að leggja sérstakt gjald á innfluttar vörur frá bandalagsríkjum til að aðstoða íslenskan iðnað í samkeppninni sem stendur þar höllum fæti. Ég tel að þess vegna sé rétt stefna að fara þannig að að draga úr sókninni í áföngum og loka fyrir þorskveiðar Belga. Þær eru þeim sáralítils virði, eins og á því sést að þeir hafa ekki einu sinni fiskað allan þann þorsk sem þeir þó máttu samkv. samningum.

Sama tel ég raunar gilda um Norðmenn. Ég er þó ekki hlynntur því, að þeim örlitla samningi við Norðmenn, sem enn þá er í gildi um 2000 lestir af fiski, þar af nánast enginn þorskur, sé sagt upp meðan stórmálið um Jan Mayen er á skrifborðum ráðh. og deiluefni þjóðanna.

Í Jan Mayen-málinu tel ég að Alþ. og íslenska þjóðin eigi að taka einarðlega afstöðu og halda fast við þá ákvörðun og fullyrðingu að við eigum fullan rétt á 200 mílum til norðurs einnig, þannig að miðlínan eigi ekki að gilda þar. Það verður ekki með neinum rétti sagt að Jan Mayen sé byggð eyja, enda þótt þar dvelji u. þ. b. 30–35 veðurathugunarmenn hverju sinni, skiptist á um að vera þar. Þeir eiga þar ekki heima, þarna á enginn heima. Ég tel þess vegna að við eigum að sýna fulla einurð í því máli. Ég veit að hæstv. utanrrh. hefur gert það og ég skora á hann að halda áfram að gera það. Hitt er svo annað mál, að mér finnst þessu máli ekki bráðliggja á. Ég tel að við getum látið mál á Hafréttarráðstefnunni þróast enn um sinn, en að við megum ekki afsala neinum rétti. Við höfum ekki gert það og ég treysti hæstv. utanrrh. og ríkisstj. fyllilega til að gera það ekki og hvika aldrei frá því sem við höfum og teljum að sé réttur okkar.

Flugmálin eru í hættu, eins og ég held að ég hafi rætt nokkuð fyrr á Alþ. Það er mikil hætta á að áætlunarflug frá Evrópu hætti viðkomu á Íslandi. Það gera breyttar flugvélar og breyttir tímar, styttri flugtími, meira flugþol o. s. frv., o. s. frv. M. a. þess vegna tel ég enn þá brýnna nú en nokkru sinni fyrr að leitast verði við að fá hjá Bandaríkjamönnum lendingarleyfi fyrir íslenskar vélar á vesturströnd Bandaríkjanna, því að enn er þó þannig ástatt í flugmálum að engar vélar, svo að mér sé kunnugt um, geta flogið frá Evrópu til Los Angeles eða San Francisco án þess að hafa einhvers staðar viðkomu til eldsneytistöku. Það væri hugsanlegt að Ísland gæti orðið sá viðkomustaður þannig að við héldum áfram að hafa nokkrar tekjur af þjónustu við það fólk sem flýgur þessa leið og þó öllu heldur og miklu frekar að það kysi að fljúga áfram með íslenskum flugvélum. Ég vænti þess og veit raunar að ráðh. hefur gert ráðstafanir til þess að halda áfram samningaumleitunum. Þær voru hafnar fyrir nokkrum árum og hefur hingað til verið algerlega synjað um lendingarleyfi af ástæðum sem ég geri mér ekki fulla grein fyrir. Af hverju er erfiðara fyrir Bandaríkjamenn að leyfa okkur að lenda á vesturströnd en á austurströnd veit ég ekki. Eflaust hafa þeir sínar ástæður fyrir því, sem ég ætla ekki að geta mér neitt til um hverjar séu.

Ég vil þá víkja að aðstoð við þróunarlönd. Þm. til glöggvunar hefur verið birt skrá yfir framlög Íslands vegna þróunaraðstoðar árin 1973–1979. Það verður að segja að sú útkoma er ekki glæsileg. Árið 1973 er sú tala, hlutfall af þjóðarframleiðslu viðkomandi árs, 0.032%, árið eftir er hún 0.029%, árið 1975 er hún 0.044, árið 1976 0.030. Síðan fer þó heldur að rofa til. 1977 er hún 0.056 og 1978 er hún 0.058, en á þessu ári er hún því miður samkv. fjárl. áætluð 0.049%. Þetta er þrátt fyrir að bæði ég og að ég held aðrir þm. ræddu þessi mál í sambandi við fjárlagagerð og það fékkst nokkur hækkun á framlagi Alþingis í þessu skyni — út á þær ræður vona ég eða a. m: k. vegna þeirra m. a. Hér er hlutur Íslands auðvitað mjög slakur, einkum þegar haft er í huga hvert stefnumarkið var á sínum tíma og er raunar enn. Ég held að við verðum að taka okkur á í þessu efni. En fleira er hægt að gera fyrir þessar þjóðir en að gefa þeim peninga. Við glímum við offramleiðslu á nokkrum matvörutegundum. Hugsanlegt væri að kenna fólki þróunarlandanna að borða þann mat og gefa þeim hann í stað þess að greiða með honum til annarra þjóða. Sú hugmynd er ekki ný. Hún hefur komið fram áður. En ég tel hana vel þess virði að hún sé skoðuð. Við eigum sem sagt lítið fjármagn, en talsverð matvæli. Væri ekki hugsanlegt að það kæmi að jafngóðu gagni að senda þeim fæðu og fjármagn? En það yrði náttúrlega að tryggja að umboðsmenn ríkisstj. borðuðu ekki allt kjötið áður en það kæmist til þeirra sem mest þurfa á því að halda.

Þrátt fyrir nokkrar aths., sem ég hef leyft mér að flytja hér, vil ég í lokin færa utanrrh. þakkir fyrir þá skýrslu sem hann hefur gefið Alþ. og gert hér að umræðuefni. Það hefur margoft verið tekið fram og ég þarf ekki að endurtaka það, að það á að vera hefð, og ég vona að hún verði aldrei rofin, að Alþ. verði gefin skýrsla um utanríkismál, svo þýðingarmikil sem þau eru. Ég vil einnig færa ráðh. þakkir fyrir samstarf við utanrmn. sem hefur verið hið besta. Hann hefur ævinlega verið boðinn og búinn til að mæta á fundum hjá okkur og upplýsa þau mál sem við höfum beðið hann að gefa okkur um þær upplýsingar sem hann hefur talið eiga erindi til okkar.

Að lokum ætla ég svo aðeins að víkja að nýstofnaðri svokallaðri öryggismálanefnd. Í inngangi skýrslunnar er greint frá því, hver aðdragandinn að henni er og hvert verkefni hennar er. Ég mun þess vegna ekki rekja það eða endurtaka. En ég vil segja, að ef vel tekst til og ef sú nefnd fær þá aðstöðu og það fjármagn, sem nauðsynlegt er til að koma einhverju í verk, tel ég þetta merkt framtak og líklegt til að bæta umr. um utanríkismál sem hefur verið á heldur lágu stigi í mörg undanfarin ár og raunar alla tíð síðan sjálfstæðismálið við Dani var til lykta leitt. Það er lítið búið að gera í þessari nefnd af ýmsum ástæðum, m. a. þeim, að henni hafa ekki verið sköpuð skilyrði til starfa. Ég tel að það sé eitt brýnasta verkefnið, sem ríkisstj. ætti að beita sér fyrir, að skapa nefndinni skilyrði þannig að hún geti hafist handa af krafti við að vinna að því hlutverki sem henni er falið: að upplýsa land og lýð um ástand og horfur í alþjóðamálum o. fl., eins og þar segir. Ég tek enn og aftur fram að hér er ekki um neinn ráðgefandi aðila að ræða, hér er ekki um neinn stjórnandi aðila að ræða. Hér er um að ræða aðila sem á að afla upplýsinga til að þeir sem stjórna hafi betri möguleika og skilyrði til þess að taka réttar og skynsamlegar ákvarðanir.