07.05.1979
Sameinað þing: 88. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4375 í B-deild Alþingistíðinda. (3486)
357. mál, utanríkismál
Ólafur Ragnar Grímsson:
Herra forseti. Það var fróðlegt að heyra hið kurteislega háð, sem hæstv. fyrrv. utanrrh., Einar Ágústsson, fór um mörg atriði í þessari skýrslu og málefnum utanríkismála, og heyra mat hans á þeim veruleika, sem birtist okkur í þessari skýrslu, í samanburði við yfirlýsingar og gagnrýni hæstv. utanrrh. meðan hann var í stjórnarandstöðu. Það var einnig fróðlegt að heyra aths. hans við ummæli Geirs Hallgrímssonar um fræga för þeirra tveggja til Washington til að endurnýja eiðana og bera vitni hollustu sinni við NATO. Ég tek undir með hv. þm. Einari Ágústssyni, að það var vissulega upplýsandi yfirlýsing, sem greinilega var sprottin upp í þeim deilum sem ríktu á landsfundi Sjálfstfl. og var sögð í sjálfsvörn þar, en ekki borin fram af fúsum og frjálsum vilja, að ástæðan fyrir þessari frægu för umboðsmanns Bilderberg-reglunnar hér á Íslandi, hv. þm. Geirs Hallgrímssonar, til Washington hafi verið að hann hafi ekki treyst utanrrh. sinnar eigin ríkisstj. til að ganga erinda Atlantshafsbandalagsins og endurnýja hollustu eða Sjálfstfl. í Washington á hinum merka fundi.
Það er fróðlegt fyrir okkur, sem erum andvígir yfirlýstum stefnum þeirra þriggja flokka, flokks núv. utanrrh., flokks fyrrv. utanrrh. og flokks fyrrv. forsrh., að heyra undirtóninn í orðaskiptum þeirra hér. Það minnir á frægt kvæði Gríms Thomsens sem sagt er að ort hafi verið af kynnum hans af utanríkisþjónustu annarrar þjóðar, en sýnir okkur jafnframt að einhver er nú metingurinn í þessum herbúðum.
Ég vil hins vegar lýsa því, að ég tek undir allar þær aths. sem hæstv. fyrrv. utanrrh., Einar Ágústsson, lét í ljós gagnvart þessari skýrslu. Ég bjóst við myndarlegra verki, satt að segja, frá hæstv. utanrrh. Benedikt Gröndal, þegar hann legði skýrslu sína í fyrsta sinn fyrir Alþ., og hún bæri ekki jafnsterkan svip „rútínunnar“ á sviði utanríkismála og þetta verk greinilega ber með sér. Þrátt fyrir að okkur hæstv. utanrrh. greini á um ýmsa veigamikla þætti í íslenskri utanríkisstefnu höfum við þó átt samleið í ýmsum öðrum þáttum utanríkismála. En ég hef saknað þess, og sakna þess í skýrslunni, hve lítið hefur borið á því að ferskir vindar hafi leikið um utanrrn. síðan núv. ríkisstj. tók við hvað snertir málefni þriðja heimsins, hvað snertir baráttu fyrir margvíslegum réttindamálum, hvað snertir efnahagslegt sjálfstæði Íslendinga og málaflokka sem það snerta.
Hins vegar vænti ég þess, að hv. þm. Geir Hallgrímsson geri þingheimi grein fyrir því, fyrst hann hefur beðið um orðið, hvers vegna hann vantreysti fyrrv. utanrrh. að fara hina frægu Washington-för þegar Reykjavík féll. Ef ég mætti þá um leið bera fram þá ósk fyrir hönd fjölmargra Íslendinga til hv. þm. Geirs Hallgrímssonar að hann skýri jafnframt frá þeim Bilderberg-fundum sem hann sótti bæði sem forsrh. þessa lands og hyggst væntanlega sækja sem leiðtogi stjórnarandstöðunnar á Íslandi. Ég tel að í lýðræðis- og þingræðislandi, eins og því sem hér er, eigi þeir leiðtogar þjóðarinnar sem falið er að fara með forsætisráðherraembætti eða gegna svo mikilvægu starfi sem svokallaður leiðtogi stjórnarandstöðunnar, með allri virðingu fyrir síðasta landsfundi Sjálfstfl., — þá eigi þeir að gefa þjóðinni skýrslu um jafnáhrifaríka leynifundi og þeir sækja og fundir Bilderberg-reglunnar eru. Það er ekki við hæfi að íslenska þjóðin þurfi að láta sig renna grun í hvaða mál það séu sem forsrh. landsins eða leiðtogi stjórnarandstöðunnar sé að ræða á slíkum leynifundum við herforingja, fjármálafursta og æðstu umboðsmenn utanríkismála annarra þjóða. Ég vil í því sambandi taka undir sjónarmið, sem komu fram í málgagni hæstv. utanrrh. í leiðara fyrir nokkru um Bilderberg-samkomuna og vekja athygli á þeirri skýrslu um þá samkomu sem fylgirit málgagns utanrrh. birti fyrir nokkru. Ég vil endurtaka það hér sérstaklega og í fullri alvöru við hv. þm. Geir Hallgrímsson, að hann hafi nú í sér manndóm á Alþingi Íslendinga til að segja þjóðinni hvað gerist á þeim mikilvægu leynifundum sem hann hefur sótt sem forsrh. Íslands og ætlar sér greinilega að sækja sem leiðtogi stjórnarandstöðunnar. Þeir fundir verða greinilega mikilvægari þegar maður hefur í huga þá yfirlýsingu, sem hv. þm. Einar Ágústsson vakti athygli á áðan, að nauðsyn var talin á sérstökum fundi Geirs Hallgrímssonar og Carters forseta Bandaríkjanna, og þegar höfð er í huga hin sérstaka ósk varaforseta Bandaríkjanna um að mega eiga einkaviðræður við Geir Hallgrímsson þegar hann var hér á landi. Það dugði greinilega ekki að ræða við forsrh. og utanrrh. landsins. Það var talið sjálfsagt og nauðsynlegt að eiga einnig viðræður við þennan sérstaka trúnaðarmann, gæslumann hagsmuna Atlantshafsbandalagsins og Bilderberg-reglunnar á Íslandi. Og það er misskilningur hjá hv. þm. Geir Hallgrímssyni ef hann heldur að síendurteknar ferðir hans á fundi Bilderberg-reglunnar séu einkamál hans. Í lýðræðisríki eru slíkir fundir forsrh. þjóðarinnar ekki einkamál. Og forsrh. þjóðar á ekki að taka þátt í neinum fundum með erlendum leiðtogum, fjármálafurstum eða hershöfðingjum ef hann treystir sér ekki til að skýra þjóð sinni frá hvað hafi gerst þar.
Í skýrslu hæstv. utanrrh. er fjallað um þær breytingar sem nýlega hafa átt sér stað í stjórnkerfi Grænlands. Ég vil taka undir þau orð, sem að því lúta í skýrslunni, og flytja utanrrh. sérstakar þakkir fyrir það litla frumkvæði, sem var vottur um einhverja ferska vinda, þó lítill væri, að senda sérstakan sendimann sinn til Grænlands til að kynnast hagsmunum og vandamálum þeirrar þjóðar og kanna möguleika á samskiptum Íslendinga og Grænlendinga á komandi árum. Ég tel að sú för hafi verið spor í rétta átt og hún hafi sýnt að það er eitt af stóru verkefnunum í íslenskum utanríkismálum á komandi árum að finna hinni auknu samvinnu Íslendinga, Færeyinga og Grænlendinga nýja og trausta farvegi. Með útfærslunni í 200 mílur, með heimastjórn Grænlendinga, í krafti sögunnar um víðtæk samskipti Íslendinga og Færeyinga og með tilliti til þeirrar menningar og þeirrar sögu sem bindur þær þjóðir saman hafa íslensk utanríkismál öðlast nýtt verkefni sem að mínu viti hlýtur að verða eitt fyrsta verkefni í utanríkismálum íslenskrar þjóðar á næstu árum og um langa framtíð, þ. e. a. s. að byggja upp og finna farvegi margháttaðri samvinnu hinna þriggja eyþjóða, smáu fiskveiðiþjóða í Norður-Atlantshafinu, Íslendinga, Grænlendinga og Færeyinga. Margvíslegir hagsmunir tengja þessar þjóðir saman, og smæð þeirra er slík að á margan hátt er eðlilegt að þær eigi fyrst samleið áður en kemur að viðskiptum þeirra við aðrar þjóðir.
En þótt samvinna Íslendinga, Færeyinga og Grænlendinga sé að mínum dómi eitt af höfuðverkefnum í íslenskum utanríkismálum á næstu árum verður að vinna að því verkefni með gát. Það má alls ekki gefa til kynna á neinn hátt í þeim viðskiptum að ætlun Íslendinga sé að hafa á einhvern hátt forræði fyrir þessum frændþjóðum okkar. Þvert á móti verður að vera leiðarljós allra þeirra sem samskiptin annast, að efla traust þessara þjóða til Íslendinga og koma í veg fyrir að þær telji að Íslendingar séu á einhvern hátt að leika stóra bróður í þeim samskiptum. Íslendingar hafa þegar öðlast, a. m. k. eitt helsta fyrirtæki í íslenskum sjávarútvegi, mikilvæga hagsmuni af fiskveiðum Grænlendinga, og hlutfallsleg stærð okkar samanborið við Færeyinga og Grænlendinga og lengri reynsla okkar af að fást við málefni af þessu tagi gætu skapað þær hættur að Íslendingar hefðu tilhneigingu til að ná forræði í þessum málum. Ég vil því, um leið og ég fagna sérstaklega þeirri áherslu sem hér er lögð á aukna samvinnu Grænlendinga, Færeyinga og Íslendinga, láta í ljós þá sérstöku skoðun að þar bíða Íslendinga stór verkefni sem þeir verða að taka á af áhuga og festu og skilningi, en jafnframt varúð gagnvart hverri tilhneigingu til einhvers konar forræðis eða yfirgangs Íslendinga í þeim samskiptum.
Hvað snertir aðstoð Íslands við þróunarlöndin get ég tekið undir þann gagnrýnistón sem í þessari skýrslu er. Ég hafði alið þá von í brjósti, að undir forustu hæstv. núv. utanrrh. og með þeirri ríkisstj. og þeim þingmeirihluta, sem hér situr nú, yrðu stigin miklu stærri skref í þessum málaflokki en gert hefur verið. Ég vil lýsa yfir sérstökum stuðningi okkar í Alþb. við það, að á þessum vettvangi verði í raun og veru brotið í blað og að Íslendingar sýni samstöðu með þjóðum þriðja heimsins, sýni skilning á fátækt þeirra, sýni samúð með þeirri efnahagslegu kúgun sem nýlenduþjóðirnar, þau stórveldi sem utanrrh. og aðrir skoðanabræður hans í íslenskri utanríkisstefnu kjósa helst að hafa að bandamönnum, þeirri kúgun sem þær sömu þjóðir beittu þjóðir þriðja heimsins áður fyrr og gera sumar hverjar reyndar enn. En þrátt fyrir þessa tvo kafla, sem ég get í stórum dráttum lýst stuðningi við, er ýmislegt í skýrslunni og í kringum hana sem mig langar að gera aths. við.
Það er vissulega rétt, sem fram hefur komið, að í málefnasamningi ríkisstjórnarflokkanna er tekið skýrt fram að þeir hafa ekki samið um stefnuna í utanríkismálum. Ástæða þess er sú, að sá samningur, sem gerður var milli ríkisstjórnarflokkanna, var fyrst og fremst um tilteknar aðgerðir í efnahagsmálum til nokkurra missira. Skýrt var tekið fram í yfirlýsingu ríkisstj. og af hálfu okkar, sem að ríkisstj. stóðum, að á árinu 1979 væri verkefni ríkisstjórnarflokkanna að gera ítarlegan málefnasamning. Margt í stefnuyfirlýsingu ríkisstj., ekki aðeins á sviði utanríkismála, heldur á sviði fjölmargra annarra málaflokka, ber sterkan keim af þeirri grundvallarforsendu að hér var ekki á ferðinni málefnasamningur af því hefðbundna tagi sem tíðkaðist áður fyrr, að samið væri til kjörtímabilsins alls í góðri von um að samstarfið mundi þá vara í fjögur ár, heldur var gengið til þessa leiks með þeirri skýru yfirlýsingu, að það væri fyrst og fremst verið að takast á við tiltekinn vanda í efnahagsmálum þjóðarinnar og fjölmargir aðrir málaflokkar á sviði félagsmála, á sviði menningarmála, á sviði utanríkismála, svo aðeins nokkrir málaflokkar séu nefndir, ættu að bíða ítarlegri viðræðna milli stjórnarflokkanna á árinu 1979, þegar að endurnýjun málefnasamningsins kæmi. Reynsla síðustu vikna af því efnahagsfrv., sem samstarfsflokkar okkar gátu knúið fram fyrir nokkrum vikum, sýnir okkur hins vegar að það kann nú að vera þörf á að taka efnahagsmálin einnig til endurskoðunar mun fyrr en þessir sömu herrar töldu sig þurfa þegar þeir vorn að kynna fyrir okkur uppkast að efnahagsstefnu til tveggja ára. Það er önnur saga sem ekki á heima í umr. um utanríkismál en við komum væntanlega að innan tíðar á Alþ. — Ég hefði e. t. v. átt von á að skýrsla utanrrh. og störfin að utanríkismálunum bæru meiri svip af því að undirbúa jarðveginn undir víðtækt samkomulag ríkisstjórnarflokkanna á þessu ári um utanríkisstefnuna. Svo er reyndar ekki, þó að á stöku stað megi finna merki um það.
Ég ætla þá að víkja að nokkrum atriðum sem ég hefði kosið að hæstv. utanrrh. færi fleiri orðum um í skýrslu sinni en gert var.
Í fyrsta lagi hefur það verið umræðuefni Alþ. í vetur og áður hvort kjarnorkuvopn væru geymd á Íslandi og hvort og þá á hvern hátt Ísland væri hlekkur í því varnar- eða árásarkerfi sem byggt er á notkun kjarnorkuvopna af einu eða öðru tagi. Í þeim umr. hefur oft og tíðum verið vitnað í fræga, en því miður allhlægilega yfirlýsingu frá fyrrv. forstöðumanni varnarmáladeildar utanrrn., að hann persónulega hefði „spássérað“ um varnarsvæðið og ekki séð þar nein kjarnorkuvopn, sem í senn lýsir freklegri vankunnáttu á eðli kjarnorkuvopna og eðli þess kjarnorkuvopnakerfis sem herstöðin í Keflavík væri hugsanlega hluti af. Ég hefði búist við að í skýrslu utanrrh. væri tekist fastar á við þennan vanda, því að það er eitt af þeim höfuðatriðum, sem verður að taka til meðferðar í utanrrn. Íslands, á Alþ. og í öðrum þeim stofnunum sem starfandi eru á þessu sviði, að ganga algerlega úr skugga um hvort kjarnorkuvopn eru geymd á Íslandi eða ekki og hvort og þá á hvern hátt herstöðin á Keflavíkurflugvelli sé hlekkur í kjarnorkuvopnakerfi Bandaríkjanna. Ég vil minna hv. þm. á það, sem gert hefur verið áður í vetur, að herstjórnendur Bandaríkjanna á Íslandi hafa hvorki játað því né neitað að hér séu kjarnorkuvopn. Þeir hafa ekki viljað svara því neitandi. (ÁG: Gera aldrei.) Gera aldrei, segir hv. þm. Árni Gunnarsson. Þess heldur ættum við að taka tillit til þeirra sérfræðinga sem hafa sýnt fram á með rökum að yfirgnæfandi líkur benda til þess að hér séu kjarnorkuvopn. Ef það er skoðun hv. þm. Árna Gunnarssonar, eins helsta stuðningsmanns utanrrh., að við fáum aldrei svar frá Bandaríkjunum um hvort hér séu kjarnorkuvopn eða ekki, eru þá ekki líkur á að það sé ærið margt fleira sem við fáum ekki að vita sannleikann um, m. a. um eðli þeirrar herstöðvar, sem hér er, og þess kerfis sem hér er rekið? Eru þá ekki yfirgnæfandi líkur á að Bandaríkjamenn umgangist Íslendinga á nákvæmlega sama hátt í þessum efnum og önnur NATO-ríki? Þekktur þm. jafnaðarmanna í Hollandi hefur tekið sér sérstaklega fyrir hendur undanfarið að sýna fram á hvernig herforingjar NATO-veldanna umgangast þm. NATO-ríkjanna hvað snertir upplýsingastarfsemi. Ég mun koma að því í ræðu minni á eftir. — Það er einmitt þessi uppgjöf fáviskunnar, uppgjöf vanþekkingarinnar, að sætta sig bara við að Íslendingar fái aldrei svar við því, hvort hér séu kjarnorkuvopn eða ekki, sem setur að mér ótta um að það skorti viljann hjá þessum ágætu heiðursmönnum til að halda uppi í raun og veru svo sjálfstæðri utanríkisstefnu að það sé á valdi Íslendinga sjálfra að ganga úr skugga um í eitt skipti fyrir öll hvort hér séu kjarnorkuvopn eða ekki. Meðan við vitum ekki klárt og kvitt hvort kjarnorkuvopn eru á Keflavíkurflugvelli eða ekki vitum við ekkert um eðli þeirrar herstöðvar. Þá bara trúum við einhverjum formlegum skýrslum sem gefnar eru út til að hafa stuðningsmenn herstöðvarinnar góða. Við höfum í raun og veru ekkert fast í höndunum. Ef það er skoðun hv. þm. Árna Gunnarssonar og kannske fleiri þm. hér, að við fáum aldrei frá Bandaríkjunum, herforingjastjórnendunum þar, að vita hvort hér séu kjarnorkuvopn eða ekki er það skylda okkar sem þm. íslensku þjóðarinnar að leita annarra leiða í þeim efnum.
Annað atriðið, sem ég vildi víkja að, er sá skortur á gagnrýninni umræðu um Atlantshafsbandalagið og upplýsingakerfi þess sem ýmsir skoðanabræður hæstv. utanrrh. í NATO-ríkjunum hafa haldið uppi á síðustu missirum. Ég vil í því sambandi vekja sérstaka athygli á þeim umr. sem hafa verið í Hollandi undanfarið og hafa falið í sér að af hálfu Atlantshafsbandalagsins, þ. e. a. s. herforingja þess, og af hálfu herstjórnenda í Bandaríkjunum séu stundaðar margvíslegar rangfærslur og fjölþættar tilraunir til að stinga undan flestum veigamestu þáttum upplýsinga um hernaðarlegt eðli og inntak þeirrar starfsemi, sem Atlantshafsbandalagið stundar, og kröfu um að kjörnir fulltrúar fólksins í þessum löndum snúi nú við blaðinu í þeim efnum. Ég vil í því sambandi vitna til orða hollensks þm. jafnaðarmannaflokksins þar. Hann sagði nýlega á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:
„Ein alvarlegasta ógnunin við öryggi Vestur-Evrópu er okkar eigið pólitíska kerfi, sem ekki veitir borgaralegum yfirvöldum nægilega innsýn í öryggispólitísk vandamál. Þess vegna eiga sér í lagi bandarískar hernaðarstofnanir svo auðvelt með að notfæra sér NATO í tafli sem eykur hættuna á kjarnorkuvopnastríði með degi hverjum.“
Hér er því beinlínis haldið fram að kjörnar valdastofnanir, ráðh. í ríkisstj. sem fulltrúi Alþ., við sem erum í þjóðþingunum, þær nefndir sem við kunnum að setja á laggirnar, hvort heldur það eru utanrmn. eða sérstakar öryggismálanefndir, eigi stórfellt verkefni fyrir höndum að draga fram í dagsljósið þann upplýsingagrundvöll að hinir lýðræðislegu valdhafar í hinum svokölluðu lýðræðisríkjum Vesturlanda geti mótað stefnuna í þessum málum. Íslenska þjóðin, hollenska þjóðin eða aðrar þjóðir Atlantshafsbandalagsins hafa ekki falið herforingjum að móta stefnuna í þessum efnum. Það er að bregðast hinni lýðræðislegu skyldu við það kerfi, sem hinu svokallaða Atlantshafsbandalagi er þó að nafninu til ætlað að verja, að leggja sig ekki í líma við að reyna að ná í þær upplýsingar, að hrinda þeirri einokun á upplýsingaöfluninni sem herforingjakerfið, sem hollenski þm. var að lýsa, hefur haldið uppi.
Ég vek aftur athygli þingheims á því, hve sterkt er hér að orði komist um að þetta sé ein alvarlegasta ógnunin við öryggi Vestur-Evrópu. Það eru ekki Sovétríkin, það er ekki Austur-Evrópa sem er alvarlegasta ógnunin við öryggið að dómi þessa þm. jafnaðarmannaflokksins í Hollandi sem þó er stuðningsmaður Atlantshafsbandalagsins. Ég tek skýrt fram að svo er ekki. Nei, bandarísku hernaðarstofnanirnar eru alvarlegasta ógnunin, að hans dómi. Þær nota NATO í þessu tafli, sjálfsagt vegna þess, að það er spurningin um lýðræðið sjálft sem hér er í veði, og vegna þess að máttur þessa kerfis er að dómi þm. þegar farinn að ógna lýðræðiskerfinu í landi hans. Ég hefði búist við því og vænti þess reyndar, að hæstv. utanrrh., sem hefur þó e. t. v. manna best á undanförnum árum lýst áhuga sínum á sjálfstæðri upplýsingaöflun hinna pólitísku stofnana á þessu sviði, viki nokkrum orðum að þessum mikla vanda sem nú er til umræðu í ýmsum nágrannaríkjum okkar.
Í þriðja lagi minnist ég á samskipti Íslendinga við bandaríska herliðið og þar mætti margt segja. Á þeim tíma, sem liðinn er síðan Benedikt Gröndal tók við starfi utanrrh., hefur hann, eins og rætt var um á Alþ. á sínum tíma og gagnrýnt, óskað sérstaklega eftir að Bandaríkin beittu hér ekki reglum um atvinnu sem stjórnvöld Bandaríkjanna höfðu ákveðið að beita í herstöðvum sínum annars staðar. Röksemdafærslan var sú, að Íslendingar væru svo háðir þeirri atvinnu, sem á Keflavíkurflugvelli fengist, að við þyldum ekki reglur af slíku tagi. Þegar þjóðin er orðin svo háð atvinnunni, sem herinn skapar, er stutt í það sem kallað hefur verið „aronska“ hér á landi. Þá er orðið stutt í að hinar efnahagslegu röksemdir, atvinnuröksemdirnar, fari að ráða miklu, fjármagnsröksemdirnar, um hvort hér sé her eða ekki.
Þessi sjónarmið fundust mér einnig koma fram í umræðum um flugstöðvarbygginguna á Keflavíkurflugvelli. Það er alveg rétt, að ný flugstöðvarbygging er sjálfsagt þörf og eðlileg á Keflavíkurflugvelli. En sú spá, sem sett var fram fyrir nokkrum árum um fjölgun farþega sem færu um völlinn, reyndist allt of há, og eins og komið hefur fram í þessum umr. bendir margt til þess að farþegum, sem fara um Keflavíkurflugvöll, muni frekar fækka, hlutfallslega a. m. k., eða vöxtur þeirra ekki verða eins mikill á komandi árum. M. ö. o. bendir allt til að sú flugstöð, sem verið er að tala um í þessu sambandi, verði í raun og veru mun minni en rætt var um fyrr á árum. Með tilliti til þess get ég vissulega orðið sammála hv. þm.
Einari Ágústssyni um að nauðsynlegt geti verið að byggja nýja flugstöð á Keflavíkurflugvelli. En ég er honum algerlega ósammála um að leita þurfi til bandarísku ríkisstj. um að fjármagna þá flugstöðvarbyggingu að öllu leyti eða verulegum hluta. Ef þessi þjóð hefur ekki efni á að byggja flugstöð fyrir samgöngukerfi sitt við aðrar þjóðir hefur hún í raun og veru ekki efni á að vera sjálfstæð þjóð.
Ég geri engan greinarmun á því sjónarmiði, að sjálfsagt sé og eðlilegt að Bandaríkjamenn taki þátt í að byggja hér flugstöð, og þeim sjónarmiðum sem ég veit að hv. þm. Einar Ágústsson hefur fordæmt og ýmsir aðrir hér, en þó verið sett fram í umr. hér á landi á síðustu mánuðum og missirum, að það geti jafnvel verið sjálfsagt að Bandaríkjamenn taki þátt í að byggja vegi, taki þátt í að byggja sjúkrahús, vegna þess að vegir og sjúkrahús geti talist eðlilegur þáttur í varnar- og öryggiskerfi þjóðarinnar. Ég vil mælast til þess við þá ágætu þm., sem eru áhugamenn um byggingu flugstöðvar, að þeir taki þá höndum saman við okkur hina um að því verði slegið föstu að hún verði íslensk framkvæmd að öllu leyti og íslenska þjóðin sýni sjálfstæði sitt í verki með því að reisa það mannvirki algerlega ein. Ég hefði gaman af að heyra þau rök, ef þau eru þá til, hvers vegna nauðsynlegt sé að Bandaríkjamenn fjármagni það verk. Ég vildi gjarnan óska eftir að hæstv. utanrrh. lýsti síðar í umr. viðhorfum sínum til flugstöðvarbyggingarinnar, þ. e. a. s. fjármögnunarinnar á henni. Fjölmargar þjóðir hafa reist flugvelli á undanförnum árum og áratugum. Þeir hafa margir hverjir verið fjármagnaðir með sérstakri skattheimtu á þá farþega sem fara um völlinn á eftir. Það ætti að vera hægur vandi fyrir okkur að fjármagna þetta verk á sama hátt.
Þá er einnig í skýrslu utanrrh. og hefur að nokkru í umr. verið vikið að flugmálum. Það er vissulega rétt, sem komið hefur fram í þeim umr. og ég vakið athygli á í umr. um annað mál á Alþ. í vetur, að í flugsamgöngumálum Íslendinga við umheiminn blasir við margvíslegur vandi. Alveg ljóst er að það félag og sú fyrirtækjasamsteypa sem hefur haft raunverulega einokun á þeim málum, Flugleiðir, kemur til íslenskra stjórnvalda í hvert skiptið á eftir öðru og biður um aðstoð, býður hlutabréf til sölu, biður um aukna hlutdeild ríkisins í fyrirtækinu og leitar aðstoðar stjórnvalda um samninga við bandarísk stjórnvöld og um samskipti við stjórnvöld í Lúxemborg. Mér skilst á frásögn hæstv. utanrrh. að niðurstaðan af þeim viðræðum, sem átt hafa sér stað undanfarið sé að hugsanlega muni fjölga þeim flugferðum sem eru beint á milli meginlands Evrópu og Bandaríkjanna, en eru í höndum hinnar íslensku fyrirtækjasamsteypu, og ferðunum um Keflavíkurflugvöll muni fækka, en þó muni vera leitað eftir því af hálfu stjórnvalda að tryggja lágmarksfjölda flugferða milli Íslands og þessara landa. Þessi lýsing á atburðarás síðustu mánaða, ef rétt er, sem ég dreg ekki í efa, staðfestir algerlega það sem ég sagði í umr. fyrr í vetur, um nauðsynlega rannsókn á starfsemi Flugleiða, það mundi koma að því að efnahagslegir erfiðleikar og rekstrarlegir hagsmunir þess fyrirtækis hefðu í för með sér að samgöngukerfi Íslands við önnur ríki væri stefnt í voða. Nú er orðið verkefni íslenskra stjórnvalda að fara bónarleið að Flugleiðum til að reyna að tryggja að nauðsynlegar rekstrarbreytingar vegna hagsmuna fyrirtækisins leiði ekki til fækkunar ferða milli Íslands og umheimsins, á sama tíma og íslensk stjórnvöld virðast með því, sem utanrrh. sagði áðan, leggja blessun sína yfir að Flugleiðasamsteypan haldi áfram að vaxa sem alþjóðleg dótturfyrirtæki og hlutafélög. Slíkt gerir að verkum að smátt og smátt verður fjárhagslegur grundvöllur þessa fyrirtækis minna og minna háður flugsamgöngukerfi Íslendinga sjálfra, en byggist fyrst og fremst á starfsemi dótturfyrirtækja eins og Air Bahama, Cargolux og þess nýja fyrirtækis sem utanrrh. var að lýsa að hann og starfsmenn hans hefðu lagt blessun sína yfir að yrði stofnað. M. ö. o. er þróunin í þessum efnum að gera það að verkum að sífellt verður auðveldara og auðveldara fyrir yfirstjórnendur þeirrar alþjóðlegu rekstrarsamsteypu, sem ber heitið Flugleiðir, að minnka smátt og smátt þann þáttinn í starfsemi sinni er snertir samgöngukerfi Íslendinga án þess að bíða við það rekstrarlegt tjón. Ég vil af þessu tilefni mótmæla algerlega að íslensk stjórnvöld séu að leggja blessun sína yfir þá þróunarstefnu án þess að hún hafi verið rædd sérstaklega á Alþ. Verið er að styrkja fyrirtækið í þeirri tilhneigingu, sem hefur gætt mjög hjá því á undanförnum árum, að gera í raun og veru allan vaxtarbroddinn fólginn í hinu alþjóðlega samkeppnisflugi og draga svo úr flugi Íslendinga sjálfra, vegna þess að það ber sig einfaldlega ekki að fljúga um Ísland á þessum leiðum. Ég vildi óska eftir því hér, að hæstv. utanrrh. gerði nánari grein fyrir viðræðum og framtíðarviðhorfum í flugmálunum en komu fram í ræðu hans áðan.
Herra forseti. Ég hef gerst nokkuð langorðari um þessi atriði en ég ætlaði mér í upphafi, en tvö atriði vil ég þó minnast á að lokum.
Í þessari skýrslu er kafli sem snertir utanríkisviðskipti og hina efnahagslegu hlið íslenskra utanríkismála. Eins og tekið er fram í skýrslunni er sá kafli fenginn frá viðskrn. Ég hefði talið réttara og í samræmi við þá stjórnarfarslegu skiptingu, sem hér er, að hæstv. viðskrh. gerði Alþ. grein fyrir utanríkisviðskiptunum, fyrir samskiptum Íslands við EFTA og EBE, fyrir samskiptum Íslands við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Alþjóðabankann og þær aðrar alþjóðlegu fjármála- og viðskiptastofnanir, sem við eigum viðskipti við, og samningum okkar við önnur ríki sem við eigum viðskipti við og gerum sérstaka verslunarsamninga við. Ég held að á engan hátt sé stjórnarfarslega eðlilegt að hæstv. utanrrh. geri grein fyrir þeim málaflokki í skýrslu sinni sem hann að öðru leyti ber enga ábyrgð á gagnvart Alþ. og það sé nauðsynlegt í þessari skýrslugjöf að fylgja því, sem er reyndin, að ýmsir veigamestu þættir íslenskra utanríkismála eru á sviði viðskrn. og sviði viðskrh., en ekki á sviði utanrrh. Ég vildi óska eftir því að í framtíðinni yrðu gefnar tvær skýrslur á Alþ., önnur af utanrrh. og hin af viðskrh., þannig að við fengjum heildaryfirlit yfir báða málaflokkana. Það er nokkuð óeðlilegt að ræða um þátt utanríkisviðskiptanna og margvísleg málefni á því sviði nánast í tengslum við skýrslu hæstv. utanrrh. vegna þess að hann sé formlegur flm. slíkrar skýrslu. Það er svo annað mál, sem e. t. v. mætti ræða við annað tækifæri, hvort sú skipting á milli utanrrn. og viðskrn., sem hér hefur þróast, sé eðlileg. Ég hef persónulega á því þær skoðanir, að margt mætti betur fara í þeim stjórnarfarslegu samskiptum sem þar hafa verið fastbundin í ákveðið kerfi. Ég vil þess vegna óska eftir að tvískipting skýrslunnar verði rædd og athuguð sérstaklega áður en hún verður flutt í annað sinn.
Hitt sem ég hefði kosið að fara um fleiri orðum, en vegna tímaskorts ætla ég að láta nokkur nægja á þessu stigi, er um samskipti Íslands og Noregs í tengslum við herstöðina hér og varnarsamninginn við Bandaríkin. Ég er þeirrar skoðunar, að eitt feimnismálið í íslenskum utanríkismálum allt of lengi séu þeir miklu hagsmunir sem Noregur hefur af því að herstöð sé í Keflavík. Norðmenn hafa gefið yfirlýsingar um að þeir ætli sér ekki að hafa erlendar herstöðvar í landi sínu. Þeir hafa byggt upp varnarkerfi sem þeir bæði opinberlega og eins sérstaklega í áætlanagerð sinni í stjórnkerfi sínu byggja á því, að Íslendingar taki að sér að hafa þessa herstöð fyrir þá. Herstöðin hefur valdið margvíslegum erfiðleikum innan Íslands á undanförnum áratugum, pólitískum, menningarlegum, efnahagslegum og af öðru tagi. Norðmenn hafa hins vegar skotið sér undan þeim margvíslegu vandamálum, sem eru fólgin í því að hafa erlendar herstöðvar í landi sínu, og einfaldlega haldið þannig á spilunum í samskiptum sínum við Ísland og Atlantshafsbandalagið að Íslendingar tækju það að sér. Vegna margvíslegra tengsla ýmissa stjórnmálamanna á Íslandi við forustuöfl í Noregi hefur aldrei fengist hreinskilnisleg umræða milli Íslendinga og Norðmanna um þetta feimnismál í samskiptum þeirra. Þó er ljóst að þegar vinstri stjórnin var hér við völd 1971–1974 beittu Norðmenn margvíslegum aðferðum til að hafa áhrif á utanríkisstefnu Íslendinga í þessum efnum. Það er einnig ljóst að aðstoðarvarnarmálaráðh. Noregs um þessar mundir, Holst, telur að það séu svo miklir hagsmunir fyrir Norðmenn að hafa herstöðina hér á Íslandi að Norðmenn verði að taka tillit til þess í samskiptum sínum við Íslendinga á öðrum sviðum, m. a. á sviði hafréttarmála.
Þannig mætti nefna fjölmörg önnur atriði til að leiða í ljós að umboðsmenn Atlantshafsbandalagsins á Íslandi hafa viljandi gleymt á undanförnum árum og áratugum að gera íslensku þjóðinni og í framhaldi af því norsku þjóðinni hreinskilnislega grein fyrir hverjir eru árekstrar milli Íslendinga og Norðmanna hvað herstöðvarmál snertir, nema það sé málflutningur þessara manna að Íslendingar eigi að taka að sér um aldur og ævi að hafa það í sínu landi, sem Norðmenn vilja ekki hafa í þeirra landi.
Hvort sem menn eru stuðningsmenn eða andstæðingar bandarísku herstöðvarinnar á Íslandi hljóta allir að vera sammála um að hún hefur skapað íslenskri þjóð margvíslegan vanda. Hún hefur m. a. klofið hana í stjórnmálum, hún hefur eyðilagt þá samstöðu í sjálfstæðismálum þjóðarinnar sem tókst að ná fram rétt fram yfir lýðveldisstofnunina, eða þangað til inngangan í Atlantshafsbandalagið og koma hersins urðu að veruleika. Það hljóta allir að átta sig á því, að það er mjög alvarlegt fyrir litla þjóð að vera klofin í herðar niður í sjálfstæðismálum og í utanríkismálum, vegna þess að það gefur öðrum ríkjum margvísleg tækifæri til að leika á þann klofning og það hafa Norðmenn gert. Það er þessi skortur á hreinskilni í umræðum og samskiptum Íslendinga og Norðmanna um herstöðvarmálið sem ég tel vera eitt af brýnustu verkefnum íslenskra stjórnvalda í samskiptum sínum við Noreg á næstu árum. Þegar Jan Mayen-málið og önnur slík vandamál koma upp í viðræðum hæstv. utanrrh. við utanrrh. og aðra ráðmenn í Noregi vænti ég að hann hugleiði hvort ekki sé tími til kominn að fara að gera hreint fyrir þeim dyrum sem hafa hingað til lokað umr. um samskipti Íslendinga og Norðmanna um herstöðvarmálið.