07.05.1979
Sameinað þing: 88. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4422 í B-deild Alþingistíðinda. (3497)

357. mál, utanríkismál

Páll Pétursson:

Herra forseti. Hér hafa spunnist skemmtilegar umr. og við þær langar mig að bæta fáeinum orðum.

Hæstv. viðskrh. mælti réttilega, að það væri vansæmd að því að Íslendingarværu ekki þess umkomnir að bjarga sér sjálfir þegar þeir lentu í háska og væru upp á Bandaríkjaher komnir með sum björgunar- og öryggistæki sem nauðsynleg eru í slíkum tilfellum. Hann benti á að efla þyrfti Landhelgisgæsluna til þess að hún gæti unnið það starf. Ég man ekki betur en einhverjar hugmyndir hafi komið fram um niðurskurð hjá Landhelgisgæslunni við síðustu fjárlagagerð. Ég held að þær hafi ekki upphaflega komið frá dómsmrh. En ég vona að hæstv. viðskrh. standi með dómsmrh. um það að efla Landhelgisgæsluna. Ég gæti vel hugsað mér að styrkja þá í því verki til að Landhelgisgæslan gæti gegnt þessu hlutverki.

Ég mun hafa komist ónákvæmt að orði um lokun Keflavíkursjónvarpsins. En ég hygg að mig misminni ekki, að sú lokun kom til framkvæmda eftir að vinstri stjórnin var farin frá. Hitt er rétt, sem komið er fram, að það var búið að semja um lokunina í tíð ríkisstj. Ólafs Jóhannessonar. Ég er með till. til þál. um sjónvarpsmál á þskj. 17 frá 95. löggjafarþingi. Flm. hennar er Albert Guðmundsson. Þar segir:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að hefja nú þegar samninga við yfirstjórn Bandaríkjamanna á Keflavíkurflugvelli um að fresta um óákveðinn tíma takmörkun á styrkleika útsendinga og breytingum á útsendingargeislum sjónvarpsstöðvar Keflavíkurflugvallarins.“

Seinna segir í grg.:

„Ég leyfi mér að flytja þessa þáltill. þar sem ég álít að með samkomulagi fyrrv. ríkisstj. um að takmarka útsendingu sjónvarpsstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli sé verið að skerða hinn helga rétt einstaklingsins í lýðfrjálsu landi til valfrelsis um það sjónvarpsefni sem í boði er hverju sinni.“

Þessa till. flutti hv. þm. Reykv., Albert Guðmundsson. Það var mikil andstaða meðal sjálfstæðismanna um að lokunin kæmi til framkvæmda, enda segir í till. „að fresta um óákveðinn tíma“. Tillögumaður mundi ekki taka svo til orða ef lokun væri komin til framkvæmda. En þrýstingurinn varð svo mikill, eins og hefur réttilega verið rakið af hv. þm. Ólafi Ragnari Grímssyni, að m. a. o. næstum því formaður Sjálfstfl. og núv. formaður Sjálfstfl. tóku saman höndum, á þeim degi urðu þeir vinir Heródes og Pílatus, og hv. þm. Albert Guðmundsson og þáv. hæstv. forsrh. Geir Hallgrímsson sameinuðust um þetta baráttumál.

Hæstv. viðskrh. orðaði það svo, að afstaðan til hersins væri mikilvægt hugsjóna- og baráttumál fyrir Alþb. Þar komst hann nákvæmlega rétt að orði. Það var einmitt það sama og ég var að reyna að segja. Þeim hefur verið þetta mikilvægt mál, bæði til þess að sameinast um hugsjónalega og til þess að hafa eitthvað til að berjast fyrir sameiginlega. Meginatriðið er að baráttan beri árangur. Ég biðst afsökunar ef ég hef snúið út úr orðum hæstv. ráðh., en ég tók svo eftir að hann segði þetta. Það er meginatriðið, að baráttan beri árangur, og um það stendur slagurinn.

Það var vitnað í 170 framsóknarmenn sem hefðu ekki viljað láta herinn fara. Það er satt, að við erum ekki orðnir ýkjamargir framsóknarmenn, en þó er 170 ekki stór hópur af liðskosti framsóknarmanna, ekki svo að okkur vaxi hann neitt í augum.

Hæstv. viðskrh. orðaði það svo, að vera kynni að hann sæti eitthvað lengur í ríkisstj. með hæstv. utanrrh. Mér verður að spyrja: Er Alþb. á förum úr ríkisstj.? Ég vona að svo sé ekki. Það er aldrei friður. Þetta er ljóta ástandið!

Hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson bauð þingheimi að segja söguna um herinn og Framsfl. Hann rakti hana ofurlítið, ekki þó nákvæmlega, hann á kannske eftir að gera það. En hann verður að passa sig á því, ef hann fer að segja þá sögu, að fara ekki að eins og Gunnar heitinn Lambason, þegar hann fór að segja frá Njálsbrennu í gamla daga og hallaði mjög réttu máli og ló frá víða. Ég vonast til að þegar hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson segir sína sögu reyni hann að hafa hana rétta.

Hv. þm. dró í efa að hæstv. dómsmrh. væri enn sama sinnis og hann var í fyrra um að hér ætti ekki að vera her á friðartímum, en það er þá vegna þess að hv. þm. hlustar ekki nógu vel á dómsmrh. Ef hann hefði hlustað nógu vel mundi hann hafa heyrt þetta iðulega síðan í fyrra, vegna þess að dómsmrh. hefur iðulega endurtekið skoðun sína.

Mönnum hefur orðið tíðrætt um með hverjum hætti hægt sé að hagnast á því að vera andstæðingur hersins. Ég held að það sé upplagðara fyrir Alþb. að efla með sér samstöðu með því að geisa yfir hernum en þó nokkurn tíma Framsfl., og er ég þó ekkert að draga úr félögum mínum að ýta við hernum. Það eflir náttúrulega ekki samstöðu við þessa 170 að tala um herinn, þannig að ég held að það sé ugglaust að Alþb. hefur af slíku meiri hag en Framsfl. hefur nokkurn tíma haft.

Hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson kvartaði undan því, að erfitt hefði verið að fá miðstjórnarmenn Framsfl. til að starfa í Samtökum herstöðvaandstæðinga. Ég þekki þó nokkuð marga miðstjórnarmenn Framsfl. sem eru mjög áhugasamir andstæðingar hersins. Ég talaði áðan um misnotkun Alþb. á þessum samtökum. Að því slepptu eru iðulega voðaleg vandræði að fá framsóknarmenn til að vinna með hv. þm. Ólafi Ragnari Grímssyni. Það er eins og þeim leiðist sumum að vinna með honum. Ég skil ekkert í þessu, af því að mér finnst skemmtilegt að vinna með honum.

Ég veit vel um hernámsandstæðinga innan raða Alþfl. og hér á þingi veit ég um a. m. k. tvo mjög skelegga og ágæta baráttumenn fyrir brottför hersins úr röðum Alþfl., þá hv. þm. Bragi Níelsson og Gunnlaug Stefánsson. E. t. v. eru þeir fleiri. En ég veit líka um menn innan þess flokks sem eru mjög á annarri skoðun. Ég ætla ekki að fara að tíunda yfirlýsingar hæstv. utanrrh. eða t. d. hv. þm. Karls Steinars Guðnasonar um afstöðu til hersins. Þeir fluttu hér ótrúlegar ræður í umr. utan dagskrár í vetur vegna þess að Carter Bandaríkjaforseti vildi fækka innfæddum sem ynnu í hinum ýmsu herstöðvum Bandaríkjamanna. Ég veigra mér við því að rifja þær umr. upp, en vísa til Alþingistíðindanna.

Ég varð ekki var við í þeim stjórnarmyndunarviðræðum, sem hv. þm. Bragi Níelsson vitnaði til, þá kröfu Alþfl. að láta herinn fara eða kreppa mjög að honum. Það kann að vera að kröfunni hafi ekki verið haldið til streitu af fulltrúum Alþfl., en allt um það kom hún ekki fyrir mín eyru.

Að öðru leyti vil ég fagna umr. Ég held að við eigum miklu fleira sameiginlegt en það sem við erum ósammála um. Ég heiti á menn, sem eru sömu skoðunar og hv. þm. Bragi Níelsson og margir fleiri sem hafa talað í málinu, að taka höndum saman og reyna nú að vinna af einlægni að því að losa okkur við þessa óværu.