07.05.1979
Sameinað þing: 88. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4428 í B-deild Alþingistíðinda. (3503)
119. mál, alþjóðasamningar um mannréttindi
Frsm. (Einar Ágústsson):
Herra forseti. Hér er um að tefla staðfestingu á samningi. Alþingi álykti að veita ríkisstj. heimild til þess að fullgilda fyrir Íslands hönd alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt bókun og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi sem samþ. voru á 21. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York hinn 16. des. 1966.
Ég vek athygli á því, að í skýrslu hæstv. ráðh. er þess getið að þegar sé búið að samþykkja þennan samning. Það er ekki rétt, en eflaust hefur verið búist við því að Alþ. yrði fljótara í vöfunum en raun varð á. Þetta á ekki að koma að sök vegna þess að allir nm. utanrmn. skrifa undir nál. þar sem mælt er með að till. verði samþ.