08.05.1979
Sameinað þing: 89. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4433 í B-deild Alþingistíðinda. (3507)

Umræður utan dagskrár

Oddur Ólafsson:

Herra forseti. Hæstv. viðskrh. Ég hef kvatt mér hljóðs utan dagskrár vegna þeirra atburða sem urðu um helgina síðustu þegar verð á bensíni og olíu hækkaði mjög verulega, þ. e. a. s. þegar verð á bensíni hækkaði úr 205 kr. í 256 kr. Langar mig til að spyrja hæstv. ráðh. hvort þeir, sem að þeirri verðlagningu stóðu eða bera á henni ábyrgð, muni hafa gert sér grein fyrir þeim gífurlegu áhrifum sem sú aðgerð hefur á raunkjör öryrkja, aldraðra og annarra láglaunahópa og enn fremur hvort nokkrar hliðarráðstafanir séu væntanlegar til að létta þeim verst settu byrðina.

Á undanförnum áratugum hafa stjórnvöld veitt öryrkjum verulegar eftirgjafir á aðflutningsgjöldum til að auðvelda þeim að eignast einkabifreiðar. Einnig hefur Tryggingastofnun ríkisins eru áraraðir veitt öryrkjum nokkur lán til bifreiðakaupa. Þessa get ég hér vegna þess að það sýnir að stjóravöld viðurkenna að einkabíllinn sé öryrkjum nauðsynlegur.

Þar eð þessar öryrkjaeftirgjafir hafa verið um 400 árlega er augljóst að þúsundir öryrkja aka nú í eigin bílum. Fjöldi þeirra getur með slíkri aðstoð unnið einhver störf. En sá hópur er einnig stór sem bíllinn hleypir út úr fangelsi einangrunarinnar og eykur þannig á lífshamingju og fjölbreytni í lífi þess fólks. Einkabíllinn er enn fremur öldruðum ótvíræð nauðsyn til að vega gegn áhrifum einangrunar og annarra félagslegra örðugleika sem vilja hrannast upp þegar starfsævi lýkur.

Einkabíllinn er metinn í vísitölunni á 11.7% af framfærslunni. En nú þegar bensínlítrinn er kominn upp í 256 kr., þegar ábyrgðar- og kaskótryggingar losa 200 þús. kr. árlega, þegar vextir af lausaskuldum eru 25% og gangur af dekkjum kostar yfir 100 þús., er það ekki fyrir þá, sem teljast til láglaunahópa, að eiga bíl og aka honum.

En það eru ekki aðeins öryrkjar og ellilífeyrisþegar sem virðast nú þurfa að leggja bifreiðum sínum og hverfa aftur til lifnaðarhátta hallærisáranna. Þúsundir launafólks með 200–300 þús. kr. mánaðarlaun, fólk sem býr alllangt frá vinnustað sínum verða að aka allt að 600 km mánaðarlega að og frá vinnu, það fólk verður fyrir nærri óbærilegri kjararýrnun. Mestur fjöldi þess fólks býr í þéttbýlinu á Faxaflóasvæðinu, en reyndar má segja að þetta vandamál sé víðs vegar um landið.

Ég þarf ekki að gera hæstv. ráðh. grein fyrir því, hve naumt áðurgreindum láglaunahópum er skömmtuð framfærsla. Örorkubætur með tekjutryggingu eru nú 104 364 kr. á mánuði. Örorkulífeyrir hjóna, séu bæði öryrkjar, er 182 384 kr. og ellilífeyrir hjóna nemur sömu upphæð. Annar taxti Dagsbrúnar, sé miðað við dagvinnumánaðarkaup, er 166 261 kr. og upp í 182 166 og Iðjutaxtinn er frá 162 575 upp í 171 000, allt miðað við dagvinnu. Fullfrískir launþegar á vinnualdri hafa ekki meiri laun en þetta vinni þeir aðeins dagvinnu. Kostnaðurinn við einkabílinn er því ekki lengur 11.7% af framfærslunni. Með mikilli sparsemi má gera ráð fyrir að hann sé um 80 þús. kr. á mánuði. Er þá öllum ljóst að öryrkjar verða að leggja bílum sínum, en fjöldi launþega verður að greiða, ekki 11.7% af framfærslulífeyrinum í bílinn, heldur 30–40% og jafnvel meira.

Í Ed. spurði ég hæstv. fjmrh. nýlega hvort hlutur ríkissjóðs mundi lækkaður í framtíðarverðlagningu bensíns. Hann tók hví líklega. M. a. þess vegna átti ég von á annarri verðákvörðun. Af 256 kr. renna nú 144 kr. til ríkissjóðs. Væri nú ekki reynandi að lækka lítillega prósentu ríkisins til að auðvelda þeim, sem erfiðast eiga, að komast af? Mér er þó ljóst að aðrar aðgerðir þurfa að koma til ef áður greindum láglaunahópum á að vera kleift að lifa við svipaðar aðstæður áfram og verið hafa á undanförnum árum, og því er það að ég spyr hæstv. ráðh.: Eru nýjar ráðstafanir væntanlegar, þannig að áðurgreindir hópar geti áfram notað einkabíla sína?