08.05.1979
Sameinað þing: 89. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4434 í B-deild Alþingistíðinda. (3508)
Umræður utan dagskrár
Viðskrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Sú fsp., sem hv. þm. Oddur Ólafsson hefur borið fram, gefur vissulega tilefni til hugleiðinga og ítarlegra umr. um þessi mál út frá þeim atriðum ýmsum sem hann nefndi í ræðu sinni. En með tilliti til þess að fundartími er allknappur og ræðutími skammtaður er ekki kostur á að fara eins ítarlega út í þau mál og æskilegt hefði verið. Ég vil þó láta það koma fram, að í þeim umr., sem fram hafa farið vegna verðhækkana á olíu að undanförnu, höfum við kannað það, m. a. vegna tillöguflutnings frá mér í ríkisstj., að stöðvuð yrði sjálfvirk skattlagning eða skattahækkun til ríkissjóðs einkum vegna erlendra hækkana á bensíni. Niðurstaðan, eftir allnokkrar umr. og kannanir á þeim málum, varð að sú hækkun sem að óbreyttu og í lögum er gert ráð fyrir kemur vissulega fram í þeirri verðlagningu sem nú er um að ræða, en hún rennur ekki í ríkissjóð með sama hætti og verið hefur.
Hækkunin á bensíni hefur í för með sér u. þ. b. 22 kr. skattlagningu opinberra aðila á hvern bensínlítra. Það nemur á þeim hluta ársins sem eftir er um 1000–1100 millj. kr. Hefur verið ákveðið í ríkisstj. að þeir fjármunir verði notaðir með eftirgreindum hætti:
1. Til tvöföldunar á olíustyrk, þ. e. a. s. úr 910 í 1820 millj. kr. á árinu.
2. Til að fella niður söluskatt af gasolíu, sem þýðir fyrir ríkissjóð nettó í tekjumissi 235 millj. kr.
3. Til að kosta sérstakar orkusparnaðaraðgerðir af ýmsu tagi fara um 40 millj. kr.
Ég hygg því að segja megi með fullum rétti að ríkissjóður sem slíkur hafi ekki upp úr þessu krafsi viðbótarupphæðir við það sem áður hefði verið. Vissulega eru hinar almennu skattlagningarreglur áfram óbreyttar, en við væntum þess að nú sé um að ræða stærsta verðhækkunarskrefið í þeirri nýju olíukreppu sem er að ganga yfir.
Með þessum ráðstöfunum er í fyrsta lagi um að ræða að sama verð er á gasolíu í landinu í staðinn fyrir tvenns konar eins og verið hefur. Tæknilegur undirbúningur er nú í gangi og ég vænti þess að nýtt verð á gasolíu geti tekið gildi áður en langur tími líður. Veruleg misnotkun mun hafa átt sér stað vegna þess að verð hefur verið mjög mismunandi á gasolíu, eins og kunnugt er, annars vegar án söluskatts og hins vegar með söluskatti. Söluskattur hefur verið á um 25% gasolíunnar og af þeim 25% gasolíu hefur ríkið sjálft borgað 37% söluskattsins. Með þessum hætti er dregið úr misnotkunarhættu.
Varðandi olíustyrkinn lítur þetta þannig út: Á síðasta fjórðungi ársins 1978 voru greiddar hverjum einstaklingi 2500 kr. í olíustyrk. Á fyrsta fjórðungi ársins 1979 var upphæðin til hvers einstaklings, miðað við fjárlagatöluna, 3700 kr. Ríkisstj. tók fyrir nokkru ákvörðun um að á fyrsta fjórðungi ársins yrðu þó greiddar 5000 kr. og ákvörðunin nú, að frá og með öðrum ársfjórðungi 1979 hækkar olíustyrkur í 8500 kr. á hvern einstakling, — og það er vissulega veruleg hækkun að olíustyrkur hefur hækkað úr 2500 á síðasta fjórðungi 1978 í 8500 á öðrum fjórðungi 1979 — þessi ráðstöfun er vitaskuld tekjujöfnunarráðstöfun. Hins vegar er það alveg rétt, sem hv. þm. Oddur Ólafsson benti á áðan, að sú bensínhækkun, sem nú er komin fram, er mjög tilfinnanleg, einkum og sér í lagi á því svæði sem við erum stödd á núna. En það er þá vert að hafa í huga, að þrátt fyrir verulega atlögu að þeim verðbótareglum, sem í gildi hafa verið á launin í landinu, er sú hækkun, sem verður m. a. á kostnaði við einkabílinn, bætt í verðbótum frá 1. júní n. k. Og mér sýnist að sú hækkun, sem nú hefur verið ákveðin á bensíni, þýði um 1.5% á verðbótavísitölu sem kemur svo aftur fram frá og með 1. júní.
Ég tek undir að það ætti að athuga með hvaða hætti hægt væri að koma sérstaklega til móts við öryrkja sem eru algerlega háðir þessu samgöngutæki og geta ekki nýtt almenningsvagnana á Reykjavíkursvæðinu t. d. Vandasamt verk er að gera það þannig að skynsamlegt sé. Ég held að hugsanlegt væri að skoða það mál í tengslum við aðflutningsgjöld eða stuðning við bifreiðakaup. Ég held að vafasamt væri að gera það með mismunandi bensínverði til þessara aðila. Ég held að slíkt væri ekki heillavænlegt. En ég tel að málið eigi að athuga.
Ég tek einnig undir það, sem kom fram hjá hv. þm. Oddi Ólafssyni, að sá mismunur, sem orðinn er á iðgjöldum bifreiða eftir tryggingasvæðum í landinu, er algerlega óeðlilegur. Ég tel að ríkisstj. eigi fyrir næsta tryggingatímabil, að svo miklu leyti sem slíkt er á valdi hennar, að taka ákvörðun um breytingar á þessum hlutum. Rökunum fyrir hinum geysilega mismunandi tryggingaiðgjöldum eftir svæðum fækkar stöðugt.
Ég vil að lokum láta þess getið, að þó að sú hækkun, sem nú hefur orðið á bensíni, sé mjög veruleg og tilfinnanleg er þess því miður ekki að vænta að það verð haldist kyrrt mjög lengi. Ég geri ráð fyrir að frekari hækkanir séu væntanlegar á olíuverði erlendis. M. a. er ljóst að þeir farmar, sem við höfum þegar fengið af olíu og bensíni, eru á nokkru hærra skráningarverði en þeir farmar sem nú er verið að ákveða verð á. Þessi lota er því ekki búin, en er vonandi stærsti spretturinn í sambandi við þá nýju olíu- og bensínverðshækkun sem hefur verið að ganga yfir þjóðfélag okkar með þeim afleiðingum sem það hefur fyrir efnahagslíf okkar og lífskjör. Það er vonandi stærsta og þyngsta höggið sem af því hlýst sem nú er þegar komið fram.
Ég veit, hv. þm., að mikið vantar á að svör mín séu fullnægjandi við þeirri fsp. sem borin hefur verið fram, en efni mín eru ekki meiri. Ég hef gert grein fyrir þeim ráðstöfunum sem ríkisstj. hefur gert, og ég vænti þess að þær ráðstafanir sýni að það er vilji í svipaða veru og hv. þm. drap á í ræðu sinni áðan.