08.05.1979
Sameinað þing: 90. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4451 í B-deild Alþingistíðinda. (3526)
254. mál, stefnumörkun í landbúnaði
Dómsmrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Mál það, sem hér liggur fyrir, er liður í þeirri viðleitni landbrn. að marka í samráði við stofnanir og forustumenn bænda nýja stefnu fyrir landbúnaðarframleiðsluna. Að því hefur verið unnið frá því að þessi ríkisstj. kom til valda að leggja grundvöllinn að slíkri stefnumörkun. Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstj. koma fram ákveðnir þættir sem til grundvallar eru lagðir. Með þessari till. er farið fram á að hv. Alþ. staðfesti þau megingrundvallarmarkmið sem unnið verði eftir við slíka stefnumörkun. Þau eru rakin í upphafi þáltill. og eru þrjú:
1. Að fjölbreytt og hagkvæm framleiðsla landbúnaðarafurða verði í samræmi við neysluþarfir þjóðarinnar og hráefnisþörf iðnaðarins. — Þetta markmið er nánast óbreytt úr stefnuyfirlýsingu ríkisstj.
2. Að tekjur og félagsleg aðstaða þeirra, sem búvöruframleiðslu stunda, verði sambærileg því sem aðrar stéttir hafa. — Þetta atriði er þegar í framleiðsluráðslöggjöfinni og einnig staðfest í samstarfsyfirlýsingu ríkisstj., þar sem segir að að því skuli stefnt að framleiðendur búvöru fái laun sín greidd svipað og aðrar stéttir í þjóðfélaginu.
3. Lagt er til sem grundvallarmarkmið að skipulag búvöruframleiðslunnar og atvinnutækifæra í sveitum verði í samræmi við þá stefnu sem ákveðin er í byggðamálum og í sambandi við eðlilega nýtingu landkosta. Fylgt hefur verið hér á landi um nokkuð mörg ár þeirri stefnu í byggðamálum að byggja landið nokkurn veginn eins og við gerum nú og sporna gegn frekari byggðaröskun en orðin er. Í þessu skyni veitir ríkisvaldið verulegt fjármagn. Framleiðsla búvöru, landbúnaðurinn, er einn meginhornsteinn þeirrar byggðastefnu. Því verður ekki mörkuð stefna í málefnum landbúnaðarins svo að vel sé nema fullt tillit sé jafnframt tekið til byggðamála.
Í þáltill. er jafnframt gert ráð fyrir að þessum markmiðum verli náð með beinum samningum ríkisvalds og þeirra sem búvöruframleiðslu stunda. Frv. um breytingu á framleiðsluráðslöggjöfinni, sem að þessu stefnir, hefur nú verið lagt fyrir Alþ. Einnig er gert ráð fyrir að gerð verði 5 ára áætlun um þróun framleiðslunnar. Sú áætlun mundi byggjast á þeim meginmarkmiðum sem ég hef rakið, en jafnframt um hana fjallað í beinum samningum ríkisvalds og þeirra sem búvöruframleiðslu stunda. Þessir þættir eru því nátengdir. Framkvæmdin gæti orðið sú, að í slíkum samningum verði nánast samið um það framleiðslumagn, sem gert verði ráð fyrir hjá landbúnaðinum á næstu árum, og þá jafnframt að hið opinbera ábyrgist framleiðendum búvöru tekjur í samræmi við slíkt framleiðslumagn innan eðlilegra marka sem ákvarðast gjarnan af veðurfari og öðru slíku. — Má segja að í þessu felist í fáum orðum sú breyting sem ráðgerð er með þessari stefnumörkun í málefnum landbúnaðarins.
Þá eru í þáltill. raktar ýmsar aðgerðir og leiðir sem lagt er til að farnar verði við þá áætlunargerð, sem ég hef nú nefnt, og farnar verði til að ná þeim meginmarkmiðum sem í upphafi þáltill. eru nefnd. Ég sé ekki ástæðu til að rekja það lið fyrir lið.
Loks fylgir þáltill. ítarleg grg. Þar eru saman komnar miklar upplýsingar um þróun landbúnaðarins, bæði fyrr og síðar, og sömuleiðis upplýsingar um þá þróun sem menn ætla að fram undan sé, m. a. breytingar sem hljóti að verða með þeirri stefnubreytingu sem hér er gert ráð fyrir. Segja má að þessar upplýsingar séu grundvöllur að þeirri áætlunargerð sem ég hef nú nefnt Hins vegar þótti rétt að láta þær fylgja þáltill. Í þeim er mikill fróðleikur sem væntanlega getur verið umræðugrundvöllur um málefni landbúnaðarins.
Ég þarf ekki að rekja í langri ræðu þróun landbúnaðar á undanförnum árum. Það hefur verið gert á fjölmörgum fundum Alþingis. Þó vil ég vekja athygli á að landbúnaðarframleiðslan nú á dögum byggir á löggjöf sem segja má að sé almennt framleiðsluhvetjandi, bæði framleiðsluráðslöggjöfin, jarðræktarlög og fjölmargt fleira sem ég þarf ekki að telja.
Þróunin hefur orðið sú á undanförnum árum, að framleiðsla landbúnaðarafurða umfram það, sem seljanlegt hefur verið innanlands eða með góðu móti á erlendum mörkuðum, hefur stöðugt farið vaxandi. Einkum hefur það verið svo á undanförnum þremur árum. Útflutningsbótatrygging, sem ákveðin var 1961 og er ákveðin 10% af heildarframleiðsluverðmæti landbúnaðarafurða, nægði til að brúa mun á verði landbúnaðarafurða erlendis og innanlands allt fram til ársins 1977, en á undanförnum þremur árum hefur vantað mikið á að svo yrði. Í ár er talið að rúmlega 5 milljarða vanti til að ná fullu grundvallarverði fyrir útfluttar landbúnaðarafurðir, og er það til viðbótar þeirri 10% tryggingu sem ég hef nefnt. Ég vil taka það fram, að þessi þróun er langt frá því að vera eingöngu vegna þess að framleiðslan hafi aukist innanlands, sem hún hefur að vísu gert nokkuð á allra síðustu árum, heldur eru þarna fleiri þættir samverkandi, m. a. — og ekki síst — að mikil röskun hefur orðið á undanförnum árum á verðlagi landbúnaðarafurða innanlands og á erlendum mörkuðum. Þetta má rekja til hinnar miklu verðbólgu. Einnig er staðreynd að niðurgreiðslur og verndartollar vegna landbúnaðarframleiðslu í markaðslöndum okkar hafa aukist. Verðlag þar hefur hvergi nærri hækkað eins og annað verðlag í þeim löndum. Ég get nefnt sem dæmi að fyrir 6–7 árum fengum við um 85% af heildsöluverði lambakjöts í Svíþjóð, en nú er þar aðeins um að ræða 38%. Þessi þróun er því, eins og ég hef sagt, af mörgum samverkandi þáttum og ekki rétt að rekja hana eingöngu til aukinnar framleiðslu innanlands. Hitt er svo mönnum orðið ljóst, og ekki síst bændum og forustumönnum þeirra, að nauðsynlegt er að breyta um stefnu, nauðsynlegt er að stefnan verði sveigjanlegri en hún hefur verið, nauðsynlegt er að tæki og aðferðir verði leyfðar til að hafa stjórn á framleiðslunni þannig að hana megi laga að breyttum staðháttum hverju sinni.
Nú er um umframframleiðslu að ræða. Því er nauðsynlegt að draga úr framleiðslunni. Ég vil hins vegar leggja ríka áherslu á að það þarf að gera í áföngum, það verður að gerast með gát. Um viðkvæmt mál er að ræða, ekki aðeins fyrir bændastéttina, heldur fyrir miklu fleiri í þessu þjóðfélagi. Landbúnaðurinn er hlekkur í langtum stærri keðju.
Í grg. með þáltill., á bls. 110, er sett fram bráðabirgðaáætlun um samdrátt í framleiðslulandbúnaðarafurða á næstu 5 árum. Í þeirri áætlun er gert ráð fyrir að mikill og hraður samdráttur verði í framleiðstu mjólkurafurða, en stórum hægari í framleiðslu sauðfjárafurða.
Auðveldara er að ráða við framleiðslu mjólkurafurða en sauðfjárafurða. Það má gera m. a. og ekki síst með því að takmarka verulega notkun fóðurbætis. Alþ. hefur samþykkt heimildir til Framleiðsluráðs landbúnaðarins til þess að fara þá leið og er í þessari áætlun gert ráð fyrir að svo verði gert.
Um sauðfjárframleiðsluna gegnir hins vegar töluvert öðru máli. Við hana verður ekki ráðið auðveldlega með leiðum eins og takmörkun fóðurbætis. Slíkt hefur lítil áhrif. Einnig er ljóst að ef sauðfé er fækkað í stórum stíl eykur það þegar vandann að því leyti að kjötmagn eykst á markaðnum. Þetta verður því að gerast hægfara og þarf að mínu mati að gerast samkv. áætlun sem tekur tillit til þeirra þriggja meginmarkmiða sem rakin eru í upphafi þáltill: Ef vel er að gáð er ljóst að töluvert svigrúm er, m. a. er sauðfjárrækt mikil í eigu þéttbýlisbúa. Í eigu þeirra munu vera um 34 000 fjár og sömuleiðis í eigu manna sem að vísu hafa ábúð á lögbýli, en meginhluta tekna sinna af öðru. Sá fjöldi mun vera um 45 000 fjár. Á ýmsum svæðum landsins er auk þess sauðfjárrækt þar sem ofbeit er og rík ástæða til að takmarka af þeirri ástæðu. Því er það skoðun mín að sauðfjárframleiðslunni megi ná niður, ef farið er að með gát, án þess að vandræði hljótist af í tekjum bænda eða byggðamálum, en það verði ekki gert nema á skipulegan hátt. Að því stefnir þáltill. Eins og ég sagði í upphafi er með henni farið fram á að Alþ. leggi blessun sína yfir þau meginmarkmið, sem ráði, og þær leiðir, sem farnar verði að þeim markmiðum.
Herra forseti. Eins og ég hef þegar sagt sýnist mér ekki þörf á að flytja ítarlegri ræðu um landbúnaðarmálin nú. Ég leyfi mér að leggja til að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. atvmn.