08.05.1979
Efri deild: 90. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4458 í B-deild Alþingistíðinda. (3530)

7. mál, ráðstafanir vegna breytingar á gengi íslenskrar krónu

Sjútvrh. (Kjartan Jóhannsson):

Herra forseti. Það mál, sem hér er til umfjöllunar, hefur áður verið til meðferðar í þessari hv. d. og afgreitt héðan. Á því hafa hins vegar orðið breytingar í meðförum hv. Nd. Meginefni frv. og stefna stendur þó óbreytt frá því að málið var afgreitt frá Ed. á sínum tíma.

Þær breytingar, sem hafa verið gerðar, eru að áður en fé kemur til skipta eru settar til hliðar 100 millj. kr. sem fara að hluta, eða 75 millj. kr., til lífeyrissjóðs sjómanna til að verðbæta örorku- og lífeyrisgreiðslur og aðrar tryggingabætur til sjómanna, en annar hluti,15 millj., fer til orlofshúsa sjómannasamtakanna og þriðja hlutanum, 10 millj. kr., yrði varið til öryggismála sjómanna samkv. nánari ákvörðun sjútvrh. og samgrh.

Í annan stað hefur 3. gr. að því er b-lið varðar verið umorðuð. Má segja að sú breyting feli fyrst og fremst í sér nánari skilgreiningu á því verkefni sem gengismunarfé er ætlað að rækja. Hlutfallsskipting fjár er hin sama og ávallt hefur verið gert ráð fyrir. Í stað undirliðar a í b-lið 3. gr. kemur tölul. 1. Í stað undirliðar b í b-lið 3. gr. koma tölul. 2 og 3. Varðandi tölul. 3 er það að segja, að tekin hefur verið upp heimild til að sameina Aldurslagasjóði fiskiskipa það fé sem hér um ræðir. Það er þá blaðfest stefna í þeim efnum, en slíkt hefur áður verið gefið til kynna. Tölul. 2 og 3 ganga upp í fyrri undirlið b, og tölul. 1, sem gengur upp í það sem áður var undirliður a, eru sem sagt nánari skilgreining þar sem fyrst og fremst er lögð áhersla á að þetta fé skuli veita til hagræðingar og til að leysa sérstök staðbundin vandamál. Er nánar kveðið að orði um til hvers lán skuli veita í því tilefni.

Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta mál. Ég tel, að það skýri sig að öllu leyti sjálft, og vænti þess að d. sjái sér fært að afgreiða málið með sem skjótustum hætti eins og það er nú í hendur hennar búið.